Fréttablaðið - 23.06.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 23.06.2012, Blaðsíða 26
23. júní 2012 LAUGARDAGUR26 Hinn umdeildi Íslandsvinur Hollywood-stórstjarnan Tom Cruise er staddur hér á landi ásamt fjölskyldu sinni við tökur á kvikmyndinni Oblivion. Kjartan Guðmundsson rifjaði upp nokkrar af kvikmyndum Cruise og einnig heitkonurnar, orðrómana og uppátækin á ferlinum. Tom Cruise hefur þrisvar verið tilnefndur til Óskarsverðlauna, án þess þó að vinna til verðlaunanna: Árin 1990 og 1997 hlaut hann tilnefningar sem besti leikari í aðalhlut- verki fyrir myndirnar Born on the 4th of July og Jerry Maguire. Árið 2000 var hann svo tilnefndur sem besti leikari í aukahlut- verki fyrir frammistöðu sína í Magnolia. Þrisvar tilnefndur til Óskarsins A frek Tom Cruise á hvíta tjaldinu hafa oft og tíðum fallið í skuggann af uppátækjum hans utan sviðs sem þykja undarleg, sérstaklega í seinni tíð. Árið 2005 var sérstaklega slæmt í þessu tilliti og varð þess valdandi að vinsældir leikarans minnkuðu talsvert hjá almenningi. Höfðu og margir á orði að Cruise væri við það að ganga af göflunum, þótt ekkert í þá veru fengist beinlínis staðfest. Eftirminnilegasta atvikið er vafalítið þegar Cruise var gestur í spjallþætti Opruh Winfrey í maí árið 2005 og hafði nýverið hafið sam- band sitt við Katie Holmes. Svo ánægður virtist Cruise vera með lífið og tilveruna þennan dag að hann hoppaði og skoppaði um leik myndina, þar á meðal ítrekað ofan á drapplitaðan Opruh-sófann, fór niður á annað hnéð og játaði ást sína á Katie hvað eftir annað áður en hann stökk baksviðs og náði í sína heittelskuðu í græna herbergið baksviðs. Þessar æfingar leikarans hefðu væntanlega ekki vakið jafn gríðar- lega athygli ef um hvern annan meðaljón hefði verið að ræða, en vanga- veltur um geðheilbrigði Cruise (sem sumir vilja tengja við Vísinda- kirkjuna) höfðu þegar verið grasserandi í þó nokkurn tíma. Ekki bætti úr skák þegar viðtal fréttamannsins Matt Lauer í Today Show við Cruise snerist illilega í höndum leikarans í kjölfar þess að hann hafði gagnrýnt leikkonuna Brooke Shields fyrir notkun á geð- lyfjum til að stemma stigu við fæðingarþunglyndi. Í viðtalinu fann Cruise geðlækningum flest til foráttu, sagði þær skottulækningar og sakaði þáttastjórnandann meðal annars um að vera talsmaður rítalíns. Í kjölfarið benti Shields leikaranum vinsamlegast á að halda sig við að „bjarga jarðarbúum frá geimverum“ í stað þess að þykjast vita betur en aðrir hvaða lækningaaðferðir gagnist hverjum og einum. Þá ávíttu Geð- lækningasamtök Bandaríkjanna Cruise fyrir að festa enn frekar í sessi þann neikvæða stimpil sem fólk með geðsjúkdóma þarf að kljást við. Síðar sama sumar brunaði nýja parið á mótorhjóli niður rauða dregil- inn við frumsýningu kvikmyndarinnar War of the Worlds í Hollywood, sem mörgum þótti býsna undarlegt, og Cruise brást ókvæða við gríni sjónvarpsmanns í London sem sprautaði vatni í andlit leikarans meðan á plat-viðtali stóð. Árið eftir, 2006, komust á kreik sögusagnir um að Cruise hefði skipað Holmes að dóttir þeirra skyldi koma í heiminn með „þögulli fæðingu“ að vísindakirkjulegum sið, auk þess sem hann sagðist í viðtali hafa í hyggju að snæða fylgjuna að fæðingu lokinni. Cruise sagðist síðar hafa verið að grínast, en ummælin gerðu ekki mikið til að lappa upp á almenningsálitið á þeim tíma. Sögusagnir um samkynhneigð Cruise hafa verið fyrirferðarmiklar á síðustu árum og hefur leikarinn nokkrum sinnum leitað réttar síns fyrir dómstólum vegna þeirra. Í janúar á síðasta ári gegndi breski grínistinn Ricky Gervais hlut- verki kynnis á Golden Globe-verðlaunahátíðinni og sagði eftirfarandi brandara: „Önnur mynd sem ekki er tilnefnd í kvöld er I Love You Phillip Morris, sem fjallar um tvo gagnkynhneigða karaktera sem þykjast vera samkynhneigðir. Sem sagt algjör andstæða við suma fræga meðlimi Vísindakirkjunnar.