Fréttablaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 2
21. júlí 2012 LAUGARDAGUR2
54fm heilsárshús til fluttnings.
Innréttað sem matsalur og skrifstofa.
Verð 2.500.000 m/vsk. Uppl. í síma 8446829
DÓMSMÁL Geirmundur Vilhjálms-
son, fyrrverandi fangelsisstjóri á
Kvíabryggju, var í gær dæmdur
í átta mánaða fangelsi fyrir að
draga sér fé og ýmis verðmæti
sem tilheyrðu fangelsinu, sam-
tals að andvirði ríflega 1,6 millj-
óna króna. Fimm mánuðir refs-
ingarinnar eru skilorðsbundnir.
Geirmundur gekkst við um
helmingi brotanna, til dæmis að
hafa dregið sér tæpar 600 þúsund
krónur og falið það með því að
setja tilhæfulausa reikninga
útgefna af verktakafyrirtæki í
bókhald fangelsisins.
Öðrum brot-
u m ne i t a ð i
hann, til dæmis
því að hafa
selt bíl í eigu
fangelsisins og
stungið sölu-
virðinu, 250
þúsund krónum,
í vasann.
Hann hélt því
fram að hann
hefði lagt peningana fyrir og
ætlað að kaupa fyrir þá kanínur
og kindur til að auka fjölbreyti-
leika á Kvíabryggju. Hann var
engu að síður sakfelldur fyrir alla
ákæruliði.
Í niðurstöðu Héraðsdóms
Vestur lands segir að starfs-
menn og jafnvel fangar á Kvía-
bryggju hafi almennt haft frjáls-
legan aðgang og afnot af tækjum
og tólum í eigu fangelsisins, með
því hafi ekkert eftirlit verið eða
skráning og augljós hætta á að
munir gætu farið forgörðum.
„Á þessu bar ákærði, sem var
forstöðumaður stofnunarinnar,
ábyrgð og ber af því allan halla að
málefni fangelsisins voru í þessu
efni í algerum ólestri.“ - sh
Geirmundur Vilhjálmsson fær átta mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt:
Fangelsisstjórinn dæmdur í fangelsi
GEIRMUNDUR
VILHJÁLMSSON
BANDARÍKIN, AP Tólf manns létu lífið og að minnsta
kosti 59 manns særðust þegar 24 ára maður réðst
inn í fullan kvikmyndasal í bænum Aurora í
Colorado og hóf þar skothríð aðfaranótt föstudags.
Verið var að frumsýna fyrir fullum sal nýjustu
Batman-kvikmyndina þegar árásarmaðurinn, sem
heitir James Holmes, svipti upp hurð, kastaði hylki
með táragasi inn í myrkvaðan salinn og skaut síðan
að því er virtist af handahófi á fólkið sem þar sat.
Hann var með gasgrímu, klæddur í skothelt
vesti, með hjálm á höfði og vopnaður bæði skamm-
byssu og riffli. Hann skaut stanslaust út í salinn,
nema hvað hann gerði stutt hlé þegar hann þurfti
að hlaða vopnin.
„Hann hlóð aftur og skaut og allir sem reyndu
að fara út voru drepnir,“ sagði Jennifer Seeger, ein
þeirra sem sátu í salnum.
Hinir látnu voru á aldrinum sex til 45 ára, en
meðal hinna særðu var þriggja mánaða barn.
Árásarmaðurinn var handtekinn stuttu síðar á
bílastæði fyrir aftan kvikmyndahúsið. Hann var
nemi við læknadeild Colorado-háskóla en hætti
námi í síðasta mánuði.
Þetta er mannskæðasta skotárás í Colorado frá
því tveir unglingspiltar myrtu tólf bekkjarfélaga
sína og einn kennara í Columbine-framhalds-
skólanum árið 1999. - gb
Maður vopnaður byssum myrti tólf manns á frumsýningu Batman-myndar:
Skaut á fólk í myrkvuðum sal
SORG Kvikmyndahúsagestir og aðstandendur þeirra fyrir utan
vettvang atburðanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNARHERMENN FAGNA Stjórnar-
herinn náði á sitt vald einu hverfi í
Damaskus. NORDICPHOTOS/AFP
SÝRLAND, AP Bardagar héldu
áfram í Damaskus, höfuðborg
Sýrlands, í gær. Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna samþykkti að
framlengja umboð friðargæslu-
sveita um einn mánuð.
