Fréttablaðið - 16.06.2012, Blaðsíða 84
16. júní 2012 LAUGARDAGUR52 52
menning@frettabladid.is
Tónlistarhátíðin Reykjavík
Midsummer Music 2012 fer
fram í fyrsta sinn í Hörpu
17. til 19. júní. Píanóleikar-
inn Víkingur Heiðar Ólafs-
son er hugmyndasmiður og
listrænn stjórnandi hátíðar-
innar, sem einvalalið tón-
listarmanna tekur þátt í.
„Mig hefur alltaf langað að vera
með mitt eigið litla tónlistarfesti-
val. En hugmyndin varð ekki skýr
í huga mínum fyrr en fyrir um
ári síðan, þegar ég var með tón-
leika með Kristni Sigmundssyni
þann 16. júní. Þá var stemningin
svo skemmtileg og mögnuð og ég
áttaði mig á að hásumarið væri
einmitt tíminn fyrir svona lagað.
Þó það sé ákveðin áhætta fólgin í
þessum árstíma finnst mér þetta á
sama tíma svo músíkalskur tími.
Það eru svo góð stemning í öllum.
Við erum að æfa langt fram á nótt,
tónlistarmennirnir, og allir eru í
stuði. Þetta myndi aldrei ganga ef
við hefðum myrkrið yfir okkur,“
segir Víkingur Heiðar Ólafsson,
píanóleikari og listrænn stjórn-
andi tónlistarhátíðarinnar Mid-
summer Music 2012, sem fram
fer í Hörpu 17. til 19. júní næst-
komandi.
Klikkuð efnisskrá
Með Víkingi flytur einvalalið tón-
listarmanna kammertónlist á
hátíðinni - píanóleikarinn Ástríð-
ur Alda Sigurðardóttir, Megas,
Einar Jóhannesson klarínettu-
leikari, Stefán Jón Bernharðs-
son hornleikari, fiðluleikararn-
ir Sigrún Eðvaldsdóttir og Ari
Þór Vilhjálmsson, víóluleikarinn
Þórunn Ósk Marínósdóttir, selló-
leikararnir Bryndís Halla Gylfa-
dóttir og Sigurgeir Agnarsson og
Hávarður Tryggvason kontra-
bassaleikari. „Þetta eru miklar
kanónur sem ég hef með mér, allt
rosalega skemmtilegt tónlistar-
fólk. Ég var líka svo heppinn að
ekkert þeirra andmælti þeirri
klikkuðu efnisskrá sem ég valdi
fyrir tónleikana,“ segir Víkingur.
„Hana valdi ég með allt það sem
er skemmtilegast við kammermús-
ík að leiðarljósi. Þessa þversagna-
kenndu togstreitu þess að spila
sundur og saman. Lýðræði og ein-
ræði. Hlýðni og óhlýðni. Ligeti-
horntríóið er frábært dæmi. Í því
er stór og erfiður píanópartur
en jafnvel enn stærri og erfiðari
hornpartur. Og svo er fiðlan þarna
líka, sem er vön því að fá að vera
aðal. Smá fætingur á milli allra,
kannski vegna þessarar óstöðugu
hljóðfæraskipunar. Kvartett stend-
ur traustum fótum í jafnvægi en
svona tríó, þetta er eins og þrífætt
dýr. Skrímsli jafnvel, miðað við
hvað það er erfitt.“
Fólk hugsar of mikið
Verkin sem leikin verða á tón-
leikunum fjórum segir Víkingur
öll eiga það sameiginlegt að vera
skemmtileg og samin á síðustu
120 árum, eða svo. „Þetta er allt
ný músík, samin í heimi sem sætt-
ir sig ekki við breytingarnar sem
urðu á 20. öld. En það þarf ekki að
draga allt í dilka, við reynum að
láta flokkana litlu skipta.“
Víkingur nefnir Megas sem
dæmi um flytjanda á lokatónleik-
unum, sem passar kannski ekki
inn í hina hefðbundnu flokkun.
Þar mun Megas flytja lög sín og
texta, búin fyrir klassísk hljóð-
færi af Þórði Magnússyni, syni
hans. „Annað dæmi er Ravel-
fiðlusónatan, þar sem hinn sér-
kennilega agaða og barokk-kennda
útgáfa Ravels af impressjónism-
anum tekur flipp. Þetta er yndis-
lega ljóðræn tónlist en leikræn
líka, full af stemningu. Svo erum
við með eitt áhættuatriði, þar sem
Bryndís Halla sellóleikari spilar
rafmagnað sóló og allir hinir mús-
íkantarnir leika undir hjá henni.
