Fréttablaðið - 21.07.2012, Síða 12
21. júlí 2012 LAUGARDAGUR12
lingar voru færðir til yfirheyrslu.
Fyrir utan Vincent voru það Robert
bróðir hans, tveir starfsmenn
hans og fimm fyrrum starfsmenn
Kaupþings. Á meðal þeirra voru
Sigurður Einarsson, fyrrum starf-
andi stjórnar formaður bankans, og
Ármann Þorvaldsson.
Rannsókn SFO á Robert Tchengu-
iz og nokkrum stjórnendum Kaup-
þings hófst í desember 2009. Sam-
kvæmt gögnum sem Fréttablaðið
hefur undir höndum, meðal ann-
ars málsgögnum frá breskum
dóm stólum, kemur fram að nafn
Vincents tengdist ekki rannsókn-
inni fyrr en í september 2010. Þá
sagði endurskoðunarfyrirtækið
Grant Thornton í Bretlandi, sem
ráðið hafði verið sem ráðgjafi og
rannsakandi fyrir þrotabú Kaup-
þings, starfsmönnum SFO frá því
að starfsmenn þess teldu að gögn
sýndu að félög í eigu Vincents hefðu
lagt fram falsaða pappíra þegar þau
fengu Pennyrock-lánið.
Það fór líkast til ekki fram hjá
mörgum í Bretlandi að handtakan
hefði átt sér stað. Hún var ein af
þremur aðalfréttum allra helstu
miðla þar í landi næstu daga. Hinar
voru viðbrögð Muammar Gaddafis
við uppreisn þegna hans í Líbýu,
sem hann stýrði enn á þeim tíma,
og ástandið í Fukushima kjarnorku-
verinu í Japan vegna skjálftaflóð-
bylgjunnar sem reið yfir landið.
Tchenguiz segist oft hafa borið
fréttirnar þrjár saman á þessum
tíma og hugsað í hvaða sporum
hann hefði helst viljað vera. „Á
þeim tíma hugsaði ég: Gaddafi!“
Sögðu „aðrar leiðir“ til
Spurður hvort hann telji að aðgerðir
SFO tengist deilum hans við skila-
nefnd Kaupþings segir Tchenguiz
að hver verði að draga sínar
ályktanir. Með öðrum orðum þá
svarar hann ekki spurningunni
beint. „Það er mögulegt að einka-
málið hafi verið í huga þeirra sem
veittu SFO upplýsingarnar. Þetta
mál sem við höfðuðum á hend-
ur Kaupþingi snerist um atburði
sem urðu eftir fall bankans. Það
snerist um störf skilanefndar og
slitastjórnar hans og mögulegt tjón
sem ákvarðanir þeirra ollu.
Ég átti alveg von þá því að eitt-
hvað myndi gerast í mars 2011. Ég
vissi bara ekki alveg hvað. Ég varð
ekkert sérstaklega undrandi þegar
ég var handtekinn, enda hafði ég
fengið skilaboð um það frá Kaup-
þingi að þeir væru að hugsa um að
gera eitthvað. Þeir, skilanefndin,
sögðu mér, eins og ég man það, að
það væru til „aðrar leiðir“ að mér.
Sá sem sagði þetta útskýrði ekki
hvaða leiðir það væru.“
Sitt hvor sagan
Tchenguiz telur að gögnin sem
rannsókn SFO byggðist á hafi, að
minnsta kosti að hluta til, komið frá
ráðgjafa Kaupþings, Grant Thorn-
ton. „Á meðan ég var í haldi fékk
ég aðgang að þeim gögnum sem
lágu að baki þeim aðgerðum sem
ráðist hafði verið í gegn mér. Ég
sá strax að nánast allt sem sneri
að mér var í beinni andstöðu við þá
málavexti sem Kaupþing hélt fram
í einka málinu sem við deildum í.
Það fannst mér einkennilegt því
að rannsóknin virtist byggja, að
minnsta kosti að hluta til, á gögnum
frá Grant Thornton. Þeir lögðu fram
öll gögn í sakamálinu sem SFO
var að reyna að byggja og í einka-
málinu, en samt sögðu gögnin sitt
hvora söguna í hvoru máli fyrir sig.
Ég spurði mig strax að því hvernig
þetta gæti verið.
Það var alveg ljóst að Kaupþingi
var gerð full grein fyrir því að lánið
væri á öðrum veðrétti, enda voru
aðrar skuldir samstæðunnar 1,5
milljarðar punda [um 300 milljarð-
ar króna]. Slíkar skuldir fara ekki
framhjá neinum.“
FRAMHALD AF SÍÐU 10
Vincent Tchenguiz er fæddur í Íran í október 1956 og verður því 56 ára á þessu ári. Hann gekk í skóla í Tehran og lauk
síðar BSc-gráðum og mastersgráðu frá bandarískum háskólum. Í kjölfarið flutti hann til London og starfaði í fjármála-
geiranum fram til ársins 1988 þegar hann og Robert bróðir hans stofnuðu fasteignafélagið Rotch Property Group. Árið
2002 stofnaði hann síðan Consensus Business Group þar sem hann er stjórnarformaður.
Hann er ókvæntur og býr og starfar í Mayfair-hverfinu í London. Vincent á einnig heimili í St. Tropez og í Höfðaborg
í Suður-Afríku. Þá á hann 130 feta snekkju sem ber nafnið „Veni Vidi Vici“, eða „ég kom, sá og sigraði.“
HVER ER VINCENT TCHENGUIZ?