“ Áhorfendur lásu milli línanna að Vísindakirkjumeðlimirnir sem um var rætt væru Tom Cruise og John Travolta, en sjálfur sagðist Gervais hafa fengið hjálp frá lögfræð- ingum sínum við að orða brandarann á öruggan hátt. Árið 2006 skapaðist mikil umræða um túlkun höfunda South Park-teiknimyndaþáttanna á Cruise í þættinum „Fastur í skápnum“, þar sem spjótum er beint að Vísindakirkjunni og teiknimyndaútgáfa af leikaranum harðneitar að koma út úr skáp einnar aðalper- sónunnar. Enn fyrr sömdu handritshöfundar annarrar teiknimynda- seríu, The Simpsons, hlutverk fyrir Cruise sem góðmennið Tom, sem gerist „stóri bróðir“ Bart um stundarsakir, í þætti sem nefndist „Brother from the Same Planet“. Cruise hafnaði hlutverkinu og leyndi reiði framleiðenda þáttanna sér ekki í spjalli um þáttinn á DVD-disknum: „Screw you, Tom,“ voru skilaboðin sem leikarinn fékk. Top Gun (1986) Myndin sem festi Cruise í sessi sem ofurstjörnu í Hollywood, og gerði að draumaviðfangi milljóna áhorfenda um allan heim, er enn sú tekjuhæsta (að núvirði) sem hann hefur leikið í. Rain Man (1988) Cruise þótti standa sig prýðilega í hlutverki sínu sem gráðugur og óþolandi yngri bróðir hins einhverfa Dustin Hoffmann í vinsælustu mynd ársins 1988. Leikaranum hefur þó líklega þótt súrt í bragði að nærri allir sem að myndinni komu hlutu tilnefningu til Óskarsverðlauna nema hann. Í ofanálag gleymdi Hoffmann, sem vann verðlaunin, að minnast á Cruise í þakkarræðu sinni. Mission: Impossible (1996) Cruise var mikill aðdáandi gömlu sixtís-spennuþáttanna og lék flest af áhættuatriðunum sjálfur í þessum monster-hittara sem var tekjuhæsta mynd ársins 1996. Þrjár vinsælar framhaldsmyndir hafa þegar fylgt í kjölfarið og er lengi von á einum. Cocktail (1988) Myndinni um ástir og ævintýri barþjónsins Brians Flanagan gekk ágætlega í miðasölu en var slátrað af gagnrýnendum víðast hvar. Cruise fékk tilnefningu til Gyllta hindbersins sem versti leikari ársins, en þurfti að lúta í lægra haldi fyrir sjálfum Sylvester Stallone í Rambo III. Far And Away (1992) Cruise og Kidman fylgdu Days of Thunder eftir með þessari slöppu og allt of löngu ræmu um írska inn- flytjendur í Ameríku á 19. öld. Írski hreimurinn hjá Cruise sker í eyrun, eins og gjarnan gerist hjá Könum sem reyna sig við frændur okkar frá eyjunni grænu, og myndin féll í álíka slæman jarðveg hjá áhorfendum og gagn- rýnendum. Lions For Lambs (2007) Fyrsta myndin sem United Artists-stúdíóið framleiddi eftir að Cruise tók við stjórn fyrirtækisins (leiðir hans og Paramount skildi nokkru fyrr) mis- heppnaðist gjörsam- lega, enda var henni ætlað að vekja áhorf- endur til umhugsunar um stríðsrekstur Banda- ríkjamanna í Mið-Austur- löndum en reyndist grunn, þvælu- og klisjukennd úr hófi fram. Þeir ótal mörgu sem ekki hafa séð þessa mynd geta talist heppnir. ■ SMELLIR OG SKELLIR Í BÍÓ SMELLIR SKELLIR 1983-1985 Rebecca De Mornay De Mornay lék með Cruise í klassísku ung- lingamyndinni Risky Business sem kom Cruise á kortið árið 1983. Konurnar í lífi Cruise ■ UNDARLEG UPPÁTÆKI ORÐRÓMURINN 1985 Cher Cruise átti í stuttu ástarsambandi við hina sextán árum eldri söng- og leikkonu, en annríki beggja mun hafa komið í veg fyrir frekari rómans. 1987-1990 Mimi Rogers Tom hélt sig við eldri konur um sinn og fyrsta eiginkona hans var bandaríska leikkonan Mimi Rogers (sex árum eldri), sem er talin hafa kynnt Cruise fyrir kenn- ingum Vísindakirkjunnar. Emilio Estevez var svaramaður. 1990-2001 Nicole Kidman Einungis örfáir mánuðir liðu frá skilnaði Rogers og Cruise og brúðkaups þessa síðarnefnda og áströlsku leik- konunnar Nicole Kidman á aðfangadag árið 1990. Þau kynntust við upptökur á rallímyndinni Days of Thunder. Cruise og Kidman ættleiddu tvö börn, Isabellu Jane, fædd 1992, og Connor Anthony, fæddur 1995. Þegar þau skildu lét Kidman hafa eftir sér að nú gæti hún loks gengið á háum hælum, en Cruise er 1,72 metrar á hæð. 2001-2004 Penélope Cruz Þrátt fyrir að eftirnöfn Tom og Penélope séu svo sláandi lík sem raun ber vitni entist samband þeirra aðeins í þrjú ár. Þau kynntust við tökur á myndinni Vanilla Sky. 2005 til dagsins í dag Katie Holmes Slúðurblöðin gáfu sambandi Cruise og leikkonunnar Katie Holmes, sem hafði vakið athygli fyrir leik sinn í táningadramaþáttunum Dawson‘s Creek, umsvifalaust nafnið „TomKat“. Suri dóttir þeirra fæddist í apríl 2006 og í nóvember sama ár giftu þau sig við Vísindakirkjuathöfn á Ítalíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.