Fréttablaðið - 16.06.2012, Page 93

Fréttablaðið - 16.06.2012, Page 93
LAUGARDAGUR 16. júní 2012 61 Bíó ★ ★★★★ Piranha 3DD Leikstjórn: John Gulager Leikarar: Danielle Panabaker, Matt Bush, David Koechner, Chris Zylka, Katrina Bowden, Gary Busey, Christopher Lloyd, David Hasselhoff Manstu eftir bekkjarbróður þínum úr grunnskóla sem endursagði alla brandara úr kvikmyndum og sjón- varpsþáttum sem hann sá? Brand- ara sem voru fyndnir í sinni upphaf- legu mynd en þegar hann þuldi þá upp á slappri unglingaensku leið þér skringilega og þig langaði að fara. Kvikmyndin Piranha 3DD er þessi strákur. Upprunalegi brandarinn var hin þrælskemmtilega Piranha 3D sem kom út fyrir tveimur árum og gekk fram af sjóuðustu splatterhundum með hamslausum (en hlægilegum) blóðsúthellingum og ofbeldi. Hinn franski Alexandre Aja leikstýrði henni með glott á vörum og sögu- lokin bentu til þess að framhalds- mynd væri á leiðinni. Aja sneri sér hins vegar að öðrum verkefnum og þeir sem halda á spöðunum nú vita ekkert hvað þeir eru að gera. Tafsandi og stamandi reyna þeir að koma gamla brandaranum til skila, en allt kemur fyrir ekki. Að vísu var gaman að sjá Gary gamla Busey étinn af pírönum og þreföldun dolly zoom-skotsins úr Jaws er húmor fyrir lengra komna, en fleiri voru ljósu punktarnir ekki. Piranha 3DD er í grunninn eins og fyrirrennarinn, en munurinn er sá að framhaldið er í höndum ófynd- inna manna. Útkoman er því ekki upp á marga fiska. Þá eru brell- urnar verri, leikararnir geta ekki neitt og hin óhóflega notkun nektar verður að lokum merkilega niður- drepandi. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Þú segir ekki sama brandarann tvisvar. Tafsandi og stamandi MISHEPPNUÐ Piranha 3DD er ekki upp á marga fiska. STAÐALL OPINN MORGUNVERÐARFUNDUR Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK ÞRIÐJUDAGINN 19. JÚNÍ KL. 8-10. Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og velferðarráðuneytið hafa frá því í árslok 2008 haft forgöngu um gerð staðals um launajafnrétti kynjanna. Verkið hefur verið unnið undir leiðsögn Staðlaráðs Íslands og með aðkomu fjölmargra aðila. Frumvarp um jafnlaunastaðal er tilbúið til kynningar og fer nú í hefðbundið umsagnarferli samkvæmt lögum um Staðlaráð Íslands. Umsagnarferlinu lýkur 20. september næstkomandi. Allir velkomnir. Ekkert þátttökugjald. Fyrirspurnir Öguð vinnubrögð við stjórnun launamála Hildur Jónsdóttir formaður tækninefndar um jafnlaunastaðal Flokkun starfa Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðingur Launagreiningar Anna Borgþórsdóttir Olsen hagfræðingur Íslenskur og evrópskur réttur á sviði launajafnréttis Elsa S. Þorkelsdóttir lögfræðingur Umsagnarferlið og úrvinnsla Guðrún Rögnvaldardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ÁVÖRP: Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri SA Dagskrá Christian Bale segir að það hafi næstum því liðið yfir sig vegna þess hversu erfitt var að anda í gegnum Batman-búninginn. Bale leikur ofurhetjuna í þriðja sinn í nýjustu myndinni, The Dark Knight Rises, sem verður frum- sýnd í sumar. Í myndinni klæðist hann þröngum leðurbúningi, grímu og hálskraga í hlutverki Batmans. „Þegar það er kalt í veðri verður hálskraginn mjög þröngur. Eftir nokkrar tökur var ég farinn að reyna að anda í gegnum nefið. Ég var farinn að sjá stjörnur og sagði: „Þið verðið að taka þetta af mér“,“ sagði Bale við tíma- ritið Empire. Hann bætti því við hann hafi nokkrum sinnum verið sleginn í andlitið við upptökur á slagsmálaatriðum í myndinni. Gat varla andað ÞRÖNGT Bale átti erfitt með að anda í Batman-búningnum sínum. Söngkonan Rihanna hefur tekið vel á því í ræktinni undanfarið og fylgt stífu æfingaprógrammi. Vegna þessa hefur hún lést veru- lega og kveðst ekki ánægð með breytinguna á vaxtarlagi sínu. „Ég er í stærð 0 og er ekki ánægð með það! Ég gekk alltof langt og vil frekar vera í aðeins meiri holdum. Ég vil fá gamla rassinn minn aftur!“ Segir stjarnan sem er heimsfræg ekki aðeins fyrir söng sinn heldur einnig flottan og þrýstinn líkama og ætlar sér að fá meira hold á beinin á næst- unni. Rihanna vill stærri rass OF GRÖNN Rihanna kveðst hafa gengið of langt í líkamsræktinni og vill endur- heimta gamla rassinn sinn. NORDICPHOTOS/GETTY Hljómsveitin Bon Iver gefur út nýja EP-plötu í næstu viku. Hún hefur að geyma sjö lög sem voru tekin upp á tónleikum, þar á meðal útgáfu sveitarinnar á Bjarkarlaginu Who Is It? Meðal annarra laga á plötunni er Holo- cene sem kom nýlega út á smá- skífu. Það er einnig að finna á síðustu plötu Bon Iver sem kom út í fyrra. Hljómsveitin byrjar tónleika- ferðalag sitt um Evrópu 5. júlí í Póllandi. Tveimur dögum síðar taka við tónleikar á Hróarskeldu- hátíðinni, þar sem Björk treður einmitt líka upp. Björk á plötu Bon Iver NÝ PLATA Justin Vernon og félagar í Bon Iver syngja Bjarkarlag á nýrri plötu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.