Fréttablaðið - 23.06.2012, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 23. júní 2012 9
Viltu starfa í skemmtilegu umhverfi?
Ertu með ríka þjónustulund og jákvæðni að leiðarljósi?
World Class Hafnarfjörður
Starfshlutfall 50 %
World Class Spöng
World Class Kópavogur
Starfshlutfall 70 %
Starfshlutfall 50 %
Skilafrestur umsóknar er til 29. júní 2012.
Umsóknir berast til holly@worldclass.is
Einnig hægt að fylla út umsókn á heimasíðu okkar worldclass.is
Við óskum eftir starfsfólki í ræstingar
Stafsmaður þarf að geta hafið störf 1. ágúst 2012
Starfsmaður þarf að geta byrjað strax
Starfssvið
Umsjónarmenn fyrir
félagsstarf Blindrafélagsins
Blindrafélagið heldur úti metnaðarfullu félagsstarfi „Opnu húsi“
fyrir félagsmenn sína að jafnaði tvisvar í viku, á þriðjudögum og
fimmtudögum í u.þ.b. 9 mánuði á ári. Opna húsið hefst kl. 13:00
og stendur að jafnaði í 2 tíma.
Auglýst er eftir umsjónarmönnum frá 1. sept. 2012. Viðkomandi
þarf að vera félagslyndur, geta haldið uppi fjöldasöng, lesið
skýrt og hafa almenna hæfni til að umgangast eldri borgara.
Umsjónarmaður þarf að sinna dagskrárgerð að hluta og vera fær
um að finna áhugaverða gesti og listafólk, og fara með hópnum
í stuttar ferðir.
Til greina kemur að ráða umsjónarmenn sem vilja taka að sér
1 – 3 skipti í mánuði.
Opið hús Blindrafélagsins er rekið með menningarlegum blæ og
umsjónarmenn þurfa að starfa með hugsjón í huga.
Umsóknir þurfa að berast til framkvæmdastjóra Blindrafélagsins,
Hamrahlíð 17, eigi síðar en 9. júlí 2012.
Nánari upplýsingar veita:
Steinunn H. Hákonardóttir, félagsmálafulltrúi
sími: 525 0018 – steinunn@blind.is
Ólafur Haraldsson, framkvæmdastjóri
sími: 525 0003 – olafur@blind.is
Staða deildarstjóra listfræðslu
Skóla- og frístundasviðs
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir lausa til umsóknar stöðu deildarstjóra listfræðslu.
Starfið heyrir undir skrifstofustjóra fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar
annast m.a. rekstur leikskóla-, frístunda- og grunnskólastarfs borgarinnar, skólahljómsveita og umsjón og eftirlit með
starfsemi sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla, og einnig listaskóla sem styrktir eru af Reykjavíkurborg.
Óskað er eftir að umsókninni fylgi yfirlit yfir nám og störf, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur
leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2012.
Umsóknarfrestur er til og með 29. júní 2012.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Umsækjendur eru
beðnir um að sækja um stöðuna á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Ragnar Þorsteinsson, ragnar.thorsteinsson@reykjavik.is og Laufey Ólafsdóttir, laufey.olafs-
dottir@reykjavik.is eða í síma 411 11 11.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Er yfirmaður stjórnenda skólahljómsveita Reykjavíkur-
borgar.
• Er tengiliður við stjórnendur listaskóla sem njóta fjár-
hagslegs stuðnings frá Reykjavíkurborg.
• Gerir þjónustusamninga við listaskóla og hefur eftirlit
með framkvæmd þeirra í samstarfi við fjármálaskrifstofu
skóla- og frístundasviðs.
• Er tengiliður Reykjavíkurborgar við samstarfs- og hags-
munaaðila listfræðslu í landinu.
• Er þátttakandi í stefnumótunarvinnu og innleiðingu
skólastefnu Reykjavíkurborgar í listfræðslu.
• Er ráðgjafi leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva
í listfræðslu og tekur þátt í þverfaglegu samstarfi á fags-
krifstofu.
• Svarar erindum er varða listfræðslu sem berast skóla-
og frístundasviði og skóla- og frístundaráði.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, kennaramenntun á
sviði lista æskileg.
• Reynsla af stjórnun og þá sérstaklega mannauðsstjór-
nun og verkefnastjórnun.
• Góð þekking á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar og sam-
starfi borgarinnar við listaskóla og hagsmunaaðila list-
fræðslu.
• Góð tölvukunnátta, þ.m.t. excel.
• Færni í fjármála- og rekstrarstjórnun.
• Frumkvæði í starfi og stjórnunarhæfileikar.
• Lipurð og færni í samskiptum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.