Fréttablaðið - 23.06.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 23.06.2012, Blaðsíða 6
23. júní 2012 LAUGARDAGUR6 Þráir þú dýpri svefn? Heilsurúm í sérflokki 3,5% lántökugjald.* 12 mánaða vaxtalaus k jör D Ý N U R O G K O D D A R Tilboðsdagar í júní! Nú er bjart Öllum rúmum fylgir DayDream® svefngríma Tempur® Cloud heilsurúm 180 x 200 cm TILBOÐ 375.840,- Verð áður 469.800,- 20% afsláttur NOREGUR Tíu vikna réttar höldum yfir hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik lauk fyrir rétti í Ósló í gær. Breivik hélt loka- ávarpið í réttarhöldunum þar sem hann krafðist þess að vera látinn laus og hélt því fram að sagan myndi hreinsa hann af áburði. Fjölmargir áhorfendur í salnum yfirgáfu hann áður en Breivik hóf að tala. Breivik ávarpaði réttinn og ræddi um allt það sem honum þykir rangt í heiminum, til að mynda það að fólk sem ekki væri upprunnið í Noregi syngi fyrir hönd landsins í Eurovision og um kynlífshegðun sögupersóna í þátt- unum Sex and the City. Þá hélt hann því fram að skoðanasyst- kini sín stæðu á bak við sprengi- efni sem fundust við kjarnorku- ver í Svíþjóð í vikunni og varaði við mun stærri hryðjuverkum sem væru í undirbúningi. Hann fór yfir voðaverk sín og sagði árásir sínar þann 22. júlí í fyrra hafa verið fyrirbyggjandi og gerðar til að vernda innfædda Norðmenn. Hann myrti sem kunnugt er 69 manns í Útey og varð átta að bana með sprengju í Ósló. Fyrr um daginn hafði verjandi hans, Geir Lippestad, reynt að færa rök fyrir því að skjól- stæðingur hans væri sakhæfur. Hann fór einnig fram á að Brei- vik yrði sýknaður af ákærunni. „Hann gerði sér grein fyrir því að það væri rangt að drepa en hann valdi að drepa. Það er það sem hryðjuverkamenn gera. Til- gangurinn helgar meðalið. Maður skilur það ekki ef maður skilur ekki menningu öfgahægrimanna,“ sagði hann. Breivik væri því ekki haldinn ranghugmyndum þegar hann segðist vera í baráttu um að vernda Noreg og Evrópu fyrir múslimum. Það væri hluti af stjórnmálaskoðunum hans, sem aðrir öfgahægrimenn deildu. Fimm dómarar munu nú dæma í málinu og úrskurða hvort Brei- vik teljist sakhæfur eða ekki. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur sálfræðingum ekki borið saman um andlegt ástand hans. Saksóknarar krefjast þess að hann verði fundinn ósakhæfur og verði því vistaður á geðsjúkra- húsi svo lengi sem hann er talinn veikur og hættulegur öðrum. Það gæti þýtt að hann yrði lokaður þar inni til æviloka. Verði hann dæmdur sakhæfur fær hann lík- lega þyngsta mögulega dóm, 21 ár í fangelsi, með möguleika á fram- lengingu svo lengi sem hann er talinn ógn við samfélagið. Dómur verður að öllum líkind- um kveðinn upp þann 24. ágúst. thorunn@frettabladid.is Krafðist sýknu við lok réttarhaldanna Réttarhöldunum yfir hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik lauk í gær. Hann hélt lokaávarpið í réttarhöldunum og fjöldi áhorfenda gekk út. Breivik vill vera metinn sakhæfur en jafnframt sýknaður af voðaverkunum. LOKAORÐIN Geir Lippestad krafðist þess fyrir dómi að Breivik yrði sýknaður, en aðal- krafan var samt sem áður að hann yrði metinn sakhæfur. Eftir að Lippestad lauk máli sínu fékk Breivik að ávarpa salinn, og gengu fjölmargir áhorfendur úr salnum áður en hann hóf að tala. NORDICPHOTOS/AFP NEYTENDUR Það er dýrast að kaupa aðrar vörur en lyf í Apótekaranum á Akureyri. Skip- holtsapótek fylgir fast á hæla Apótekarans og er með næst- dýrustu vörurnar á landinu. Lægsta verðið var oftast í Lyfjum og heilsu á Selfossi. Þetta kemur fram í nýrri verðlagskönnun sem Alþýðusambands Íslands gerði fyrr í vikunni. Mesti verðmunurinn reyndist vera á bossakreminu Lansinoh í 85 gramma umbúðum. Kremið var dýrast á 2.819 krónur í Urðar- apóteki á Vínlandsleið en ódýrast í Reykjavíkur apóteki á Seljavegi á 1.665 krónur. Munurinn nam 144 prósentum. Í könnuninni var sólarvörn sérstaklega skoðuð og reyndist almennt 20 til 40 prósenta