Fréttablaðið - 16.06.2012, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 16. júní 2012 7
Lögfræðingur óskast til starfa hjá H.F. Verðbréfum
H.F. Verðbréf er íslenskt verðbréfafyrirtæki sem starfar á grundvelli starfsleyfis frá FME í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki. Félagið, sem er að stórum hluta
í eigu starfsmanna, var stofnað árið 2003 og er aðili að NASDAQ OMX kauphöllinni í Reykjavík. Þjónusta félagsins tvíþætt. Í fyrirtækjaráðgjöf veita sérfræðingar
félagsins m.a. ráðgjöf við kaup, sölu og samruna fyrirtækja, fjárhagslega endurskipulagningu og fjármögnun. Hjá markaðsviðskiptum þjónustar félagið fagfjárfesta
á sviði verðbréfamiðlunar, útgáfu skuldabréfa ofl. Þá var H.F. Verðbréf brautryðjandi á svið beins markaðsaðgangs (DMA) á Íslandi árið 2006.
Hjá félaginu starfar þéttur hópur sérfræðinga með ólíkan bakgrunn og reynslu af innlendum fjármálamarkaði. Kjörorð félagsins eru: Heilindi. Fagmennska.
Nánari upplýsingar um félagið, verkefni og viðskiptavini er að finna á heimasíðunni, www.hfv.is
Um er að ræða krefjandi, ábyrgðarfullt og spennandi starf fyrir réttan aðila sem mun vinna náið með framkvæmdastjóra að uppbyggingu og rekstri starfsleyfisskylds
verðbréfafyrirtækis. Þá mun viðkomandi einnig veita tekjusviðum félagsins lögfræðiráðgjöf m.a. á sviði verðbréfamarkaðsréttar, fjármuna- og félagaréttar.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Fullum trúnaði heitið.
Nánari upplýsingar veitir Andri Guðmundsson, framkvæmdastjóri.
Umsækjendur sendi starfsumsókn og ferilskrá á netfangið andri@hfv.is. Umsóknarfrestur er til og með 25. júní.
Ábyrgðarsvið og helstu verkefni
» Yfirumsjón með og ábyrgð á lögfræðilegum viðfangsefnum félagsins
» Lögfræðiráðgjöf til stjórnenda á sviði verðbréfamarkaðs-,
fjármuna- og félagaréttar
» Samningagerð
» Regluvarsla
» Samskipti við eftirlitsstofnanir
» Þátttaka í stefnumótun og uppbyggingu félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
» Yfirgripsmikil þekking og reynsla á lögfræði fjármálamarkaða
» 5-7 ára reynsla af sambærilegum störfum er æskileg
» Meistara- og/eða embættispróf í lögfræði
» Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í hóp
» Skipulagshæfni og færni í verkefnastjórnun og framsetningu ritaðs máls
» Frumkvæði í starfi og hæfni til að vinna sjálfstætt
Ím
yn
d
u
n
ar
af
l /
H
FV
/
L
F
12
0
6
Þroskaþjálfar – iðjuþjálfar – félagsráðgjafar
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir
laus störf til umsóknar:
• Stöðugildi þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa
Á starfsstöð dagvistunar, hæfingar, atvinnutengdra úrræða og
afþreyingar fatlaðra í Stykkishólmi
• Stöðugildi ráðgjafa í félagsþjónustu sveitarfélaga
Verksvið: Málefni fatlaðs fólks og önnur félagsþjónusta
sveitarfélaga
Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun, fyrri störf og umsagn-
araðila berist til undirritaðra sem jafnframt veita frekari upp-
lýsingar um störfin: Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður,
sveinn@fssf.is, s. 861 7802 Hanna Jónsdóttir, þroskaþjálfi,
hanna@fssf.is, s. 891 8297
Skrifstofa FSS: Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ , - sími 430 7800
heimasíða FSS: www.fssf.is.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2012
FÉLAGS- OG
SKÓLAÞJÓNUSTA
SNÆFELLINGA
Sóltun 26
105 Reykjavik
527 6660
www.MeetinReykjavik.is
STARFIÐ FELST Í KYNNINGU OG MARKAÐS-
SETNINGU Á RÁÐSTEFNUBORGINNI
REYKJAVÍK OG INNIHELDUR:
· Fjölbreytt verkefni í tengslum við samskipti
og samstarf við erlenda sem innlenda
fjölmiðla og ferðaþjónustuaðila.
· Þátttöku í undirbúningi og stjórnun innlendra
og erlendra sýninga og kynningarviðburða.
· Samstarf við auglýsingastofur.
· Textagerð á íslensku og erlendum tungu-
málum í tengslum við greinaskrif, almennt
markaðsefni og fleira.
Athygli er vakin á að starfið er mjög fjölbreytt, krefst ferðalaga, frumkvæðis, metnaðar, útsjónar-
semi, og á stundum vinnuframlags utan hefðbundins vinnutíma. Umsóknarfrestur er til og með
25. júní nk.
Vinsamlega sendið umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf til STRÁ á netfangið:
stra@stra.is. Guðný Harðardóttir hjá STRÁ veitir nánari upplýsingar um starfið í síma 588 3031,
sjá nánar www.stra.is
MEET in REYKJAVIK er með það að markmiði að stórauka vægi ráðstefnumarkaðarins í Reykjavík
með markvissri markaðsetningu erlendis í nafni meðal annars Reykjavíkurborgar, Icelandair Group
og Hörpu ásamt fjölda annarra fyrirtækja. Vefsíða: www.meetinreykjavik.is
HÆFNISKRÖFUR ERU:
· Háskólamenntun og a.m.k. tveggja ára
starfsreynsla, er nýtist í starfi.
· Reynsla af ráðstefnu, funda- og hvataferða-
þjónustu og þekking á viðburðahaldi er skilyrði.
· Víðtæk reynsla af markaðssetningu og
kynningarstörfum erlendis.
· Mikil færni í íslensku og framúrskarandi
enskukunnátta í tali og riti, en vald á þriðja
tungumáli er kostur.
· Að geta unnið undir álagi og sinnt mörgum
viðfangsefnum samtímis ásamt því að eiga
auðvelt með að koma fram opinberlega.
MARKAÐSSTJÓRI
sími: 511 1144