Stjórnarherinn fagnaði ákaft
eftir að hafa náð á vald sitt einu
hverfi sem uppreisnarmenn
höfðu haft á valdi sínu.
Uppreisnarmenn hrósuðu hins
vegar sigri í nokkrum hafnar-
borgum sem þeir sögðust hafa
náð á vald sitt í gær á meðan
stjórnarherinn væri önnum
kafinn í höfuðborginni. - gb
Friðargæsla framlengd:
Áfram barist í
höfuðborginni LÖGREGLUMÁL Mennirnir sem óku
torfærubíl ölvaðir utan vega ofan
við sumarbústaðaland Kennara-
sambandsins við Flúðir aðfara-
nótt fimmtudags ollu þar tölu-
verðum gróðurskemmdum.
Bíllinn valt við aðfarirnar og
einn mannanna þriggja slasaðist
alvarlega í andliti.
Bíllinn var fullbúinn torfæru-
bíll og einungis tveggja sæta.
Tvímenningarnir sem sluppu
ómeiddir neituðu í fyrstu að
greina frá því hver hefði ekið
bílnum og voru handteknir.
Við yfirheyrslur hjá lögreglu á
fimmtudag játuðu þeir að hinn
slasaði hefði setið undir stýri. - sh
Skemmdu gróður á fylleríi:
Hinn slasaði ók
torfærubílnum
FÓLK „Mér fannst gaman að sofa
í tjaldinu, fara í fjallgöngu og
horfa á Álftavatn sem mér finnst
mjög fallegt,“ segir Orfeus Þór Da
Silva Stefánsson sem gekk fyrr í
vikunni 55 kílómetra milli Land-
mannalauga og Þórsmerkur.
Orfeus er fimm ára leikskóla-
drengur úr Austurborg og var því
ekki einsamall á göngunni heldur
með Stefáni Þorgrímsssyni föður
sínum. Stefán kveðst hafa séð úti
í Róm í vor hversu röskur Orfeus
var að ganga og ákveðið að láta
á það reyna hvort sonurinn réði
við að ganga Laugaveginn; fyrr-
nefnda leið milli Landmannalauga
og Þórsmerkur.
Stefán og Orfeus lögðu upp frá
Landmannalaugum í átt að Hrafn-
tinnuskeri á mánudaginn. Afar milt
veður var í kortunum en Stefán
kveðst hafa verið tilbúinn að snúa
við ef gangan reyndist syninum
ofviða. Þá tólf kílómetra leið hafi
þeir hins vegar komist án erfið-
leika. Eftir tveggja tíma hvíld í
Hrafntinnuskeri og klukku stundar
lúr hjá Orfeusi hafi þeir haldið
áfram för sinni í átt að Álftavatni.
Það er annar tólf kílómetra áfangi.
„Við hefðum gist í Hrafntinnu-
skeri nema fyrir það að spáð
var rigningu daginn eftir og við
vildum komast yfir fjallið áður,“
útskýrir Stefán. „Strákurinn stóð
sig feiknarlega vel en hann var
orðinn talsvert þreyttur. Svona
ungir krakkar virðast geta náð
að safna upp mikilli orku með
stuttum hvíldartímum inn á milli.“
Í Álftavatni hvíldu feðgarnir sig
fram til klukkan tvö daginn eftir
áður en þeir lögðu land undir fót
með stefnuna á Emstrur þar sem
næst var gist. Það er fimmtán kíló-
metra leið. „Hann kvartaði ekki
neitt á þeirri leið fyrr en alveg í
blálokin,“ segir Stefán.
Síðasti áfanginn var inn að
Básum í Þórsmörk. Feðgarnir
sungu og spjölluðu en undir lokin
sagðist Orfeus of þreyttur til
að tala. „Seinasti spottinn var
erfiðastur fyrir strákinn og það
var reyndar farið að draga af mér
líka. Hann var orðinn þreyttur og
veðrið leiðinlegt en hann kláraði
þetta samt með stæl,“ segir Stefán.