verð- munur á hæsta og lægsta verði. Sem dæmi má nefna sólarvörn frá Eucerin (30 UVA, 150 ml) sem var dýrust á 3.133 krónur í Lyfjavali Álftamýri en ódýrust á 2.375 krónur í Akureyrarapóteki Kaupangi. Verðmunurinn var því 32 prósent. Árbæjarapótek neitaði að taka þátt í könnuninni. - ktg Verðkönnun Alþýðusambands Íslands: 144% verðmunur á bossakremi APÓTEK Lyf og heilsa á Selfossi var oftast með lægsta verðið. VÍSINDI Efnafræðilegar rannsókn- ir á leifum af ílátum sem talin eru um 7.000 ára gamlar sýna að fólk í Norður-Afríku var byrjað að nýta sér mjólk úr nautgrip- um mun fyrr en áður hefur verið sýnt fram á, mögulega til að bregðast við þurrkum á svæðinu. Ílátin fundust í Líbíu, og stað- festa rannsóknir að þau voru notuð til að geyma mjólk eða mjólkurafurðir. Áður voru elstu staðfestu munirnir sem sýndu fram á notkun mjólkur úr naut- gripum um 2.500 ára gamlir. - bj Rannsaka 7.000 ára fornleifar: Elstu merki um notkun á mjólk LÖGREGLUMÁL Egill Einarsson vill fá skýringar á því hvers vegna mál hans tók jafn langan tíma að fara í gegn um kerf- ið og raun bar vitni. Í yfirlýs- ingu frá Agli segir að orð margra á net- inu og víðar í kring um málið ættu að vera fólki umhugs- unarefni. „Háskólakennarar, rit- höfundar, embættismenn, stjórn- málamenn og fjölmargir aðrir gengu miklu lengra en eðlilegt getur talist, svo mjög að á tíma- bili fékk ég það hreinlega á til- finninguna að það væri einlæg von nokkurra þeirra sem dóm- harðastir voru, að nauðgun hefði átt sér stað!“ Egill hefur alla tíð lýst yfir sakleysi sínu og unnustu sinnar. - sv Yfirlýsing frá Agli Einarssyni: Gagnrýnir orð fólks á netinu EGILL EINARSSON SVEITARSTJÓRNARMÁL Íbúum í Garðabæ og á Álftanesi gefst kostur á að kjósa um sameiningu sveitarfélaganna þann 20. októ- ber næstkomandi. Samþykkt var á fundum bæjarstjórnanna beggja bókun þess efnis á fimmtudag. Tvær umræður um álit samstarfs- nefndar um sameiningu sveitar- félaganna hafa farið fram sam- kvæmt lögum. Atkvæðagreiðslan mun fara fram samhliða þjóðar- atkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga. Bæjarstjórnir sveitarfélaganna eru sammála um að sameining sveitarfélagana sé menningar- lega, skipulagslega og rekstrar- lega hagkvæmur kostur. Tillögurnar verða kynntar íbúum með minnst tveggja mán- aða fyrirvara. - bþh Dagsetning ákveðin: Kosningar um sameiningu ÁLFTANES Sveitarfélagið hefur átt í fjár- hagserfiðleikum eftir efnahagshrunið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GRÆNLAND Suðurkóreskir fjár- festar hafa sýnt áhuga á að kaupa stóran hlut í Kvanefjeld-námunni á Grænlandi. Þetta kemur fram á vef Berlingske. Á vefnum er því haldið fram að hópurinn sé reiðubúinn að veita sem svarar 320 milljörðum íslenskra króna í námuna. Í námunni má finna ýmsar gerðir af málmum sem mikilvæg- ir eru í hátækniiðnaði, en einnig er þar töluvert magn af úrani. Málið þykir hápólitískt, því með fjárfestingunni yrði stór hluti af grænlensku hagkerfi háður erlendum fjárfestum. Einnig þykir málið vafasamt af öryggisástæðum vegna úransins. - ktg Fjárfestar frá Suður-Kóreu: Ásælast námur á Grænlandi BL innkallar jeppa BL hefur innkallað Nissan Navara (D40) og og Nissan Pathfinder (D51). Ástæðan er galli í útbúnaði á bílstjórasæti sem getur leitt til þess að stjórnborð fyrir sætisstillingar verður óvirkt. Navara-bifreiðarnar sem innkallaðar eru voru framleiddar á tímabilinu 30. maí 2005 til 29. september 2009 og Pathfinder- bifreiðarnar frá 1. nóvember 2004 til 5. nóvember 2009. Um er að ræða 313 bifreiðar. NEYTENDAMÁL Endurvinnur þú rusl? Já 57,5% Nei 42,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlar þú að lesa glæpasögu í sumar? Segðu þína skoðun á Visir.is KJÖRKASSINN Hann gerði sér grein fyrir því að það væri rangt að drepa en hann valdi að drepa. Það er það sem hryðjuverkamenn gera. GEIR LIPPESTAD VERJANDI BREIVIKS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.