Þetta er rosalega skemmtileg
útsetning sem Daníel Bjarnason
gerði fyrir okkur.“
Víkingur hefur á tilfinning-
unni að tónlistin sem flutt verður
á Midsummer Music geti gengið
fyrir alla, hvort sem þeir aðhyll-
ist klassík eða popp, eða eitthvað
allt annað. Hann vonast til þess að
sem flestir láti sjá sig á tónleikun-
um, líka þeir sem eru ekki vanir
því að mæta á klassíska tónleika.
„Fólk hugsar allt of mikið. Sér-
staklega reyndar þegar það reyn-
ir að kynna sér nútímatónlist. Það
stressar mann upp og er ekki væn-
legt til nautnar. Fólk á að slaka á
og hlusta. Hitt kemur.“
Ný reynsla að fá að ráða
Ein ástæða þess að Víkingur gat
látið drauminn um að skapa tón-
listarhátíð verða að veruleika var
að hann fékk styrk úr Menningar-
sjóði SUT (Samtaka um tónlistar-
hús) og Rutar Hermanns. „Þetta er
sjóður sem margir greiddu reglu-
lega í af sínu eigin fé á meðan tón-
listarhúsið Harpa var enn þá fjar-
lægur draumur. Það er gott að
byggja á svona fallegum grunni,
um von og þrá fólks til að heyra
góða tónlist. Þetta skiptir máli, því
andi í verkefnum eins og þessum
er mjög mikilvægur.“
Víkingur hefur ekki áður staðið
í skipulagningu tónlistarviðburðar
af þessari stærðargráðu og segir
það skemmtilega reynslu. „Ég
fæ að ráða ansi miklu en er með
pínulítinn og skemmtilegan hóp af
fólki sem hefur verið að vinna með
mér í þessu í 250 prósent vinnu.
Við höfum til dæmis dokúmenter-
að allt ferlið og haft mikinn pre-
sens á netinu. Ég hef tekið þátt í
mörgum ólíkum þáttum, sem ég
fæ ekki að vera með í þegar ég er
að spila fyrir einhvern annan. Það
hefur verið mjög gaman fyrir mig,
að reyna að finna einhvern falleg-
an samhljóm í öllum smáatriðun-
um í kringum þetta.“
Nær óspilandi píanókvintett
Víkingur stefnir að því að gera
Reykjavík Midsummer Music að
árlegum viðburði. Hann ætlar
hins vegar ekki endilega að til-
einka hátíðina kammertónlist.
„Stefnan er að þetta verði ólík-
ar hátíðir, hvað tónlistina varð-
ar. Kannski verður næst meiri
einleikur, kannski líka stærri
bönd. Það getur líka vel verið að
við blöndum meiri sjónrænni list
inn í þetta næst,“ segir Víking-
ur, en tekur fram að þetta sé allt
saman framtíðarmúsík. Það sem
hann hefur hugann við í dag er að
hátíðin sem fram undan er heppn-
ist sem allra best. „Ég er rosa-
lega spenntur, æfi mig langt fram
á nótt og reyni að vakna mjög
snemma.“
Eitt af því sem hann er að tak-
ast á við er píanókvintett breska
tónskáldsins Tómasar Adés, sem
Víkingur frumflytur á Íslandi
á kvöldtónleikum mánudags-
ins. „Þetta er gríðarlega flókið
verk, næstum því óspilandi! Það
er langt síðan ég hef eytt eins
löngum tíma í að komast í gegn-
um tónverk, síðast var það þegar
ég var að æfa mig fyrir Rach-
maninoff númer 3. Svona er þetta
yfirgengilegt prógramm. Það er
hressandi að gera eitthvað yfir-
gengilegt svona af og til.“
holmfridur@frettabladid.is
Með áhættuatriði
á tónlistarhátíð
FINNUR FALLEGAN SAMHLJÓM Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari lét draum verða að veruleika með því að skapa tónlistarhá-
tíðina Reykjavík Midsummer Music. Hann hefur haft gaman af því að finna fallegan samhljóm í öllum smáatriðunum í kringum
hátíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÞJÓÐLEG STEMNING Á ÁRBÆJARSAFNI Venju samkvæmt verða þjóðbúningar í aðalhlutverki í Árbæjarsafni á
þjóðhátíðardag Íslendinga 17. júní. Gestir eru hvattir til að mæta í eigin búningum. Upp úr klukkan 13 munu eigendur glæsivagna
Fornbílaklúbbs Íslands sýna sig á safnsvæðinu og drossíurnar með. Klukkan 16 verða þjóðdansar dansaðir á torginu.