Fréttablaðið - 21.07.2012, Side 52
21. júlí 2012 LAUGARDAGUR28
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. elds, 6. í röð, 8. hryggur, 9. maka,
11. skst., 12. skattur, 14. mont, 16. átt,
17. hyggja, 18. stjórnarumdæmi,
20. mergð, 21. kaupbætir.
LÓÐRÉTT
1. úrgangur, 3. í röð, 4. jarðbrú,
5. sjáðu, 7. fótabúnaður, 10. drulla,
13. gagn, 15. klædd, 16. berja, 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. báls, 6. rs, 8. bak, 9. ata,
11. no, 12. tíund, 14. grobb, 16. sv,
17. trú, 18. lén, 20. úi, 21. álag.
LÓÐRÉTT: 1. hrat, 3. áb, 4. landbrú,
5. sko, 7. stígvél, 10. aur, 13. not,
15. búin, 16. slá, 19. na.
Takið eftir strákar! Við
höfum fengið nýjan
mann til liðs við okkur!
Við höfum unnið lengi að því
að ganga frá kaupunum og nú
hefur okkur lukkast að fá Þór-
Pedro Gonzales frá
Hjartaflökti FC!
Hann var ekki ódýr þessi!
Við þurftum að greiða fimm
kaffipoka og eitt Kitkat fyrir
hann!
Ha?
Þú heyrðir
hvað ég sagði!
FIMM pokar!
Nýtt met!
Hann ÆTTI
að vera
góður!
Jæja, ég og Palli
ætlum að fara út
og byrja að kaupa
jólagjafir.
Ég vildi að hún
myndi vara
okkur við áður
en hún byrjaði
að hárreita sig
svona.
Þú
venst
þessu.
Útsala á
þvotta-
vélum
Nei takk. Ég
er bara að
skoða.
&
Þegar enginn virðist vera á ferli - athugið betur.
usss!
Snjór úti, snjór inni, snjór í hjarta, snjór í sinni. Snjó meiri snjó!“ söng þriggja ára
dóttir mín og gerði snjóengil á stofu gólfið
sem skýringu á því af hverju hún vildi ekki
fara út. Þetta var á fimmtánda degi í sum-
arfríi þar sem einu sinni hafði komið dropi
úr lofti en sólin annars bulið á glaðbeittum
hægfara hringförum allan tímann með til-
heyrandi bílahita og rykmekki á fáfarnari
leiðum. Breyttir tííímaar, hugsaði ég og
mundaði sólarvörnina.
ÞEGAR ég var lítil og óx úr grasi í
Reykjavík var skilgreiningin á sumri
að þurfa ekki að fara með vettlinga
út að leika. Stuttbuxur og stutt-
ermabolir voru flíkur keyptar til
sólarlandaferða og notaðar af
tómri þrjósku í útilegum fjöl-
skyldunnar þar sem nætur-
kuldinn gat orðið slíkur að einu
sinni breiddi amma útrúll-
aðar pönnukökur ofan á okkur
mömmu þegar allt annað þraut.
Ís var snæddur inni í bíl með
miðstöðina á. Mér skilst reynd-
ar (og man eftir fréttum þess
efnis) að á Akureyri og Aust-
fjörðum hafi stundum verið
sólríkt fyrr á sumrum. Einn
og einn dag, jafnvel viku í
senn. En ekki í Reykjavík.
SÖKUM sólarleysis í bernsku var ég
alin upp við að „nota veðrið“. Ef sólin
sást skyldu börn fara út að leika sér. Ég
og besta vinkona mín, sem áttum það
sameiginlegt að lesa heil ósköp þó við
lékum okkur líka reiðinnar býsn, gerðum
þær málamiðlanir við foreldra okkar
að fara út í garð með bókasafns staflana
okkar og lesa úti í sólinni, til að hún færi
ekki ónýtt gegnum heilan dag. Rokið
var reyndar oft á undan okkur að fletta
blaðsíðunum.
NÚ ER öldin önnur (í alvöru) og sól telst
ekki eins ákjósanleg á hvíta íslenska
barnshúð, hvað þá föla mömmufreknuhúð
og á þeirri síðustu. Fyrir utan að sólskin
dag eftir dag, viku eftir viku, telst vart til
tíðinda lengur. Enn býr samt áróðurinn
í sálinni, sólin vekur allt með kossi, slær
silfri á voga og gott er í henni að gleðja
sig. Og þess vegna hef ég, og að því er mér
sýnist flestir Íslendingar, verið á þönum
að nota veðrið í heilan mánuð og margir
orðnir nokkuð lúnir.
NÚ Á að rigna í Reykjavík um helgina.
Vinir mínir í tölvunni hlakka unnvörpum
til að geta leyft sér að vera inni og lesa,
spila, horfa á sjónvarp eða spjalla.
Stelpurnar hlakka líka rosalega til. Þær
ætla út. Að hoppa í pollum.
Ský á mig
Skemmtilegt að skafa!
ENNFLEIRIVINNINGAR!
NÝR
MIÐ
I!