Fréttablaðið - 16.06.2012, Side 78
16. júní 2012 LAUGARDAGUR46
krakkar@frettabladid.is
Landnámshænan Auður, sem
á heima á sveitabæ á Suður-
landi, er enginn venjulegur
fugl. Hún er reyndar hálfgerður
furðufugl. Þegar eigandi henn-
ar setur korn eða annað góð-
gæti fyrir framan hana hoppar
hún og fær gott í gogginn að
launum. Hún hoppar að vísu
ekki hátt, ekki nema um milli-
metra frá jörðinni, en það þykir
einstaklega fyndið og forvitni-
legt á að horfa.
Þar með eru brögð hinnar
skynsömu Auðar ekki upp-
talin. Þegar hún er úti í garði
og finnur til svengdar goggar
hún í eldhúsgluggann, þangað
til einhver kemur út og gefur
henni að borða. Hún kann sér-
staklega vel að meta Rice
Crispies.
Landnámshænur er nafn yfir
þá tegund sem hefur verið á
Íslandi lengst allra hænsna.
Þær eru minni en margar
aðrar hænur í útlöndum, en
harðgerar og duglegar. Þær
voru á tímabili í útrýming-
arhættu, en eru það ekki
lengur, þökk sé aðdáendum
hænunnar víða um land.
Það er ekki víst að allar land-
námshænur geti leikið listir
eins og Auður, en þær eru
þó þekktar fyrir að hægt er
að kenna þeim ýmislegt. Þær
hænast líka margar hverjar
að mannfólki og þykja mjög
skemmtilegir fuglar.
Landnámshæna leikur kúnstir
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Hafið þið heyrt um maraþonhlauparann sem hljóp í spik?
Eða hafið þið heyrt um bakarann sem bakaði bara
vandræði?
Þið hljótið að hafa heyrt um trommarann sem sló í gegn?
Og rafvirkjann sem var í stuði?
Svo ég tali nú ekki um rakarana tvo sem fóru í hár
saman?
svar: A OG 3, B OG 4, D OG 1, E OG 2.
Bragi Halldórsson
20
A
B
D
E
„Hér eru fjórar tegundir fugla sem allar eru með sérhæfðan gogg til að borða
mismunandi fæðu“ las Lísaloppa. „Getur þú parað saman hvern fugl þá
fæðu sem hann er sérhæfður í að borða.“ Kata rýndi í myndina smá stund og
sagði svo. „Þetta væri kanski auðveldara ef þetta væru íslenskir fuglar.“ „En
við þurfum bara að horfa á gogginn á þeim og þá eigum við að geta séð hvaða
goggur er bestur til að borða mismunandi mat, sagði Lísaloppa. „Allt í lagi,“
sagði Kata. „Ég þekki svo sem ekkert íslenska fugla betur en erlenda.
Getur þú hjálpað þeim að para saman fuglsgoggana og viðeigandi fæðu?
1
2
3
4
Fáðu þér góða
mjólkurskvettu!
www.ms.is
Í TILEFNI AF hundrað ára afmæli skátastarfs á Íslandi hafa skátar tekið höndum saman við Landsvirkjun um upp-
setningu á sýningunni Undraland – Minningar frá Úlfljótsvatni, sem tileinkuð er starfsemi skáta á Úlfljótsvatni síðustu
sjö áratugina. Á sýningunni gefst gestum kostur á að skyggnast inn í ævintýraheim skáta við Úlfljótsvatn og þess fjöl-
breytta starfs sem þar fer fram. Sýningin verður opnuð í Ljósafossstöð klukkan 14 í dag. Í kjölfar opnunarinnar verður
boðsgestum boðið í skátakakó í Gilwell-skálanum klukkan 15.30.
Stígvélaði kötturinn gæti lifað á rjómablandi, besti vinur hans heitir Ari og hann
heldur með Hollandi á Evrópumóti karla í fótbolta.
SKEMMTILEGAST AÐ
HEIMSÆKJA KRAKKA
1. Þú ert alltaf kallaður Stíg-
vélaði kötturinn, en hvað
heitir þú fullu nafni? Ég var
nefndur Don Depill Simba
við fæðingu en það vita það
mjög fáir.
2. Hvað ertu gamall? Þetta
finnst mér óviðeigandi
spurning. Ég get þó sagt að
ég hef slitið kettlingaskónum
en hef þó ekki enn þurft að
fara inn á Kattholt.
3. Hvar fæddist þú? Sú dýrð-
arstund átti sér stað milli
fullra hveitipoka, undir ofn-
inum í mylluhúsi nokkru í
Ævintýraskóginum.
4. Hvort gengurðu í gúmmí-
eða leðurstígvélum? Leður!
Að sjálfsögðu.
5. Harðfisk eða rjóma? Ég gæti
lifað á rjómablandi.
6. Hvað finnst þér best að
borða? Sardínur með þeytt-
um rjóma, mjá, ég fæ vatn í
munninn.
7. Hver er besti vinur þinn?
Ari, engin spurning.
8. Hvert er uppáhaldsævintýr-
ið þitt fyrir utan Stígvélaða
köttinn? Ætli ég verði ekki
að segja Mjallhvít og dverg-
arnir sjö, Hans klaufi, Rauð-
hetta og Galdrakarlinn í Oz.
9. Ertu á Facebook? Já! Ásamt
hinum vinum mínum í Leik-
hópnum Lottu.
10. Hvað er það skemmtileg-
asta sem þú gerir? Ferðast
um landið og heimsækja
skemmtilega krakka.
11. Kanntu góðan brandara?
Marga! Hér kemur einn
frábær. Einu sinni voru
tveir kettir á leiðinni í
teygjustökk, þá sagði annar
„mjá“ og hinn svaraði „akk-
úrat það sem ég ætlaði að
segja“. Hahahahaha!
12. Verður þú aldrei bílveikur
á ferðalagi með Leikhópn-
um Lottu? Nei, það hef ég
aldrei orðið. Hins vegar
verða Hans hátign og Fríða
prinsessa oft veik enda
ekki vön því að ferðast með
almúganum.
13. Með hvaða íþróttaliði held-
urðu? Breiðabliki. Þó Fylk-
ir sé með flottustu bún-
ingana.
14. Með hverjum heldurðu á
EM? Hollandi. Þeir bera
af í appelsínugula litnum.
Appelsínugulur er sko
uppáhaldsliturinn minn!