Fréttablaðið - 21.07.2012, Page 52

Fréttablaðið - 21.07.2012, Page 52
21. júlí 2012 LAUGARDAGUR28 BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. elds, 6. í röð, 8. hryggur, 9. maka, 11. skst., 12. skattur, 14. mont, 16. átt, 17. hyggja, 18. stjórnarumdæmi, 20. mergð, 21. kaupbætir. LÓÐRÉTT 1. úrgangur, 3. í röð, 4. jarðbrú, 5. sjáðu, 7. fótabúnaður, 10. drulla, 13. gagn, 15. klædd, 16. berja, 19. átt. LAUSN LÁRÉTT: 2. báls, 6. rs, 8. bak, 9. ata, 11. no, 12. tíund, 14. grobb, 16. sv, 17. trú, 18. lén, 20. úi, 21. álag. LÓÐRÉTT: 1. hrat, 3. áb, 4. landbrú, 5. sko, 7. stígvél, 10. aur, 13. not, 15. búin, 16. slá, 19. na. Takið eftir strákar! Við höfum fengið nýjan mann til liðs við okkur! Við höfum unnið lengi að því að ganga frá kaupunum og nú hefur okkur lukkast að fá Þór- Pedro Gonzales frá Hjartaflökti FC! Hann var ekki ódýr þessi! Við þurftum að greiða fimm kaffipoka og eitt Kitkat fyrir hann! Ha? Þú heyrðir hvað ég sagði! FIMM pokar! Nýtt met! Hann ÆTTI að vera góður! Jæja, ég og Palli ætlum að fara út og byrja að kaupa jólagjafir. Ég vildi að hún myndi vara okkur við áður en hún byrjaði að hárreita sig svona. Þú venst þessu. Útsala á þvotta- vélum Nei takk. Ég er bara að skoða. & Þegar enginn virðist vera á ferli - athugið betur. usss! Snjór úti, snjór inni, snjór í hjarta, snjór í sinni. Snjó meiri snjó!“ söng þriggja ára dóttir mín og gerði snjóengil á stofu gólfið sem skýringu á því af hverju hún vildi ekki fara út. Þetta var á fimmtánda degi í sum- arfríi þar sem einu sinni hafði komið dropi úr lofti en sólin annars bulið á glaðbeittum hægfara hringförum allan tímann með til- heyrandi bílahita og rykmekki á fáfarnari leiðum. Breyttir tííímaar, hugsaði ég og mundaði sólarvörnina. ÞEGAR ég var lítil og óx úr grasi í Reykjavík var skilgreiningin á sumri að þurfa ekki að fara með vettlinga út að leika. Stuttbuxur og stutt- ermabolir voru flíkur keyptar til sólarlandaferða og notaðar af tómri þrjósku í útilegum fjöl- skyldunnar þar sem nætur- kuldinn gat orðið slíkur að einu sinni breiddi amma útrúll- aðar pönnukökur ofan á okkur mömmu þegar allt annað þraut. Ís var snæddur inni í bíl með miðstöðina á. Mér skilst reynd- ar (og man eftir fréttum þess efnis) að á Akureyri og Aust- fjörðum hafi stundum verið sólríkt fyrr á sumrum. Einn og einn dag, jafnvel viku í senn. En ekki í Reykjavík. SÖKUM sólarleysis í bernsku var ég alin upp við að „nota veðrið“. Ef sólin sást skyldu börn fara út að leika sér. Ég og besta vinkona mín, sem áttum það sameiginlegt að lesa heil ósköp þó við lékum okkur líka reiðinnar býsn, gerðum þær málamiðlanir við foreldra okkar að fara út í garð með bókasafns staflana okkar og lesa úti í sólinni, til að hún færi ekki ónýtt gegnum heilan dag. Rokið var reyndar oft á undan okkur að fletta blaðsíðunum. NÚ ER öldin önnur (í alvöru) og sól telst ekki eins ákjósanleg á hvíta íslenska barnshúð, hvað þá föla mömmufreknuhúð og á þeirri síðustu. Fyrir utan að sólskin dag eftir dag, viku eftir viku, telst vart til tíðinda lengur. Enn býr samt áróðurinn í sálinni, sólin vekur allt með kossi, slær silfri á voga og gott er í henni að gleðja sig. Og þess vegna hef ég, og að því er mér sýnist flestir Íslendingar, verið á þönum að nota veðrið í heilan mánuð og margir orðnir nokkuð lúnir. NÚ Á að rigna í Reykjavík um helgina. Vinir mínir í tölvunni hlakka unnvörpum til að geta leyft sér að vera inni og lesa, spila, horfa á sjónvarp eða spjalla. Stelpurnar hlakka líka rosalega til. Þær ætla út. Að hoppa í pollum. Ský á mig Skemmtilegt að skafa! ENNFLEIRIVINNINGAR! NÝR MIÐ I!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.