Fréttablaðið - 21.07.2012, Page 21

Fréttablaðið - 21.07.2012, Page 21
BÍLRÚÐUR LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Kynningarblað Framrúðutrygging Glæsivagnar í Mónakó Hreinar bílrúður Örugg rúðuskipti Vandaðar ísetningar Poulsen var stofnað af Dananum Valdimar Poulsen árið 1910 og er því orðið rúmlega aldargamalt fyrirtæki. Hjá Poulsen starfa í dag um 30 manns, hver með sína sérhæfingu, sem þjónusta bæði bíleigendur og bifreiðaverkstæði. Fullbúið bílrúðuverkstæði Poulsen er í Skeifunni 2. Þjónustum alla Ragnar Matthíasson, einn eigenda Poulsen, segir það ganga fljótt fyrir sig að skipta um rúðu í bíl þegar fagmenn eru að verki. „Þetta er einfalt mál. Ef rúða er brotin í bílnum, hvort sem er að framan, aftan eða á hlið, pantar fólk tíma í bílrúðuskiptum. Við fáum upplýsingar um númer bíls og hvar hann er tryggður. Mætt er með bílinn á umsömdum tíma, tjónaskýrslan fyllt út og hann skilinn eftir. Bíllinn er svo tilbúinn seinnipart dags- ins. Svona einfalt er þetta nú,“ segir Ragnar. Hvað kostnað varðar þarf ávallt að borga sjálfsábyrgð við bílrúðuskipti en ef gera á við rúðu er það greitt að fullu af trygginga- félaginu. Fagmennska í fyrirrúmi Verkstæði Poulsen hefur á að skipa faglærðu starfsfólki með margra ára reynslu. Meðal annars hefur það sinnt kennslu í bílrúðu- ísetningum og bílrúðuviðgerðum úti um allt land. „Bílrúðuísetning er mikið vandaverk og ekki sama hvernig hún er framkvæmd. Við höfum tileinkað okkur ákveðnar vinnu- reglur sem skara langt fram úr almennum vinnureglum. Það er trygging fyrir við- skiptavininn að vönduð vinnubrögð séu ávallt viðhöfð og að viðgerðin muni standast tímans tönn.“ Gæði og vandvirkni Mikil áhersla er lögð á gæði, bæði í vörum og þjónustu. Poulsen flytur inn stærstu merkin í bílrúðum, AGC og Pilkington sem er virtasti og umsvifamesti bílrúðufram- leiðandi heims. „Þar sem við erum stærsti innflytjandi á bílrúðum, listum, smellum ásamt vélum og tækjum til rúðuskipta höfum við ávallt nýjustu tæki og beitum nýjustu aðferðum við rúðuskipti.“ Tilboð í júlí Í júlí mun Poulsen veita 50% afslátt af rúðu- þurrkum til þeirra sem koma í rúðuskipti eða viðgerð á rúðu. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu fyrirtækisins: www.poulsen.is eða í síma 530 5900. Bílrúður eru okkar fag Fyrirtækið Poulsen er stærsti bílrúðuinnflytjandi landsins og býður upp á rúður í flestar gerðir bíla. Í Skeifunni 2 rekur Poulsen fullbúið bílrúðuverkstæði. Þar starfa fagmenn með margra ára reynslu sem meðal annars sinna kennslu í bílrúðuísetningum fyrir viðskiptavini Poulsen. Mikil áhersla er lögð á gæði, bæði í vörum og þjónustu. Starfsfólk Poulsen vinnur eftir ströngum vinnureglum við ísetningu bílrúða sem tryggir að ávallt er vandað til verks. MYND/ERNIR Starfsmenn Poulsen, þeir Ragnar Matthíasson, Grétar Fannar Ó. Thorarensen, Friðrik Hreinsson, Brandur R. Axelsson og Sigurður Örn Úlfarsson. EF RÚÐA ER BROTIN Í BÍLNUM ÞÍNUM: -Þú hringir í Poulsen í síma 530 5900 og pantar tíma í bílrúðuskiptum. -Gefur upp bílnúmer og tryggingafélag bílsins. -Mætir svo með bílinn á umsömdum tíma í Skeifuna 2. -Færð hjálp við að fylla út tjónaskýrslu og skilur bílinn eftir. -Sækir bílinn seinnipart dags og það eina sem þú þarft að greiða er sjálfsábyrgð. -Ekur heim með splunkunýja rúðu og gott útsýni hvert sem þú ferð.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.