Fréttablaðið - 16.06.2012, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGFjármál heimilanna LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 20122
Markmið og tilgangur Vaxta-greiðsluþaksins er að létta greiðslubyrði óverð-
tryggðra húsnæðislána í óhagstæð-
ara vaxtaumhverfi, að auðvelda við-
skiptavinum að vera á óverðtryggð-
um lánaskilmálum þrátt fyrir hærra
vaxtastig og að lokum að minnka
óvissu viðskiptavina um greiðslu-
byrði óverðtryggðra húsnæðislána,“
segir Jón Finnbogason, aðstoðar-
framkvæmdastjóri viðskiptabanka-
sviðs Íslandsbanka.
„Grunnvirkni Vaxtagreiðslu-
þaksins er þríþætt. Í fyrsta lagi,
ef vextir lánsins hækka umfram
skilgreint vaxtagreiðsluþak tekur
vaxtagreiðslan mið af því þaki en
sú upphæð sem er umfram leggst
við höfuðstól lánsins. Í öðru lagi
að vextir sem leggjast við höfuðstól
koma til greiðslu á þeim gjalddög-
um sem eftir eru af láninu. Í þriðja
lagi að lántakandi velur vaxta-
greiðsluþakið sjálfur sem þó verður
að vera yfir 7,5% ársvöxtum. Þannig
getur viðskiptavinurinn stillt vaxta-
greiðsluþakið af miðað við greiðslu-
getu sína.
Þjónustan er valkvæð hvort held-
ur sem er fyrir þá sem eru nú þegar
með óverðtryggð húsnæðislán eða
nýja lántakendur.“
Ólíkir kostir og gallar verð-
tryggðra og óverðtryggðra lána
Bæði verðtryggð og óverðtryggð lán
hafa kosti og galla sem þarf að vega
og meta eftir því hvert markmiðið er
hverju sinni. „Verðtryggð húsnæðis-
lán eru með léttari greiðslubyrði
í upphafi lánstímans en þyngjast
eftir því sem höfuðstóll hækkar
vegna verðbóta. Þau hafa stöðuga
greiðslubyrði af því að raunvextir
eru greiddir jafnóðum en verðbæt-
ur leggjast við höfuðstól og dreif-
ast á lánstímann. Eignamyndun
er hægari hjá þeim sem hafa verð-
tryggð lán, hluti fjármagnskostn-
aðar bætist við höfuðstól lánsins
í hvert skipti sem hann fellur til,
það er að segja verðbæturnar. Hjá
lántaka verðtryggðs láns er mikil-
vægt að kaupmáttur hans og raun-
verð íbúðarhúsnæðis haldi. Óverð-
tryggðu húsnæðislánin hafa þyngri
greiðslubyrði í upphafi lánstím-
ans en þau verðtryggðu og sveifl-
urnar í greiðslubyrðinni eru meiri.
Þar eru nafnvextir greiddir jafnóð-
um, vaxtabreytingar hafa því strax
áhrif á greiðslur lántakandans.
Hins vegar er eignamyndun hrað-
ari hjá þeim sem hafa þessi lán.
Fjármagnskostnaður er greiddur að
fullu í hvert skipti sem hann fellur
til og því engu bætt við höfuðstól.“
Íslandsbanki býður viðskipta-
vinum upp á að velja hvernig sam-
setningu af óverðtryggðum og verð-
tryggðum lánum viðkomandi tekur.
„Með Vaxtaþakinu hafa viðskipta-
vinir nú raunverulegt val milli
verðtryggðra og óverðtryggðra
húsnæðis lána þar sem óvissa um
framtíðar greiðslubyrði hefur verið
takmörkuð. Það er skylda okkar að
bjóða upp á mismunandi leiðir til
fjármögnunar. Það sem er best fyrir
einn er ekki endilega best fyrir ein-
hvern annan,“ segir Jón.
Valkostur sem takmarkar óvissu í
greiðslubyrði óverðtryggðra lána
Íslandsbanki býður upp á nýja þjónustu fyrir viðskiptavini sína. Vaxtaþak veitir þeim sem hafa óverðtryggð lán skjól fyrir toppum í
greiðslubyrði við hækkun vaxta. Með Vaxtaþakinu hafa viðskiptavinir nú raunverulegt val milli verðtryggðra og óverðtryggðra lána.
Jón segir það skyldu bankans að bjóða upp á mismunandi leiðir til fjármögnunar. Það sé ólíkt milli einstaklinga hvers konar lán henti
hverju sinni. MYND/ERNIR
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Ný
þjónusta
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
2
7
3
0
Við bjóðum
vaxtagreiðsluþak
yfir höfuðið
Vaxtabreytingar geta valdið sveiflum í greiðslubyrði óverðtryggðra
húsnæðislána. Vaxtagreiðsluþak Íslands banka veitir skjól ef vextir
hækka. Þá jafnast greiðslu byrðin en það sem fer upp fyrir þakið
bætist við höfuð stól og dreifist á lánstímann.
Kostir vaxtagreiðsluþaks
· Léttir greiðslubyrði ef vextir hækka
· Dregur úr óvissu og veitir öryggi
· Lánstími lengist ekki
· Óverðtryggð lán geta hraðað eignamyndun
Ókostir vaxtagreiðsluþaks
· Hluta vaxtagreiðslunnar er frestað
· Höfuðstóll hækkar ef vextir lánsins eru umfram
vaxtagreiðsluþakið
· Hærri höfuðstóll hækkar heildarvaxtakostnað lánsins
Allar upplýsingar er að finna á www.islandsbanki.is
Íslandsbanki hvetur alla til að kynna sér
nánar skilmála vaxtagreiðsluþaksins og
þær tegundir lána sem í boði eru og taka
ákvörðun að vandlega athuguðu máli.