Orfeusi fannst skemmtilegt að
grilla sykurpúða og drekka kakó.
Hann játar þó að ferðalagið hafi
tekið á kraftana. „Við gengum svo
mikið. Mér var illt í stóru tánni
þegar við gengum niður sumar
brekkur. Það var gott að komast
í rútuna,“ segir göngugarpurinn
sem kveðst ekki hafa hug á að
ganga Laugaveginn aftur strax.
„En ég vil ganga á önnur fjöll, hvað
heita þau?“ gar@frettabladid.is
Leikskólagutti brattur
eftir Laugavegsgöngu
Orfeus Þór Da Silva Stefánsson er aðeins fimm ára en gekk þó 55 kílómetra úr
Landmannalaugum í Þórsmörk með pabba sínum. Orfeusi var illt í stóru tánni
í bröttustu brekkunum en fannst gaman að sofa í tjaldi og vill ganga á ný fjöll.
ORFEUS Á GÖNGUNNI Galvaskur leikskóladrengur úr Austurborg þegar um níu
kílómetrar voru eftir í Þórsmörk á þriðja degi göngunnar. MYND/STEFÁN ÞORGRÍMSSON
FEÐGAR Á FJÖLLUM Lokadaginn sótti
dálítill suddi að feðgunum sem þó voru
enn þokkalega sprækir.
DANMÖRK Fangelsisyfirvöld í
Sønderborg í Danmörku bjóða
föngum fríðindi fyrir að deila
tveir saman átta fermetra klefa.
Þeir sem þiggja boðið fá sjón-
varp og Playstation-tölvu í klef-
ann án þess að greiða 10 danskar
krónur á dag eins og aðrir, segir í
frétt danska ríkisútvarpsins.
Svipað fyrirkomulag hefur
verið tekið upp á öðrum stöðum
í Danmörku vegna þrengsla.
Fangar eru stundum svo margir
að fangelsi hafa neyðst til að fá
lánaðar kojur hjá hernum. -ibs
Þrengsli í dönsku fangelsi:
Tvímenna og fá
frítt sjónvarp
EFNAHAGSMÁL Fjórir milljarðar
evra sem dótturfélög Glitnis,
Kaupþings og Landsbankans í
Lúxemborg fengu frá seðlabanka
Evrópu í október 2008 hafa nú
verið greiddir til baka. Það var
seðlabanki Lúxemborgar sem sá
um málið.
Yves Mersch, seðlabankastjóri
Lúxemborgar, er nú í heimsókn
á Íslandi vegna þessa og fundaði
í gær með Má Guðmundssyni
seðlabankastjóra og Oddnýju
Harðardóttur fjármálaráðherra.
- þeb
Seðlabanki Lúxemborgar:
Fjórir milljarðar
endurgreiddir
BANKASTJÓRARNIR Seðlabanka stjórarnir
Már Guðmundsson og Yves Mersch
skoðuðu myntir í Seðlabankanum í gær,
í heimsókn hins síðarnefnda hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPURNING DAGSINS
Páll, er nokkuð að verða ein-
hver Frankenstein-uppákoma í
tilraunastofunni?
„Nei, hér er að fæðast lifandi sumar-
borg í Reykjavík og engin þörf fyrir
að grípa til kyndla og heykvísla.“
Páll Hjaltason er formaður skipulags-
ráðs Reykjavíkur. Hann sagði í viðtali að
borgin hefði verið notuð eins og tilrauna-
stofa fyrir ný verkefni, en styr hefur staðið
um sumar hugmyndir um miðborgina.
VEÐUR Búist er við óveðri á
Suður- og Vesturlandi seinni
partinn í dag og í kvöld. Mjög
vindasamt verður og talsverð
rigning.
Við suðvesturströndina
verður hvassast og segir Veður-
stofan að vindur geti farið í 23
metra á sekúndu í dag.
Þá hafa bæði Veðurstofan og
Slysavarnarfélagið Landsbjörg
vakið athygli á því að tjöld, hjól-
hýsi og aftanívagnar geti hæg-
lega fokið við þessar að stæður
og hættulegt geti verið að
ferðast með vagna í dag.
Vindinn mun lægja í nótt. - þeb
Óveður á suðvesturhorninu:
Ekkert ferða-
veður í dag