Nokkrum dögum eftir handtök-
urnar, þann 16. mars 2011, ákvað
breskur dómari að lögsaga deil-
unnar væri í Bretlandi. Tveimur
dögum síðar staðfesti Hæstiréttur
Íslands þá niðurstöðu Héraðsdóms
að ágreiningur um réttmæti og upp-
hæð krafna gegn íslenskum banka
í slitameðferð ætti að fara fram á
Íslandi. Því var ljóst að allt stefndi
í að málin yrðu rekin bæði í Bret-
landi og á Íslandi.
Kaupþing skilaði inn greinargerð
til breskra dómstóla í júní 2011. Í lok
þess mánaðar fékk SFO eintak af
þeirri greinargerð. Þar koma fram
upplýsingar sem Tchenguiz telur
grafa algjörlega undan sakarefnun-
um á hendur honum. Á meðal þess
sem kom fram í greinargerðinni var
að Kaupþingi hefði verið gerð grein
fyrir því að þær tryggingar sem
settar voru fram fyrir Pennyrock-
láninu væru líka veðsettar öðrum.
Samt sem áður tók það SFO næstum
heilt ár í viðbót að fella niður rann-
sókn sína á hendur honum.
Tchenguiz telur nokkur atriði
liggja til grundvallar því að það
var ekki gert. „Ein ástæðan er sú
að málið var mjög sýnilegt í fjöl-
miðlum og almenningur hafði
gríðar legan áhuga á því. Það var
valkvæð ákvörðun SFO að svo var,
enda létu þeir fjölmiðla vita áður en
handtökurnar voru framkvæmdar
svo þeir væru tilbúnir fyrir utan.
Auk þess hefur verið mjög stirt
ástand milli Íslands og Bretlands
vegna bankanna og gríðarlega mikil
umræða um áhrif falls þeirra hér.
Það hafði líka áhrif.“
Lögfræðileg endurskoðun
Strax eftir handtökurnar fóru bæði
Vincent og Robert bróðir hans fram
á lögfræðilega endurskoðun á þeim
gögnum sem lágu til grundvallar
þeim heimildum sem veittar voru
til aðgerða gegn bræðrunum.
Í desember 2011 viðurkenndi SFO
í fyrsta sinn að þegar embættið
fékk húsleitar- og handtökuheimild-
irnar þá hefði veiting þeirra byggt
á röngum upplýsingum. Í kjölfarið
var SFO gert að skila þeim gögnum
sem það hafði tekið hjá Vincent.
Rannsókn málsins var hins vegar
haldið áfram.
Í febrúar síðastliðnum sendi
SFO síðan frá sér þriggja blað-
síðna skriflega afsökunarbeiðni til
Vincents Tchenguiz og viðurkenndi,
aftur, að aðgerðirnar hefðu grund-
vallast á röngum upplýsingum.
Í apríl átaldi síðan dómari við
breskan dómstól, High Court, SFO
harðlega fyrir að geta ekki reitt
fram nein gögn sem legið hefðu til
grundvallar húsleitum hjá Vincent.
Samkvæmt málsgögnum sagði dóm-
arinn, Sir John Thomas, SFO hafa
sýnt „algera vanhæfni“ og að hann
hefði „aldrei kynnst öðru eins“.
Þann 18. júní síðastliðinn til-
kynnti SFO síðan að rannsókn
hennar á Vincent Tchenguiz hefði
verið hætt. Síðastliðinn fimmtu-
dag var sagt frá því að fyrrverandi
starfsmenn Kaupþings, Ármann
Þorvaldsson og Guðni Níels Aðal-
steinsson, væru lausir allra mála.
Rannsókn á Robert og öðrum grun-
uðum verður hins vegar haldið
áfram.
Ætlar í mál við SFO
Tchenguiz hefur tilkynnt að hann
ætli sér að höfða skaðabótamál
gagnvart SFO og krefjast bóta upp
á 100 milljónir punda, um 20 millj-
arða króna.
Hann segir fjárhagslegar afleið-
ingar rannsóknar embættisins
enda hafa verið mjög alvar legar.
Meðal annars gekk stærsti lán-
veitandi fasteignafélags hans
Peverel að láni nokkrum dögum
eftir handtöku hans og gerði
það að verkum að félagið fór í
greiðslustöðvun.
Auk þess stöðvuðust öll áform
um að endurfjármagna um tveggja
milljarða punda, um 400 milljarða
króna, skuldir annarra fasteigna-
félaga Tchenguiz þar sem væntan-
legir lánveitendur drógu sig út úr
þeim viðræðum. „Bankarnir sögðu
auðvitað, „guð minn góður, er þetta
það sem hann hefur gert?“ Miðað
við þær upplýsingar sem veittar
voru fjölmiðlum þá þurftu þeir
skiljanlega að endurhugsa stöðu
sína gagnvart mér og samband
þeirra við mig.“
Vincent náði þó að róa lánveit-
endur sína og halda yfirráðum
yfir félögum sínum. „Hefði það
ekki gerst þá væri ég algjörlega
búinn. Þá hefði þessi rannsókn á
mér örugglega staðið í mörg ár í
viðbót. Að reyna að sanna sakleysi
sitt þegar þú ert algjörlega búinn
og það er búið að ganga að öllum
eignum þínum er ómögulegt. Þegar
viðskiptamódel verður verðlaust þá
trúir enginn því að það hefði virkað
til að endurgreiða skuldirnar. Þetta
hófst allt saman í október 2008. Nú
er mitt ár 2012. Það er í raun búið
að sóa þremur og hálfu ári sem við
hefðum getað nýtt í annað en þessa
baráttu.“
Samskiptin voru ekki góð og þessu
fólki lá á. Það vildi fá endurgreitt
mjög hratt.
Geggjuð ÚTSALA
hafin á veiðivörum
50%
30%
30%
30%
30%
50%
50%