Fréttablaðið - 23.06.2012, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 23. júní 2012 13
www.kopavogur.is
Leikskólinn Rjúpnahæð
KÓPAVOGSBÆR
Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og KÍ
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí.
Upplýsingar gefa Hrönn Valentínusdóttir og Margrét Bjarnadóttir í síma 570-4240 og á netfanginu rjupnahaed@kopavogur.is
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Leikskólinn Rjúpnahæð auglýsir stöðu leikskólakennara lausa til umsóknar.
Leikskólinn Rjúpnahæð stendur við Rjúpnasali í Salarhverfi í Kópavogi. Leikskólinn tók til starfa
1. júlí 2002 og er sex deilda, þrjár yngri deildir og þrjár eldri deildir, 119 börn samtímis í leikskólanum.
Hugmyndafræði leikskólans byggir á hugsmíðahyggju og meginmarkmið okkar er sjálfræði. Við vinnum
með hugtök sem snúa að lýðræði, sjálfsbjargarviðleitni, sjálfstæði o.fl. http://rjupnahaed.kopavogur.is/Laus er staða tómstunda- og félagsmálafræðings hjá Norðurþingi á
Húsavík. Leitað er að metnaðarfullum, jákvæðum og áhugasömum
einstaklingi sem er tilbúinn að taka virkan þátt í þróun og
starfsemi tómstunda- og æskulýðsmála í Norðurþingi.
Starfssvið
• Umsjón með frístundaheimilinu Túni, starfsemi félagsmiðstöðva
og vinnuskóla Norðurþings
• Koma að mótun stefnu og skipulagi tómstunda- og félagsmála í
Norðurþingi
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í tómstunda- og félagsmálafræðum eða sambæri-
leg menntun sem nýtist í starfinu.
• Starfsreynsla með börnum og ungmennum
• Stjórnunarreynsla æskileg
• Samskiptafærni, ríkulegur þjónustuvilji og lipurð í mannlegum
samskiptum
• Skipulagshæfileikar, frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Upplýsingar um starfið veitir Jóhann Rúnar Pálsson tómstunda-
og æskulýðsfulltrúi Norðurþings í síma 464-6100,
netfang joipals@nordurthing.is.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2012
Tómstunda- og
félagsmálafræðingur á Húsavík
Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu
mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.
Spennandi starf í
skemmtilegu umhverfi
Starf á verkstæði
www.avis.iswww.budget.is
Iðjuþjálfi óskast
Hrafnista Reykjavík
Deild iðjuþjálfunar og félagsstarfs óskar
eftir að ráða iðjuþjálfa til starfa í ágúst 2012.
Helstu verkefni:
• Hópastarf á hjúkrunardeildum heimilisins. Áhersla
lögð meðal annars á hugmyndafræði Jane Verity/
Lífsneistann og endurminningavinnu.
• Þjálfun heimilismanna
• Fræðsla og ráðgjöf fyrir heimilismenn og starfsfólk
• Ýmis þverfagleg vinna
Menntunar- og hæfniskröfur:
Próf í iðjuþjálfun frá skóla viðurkenndum af Heims-
samtökum iðjuþjálfa (WFOT) og með íslenskt
starfsleyfi og löggildingu. Krafist er góðrar hæfni í
mannlegum samskiptum, frumkvæðis og sjálfstæðis
í vinnubrögðum.
Markmið Hrafnistu er að:
• vera leiðandi í umönnun og þjónustu við aldraða
• stuðla að andlegri, líkamlegri og félagslegri
vellíðan heimilisfólks
• efla faglega þekkingu starfsfólks
• auka starfsánægju og bæta starfsumhverfi
starfsfólks
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Iðjuþjálfa-
félags Íslands og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðis-
þjónustu og stofnanasamningi Iðjuþjálfafélags
Íslands og Hrafnistu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurbjörg
Hannesdóttir, deildarstjóri iðjuþjálfunar og félags-
starfs, sími: 5859383 / 6939559.
Netfang: sigurbjorg.hannesdottir@hrafnista.is
Hrafnista Reykjavík/Hafnarfjörður/Kópavogur,
sími: 5859500- www.hrafnista.is