Fréttablaðið - 27.07.2012, Qupperneq 4
27. júlí 2012 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 26.07.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
211,8093
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,51 124,09
192,29 193,23
150,78 151,62
20,268 20,386
20,381 20,501
17,834 17,938
1,5792 1,5884
185,67 186,77
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
FRÓÐASTI FERÐAFÉLAGINN
Ný og endurbætt útgáfa
FULLT VERÐ 4.990 KR.
1000 kr. afsláttur ef þú
kemur með gömlu bókina
(einungis hægt að skipta í bókabúðum,
ekki bensínstöðvum)
Í Vegahandbókina er komin ný, ýtarleg
24 síðna kortabók, á bls. 574-599.
Hér færð þú skýra yfirsýn yfir landsvæði
Íslands - í mælikvarðanum 1:500 000.
Auðvelt er að fletta á milli bókarinnar
og kortabókarinnar til að fá yfirsýn yfir
það svæði sem ferðast er um. Tilvísanir
leiða þig á rétta blaðsíðu. Ef þú ert
t.d. að aka til Búðardals og ert á bls.
281 í bókinni og vilt fá meiri yfirsýn
yfir svæðið er tilvísun á síðunni sem
vísar þér á kort nr. 3 á bls. 578 í
kortabókinni.
Vegahandbókin • Sundaborg 9 • Sími 562 2600
Eymundsson metsölulisti
20.06.12 - 26.06.12 vegahandbokin.is
STJÓRNSÝSLA Gjaldskrá bílastæða í
miðbænum á gjaldsvæðum 1, 2 og 4
hækkar frá og með mánudeginum
30. júlí. Hækkun gjaldskrárinnar
er mest á gjaldsvæði 1, um 50 pró-
sent og fer í 225 krónur á klukku-
stund. Þá lengist gjaldskyldutíminn
á þessum svæðum á laugardögum
því rukkað verður til klukkan 16 í
stað 13.
Karl Sigurðsson, formaður
umhverfis- og samgönguráðs
Reykjavíkur, sagði í samtali við
Vísi að Besti flokkurinn ætti ekki
í stríði við einkabílinn. „Við erum í
herferð sem snýr að því að leiðrétta
jafnvægi milli samgöngumáta í
borginni,“ segir hann.
Karl vill meina að hallað hafi á
gangandi og hjólandi vegfarendur í
borginni og að með gjaldskrárhækk-
ununum sé reynt að koma jafnvægi
þar á. Hann segir miðbæinn mett-
aðan af bílum. „Það er talað um
90 til 110 prósenta nýtingu stæða,
fólk er að leggja upp á gangstéttir,“
segir Karl. Gjaldhækkanirnar eigi
að draga úr fjölda bifreiða í borg-
inni svo nýtingin verði ásættanleg
eða um það bil 85 prósent.
„Við erum með einhver ódýrustu
bílastæði í hinum vestræna heimi,“
segir Karl enn fremur. Gjöld í stæði
í bílastæðahúsum hafa hins vegar
ekki hækkað og opnunartími þeirra
verður lengdur frá og með mánu-
deginum. Karl bendir á að húsin
hafi verið illa nýtt þó mörg slík séu
í miðbænum. Þá verða í boði ókeypis
stæði fyrir reiðhjól. - bþh
Bílastæðasjóður hækkar gjaldskrá á gjaldsvæðum í miðborginni:
Bílastæði við Laugaveg 50% dýrari Gjaldsvæðin sem um ræðir eru megnið af gjaldskyldum svæðum í
miðborg Reykjavíkur auk svæðanna
við sjúkrahúsin í Fossvogi og við
Hringbraut og við Háskóla Íslands.
Gjaldsvæði 1 nær frá svæðinu
við Hlemm, vestur og umhverfis
Laugaveginn og tekur að lokum til
allrar Kvosarinnar. Gjaldsvæði 2 er
svæðið umhverfis svæði 1, Grjóta-
þorpið að Landakoti og svæðið
umhverfis Rauðarárstíg. Svæði 4
nær yfir bílastæðin við sjúkrahúsin
og Háskólann.
Þá eru gjaldsvæði 1 og 2 milli
Skipholts og Laugavegar og
gjaldsvæði 2 við Skúlagötu austan
Snorrabrautar.
Gjaldsvæðin
Benedikt Gunnarsson listmálari teiknaði glerlistaverkið en það var hannað í
samráði við hann í Þýskalandi. „Það voru sómakonur í kvenfélagi Kirkjunnar
sem gáfu það árið 1977,“ segir Skúli S. Ólafsson. Í Víkurfréttum hefur skapast
umræða um málið og þar er sagt að þeir sem séu mótfallnir því að taka það
niður segi að það hafi kostað mikið átak að setja það upp á sínum tíma og
spyrji nú hvaðan sóknarnefndin hafi leyfi til að taka það niður.
Saga steinda glerlistaverksins
MENNING Brýnt er að koma á
ákveðnu vinnulagi varðandi gjafir
og innkaup fyrir kirkjur landsins,
segir Páll V. Bjarnason, formaður
húsafriðunarnefndar. Hann segir
að í flestum sóknum landsins sé
kirkjunnar fólk í vandræðum með
gjafir og innkeypta muni sem sýnt
þykir að henti kirkjunum ekki eða
stingi hreinlega í stúf.
Til dæmis hafi það víða brunnið
við að keyptir hafi verið munir sam-
kvæmt einhverri tískubylgju sem
síðan séu til vansa. „Til dæmis er
engu líkara en einhver sölu maður
hafi gert víðreist á níunda eða
tíunda áratugnum og selt kirkjum
neonkrossa en nú held ég að flestir
séu sammála um að að þú setjir
ekki neonkross á gamla kirkju úti á
landi,“ segir hann.
Hann segir að breyta þurfi lögum
svo að sérfræðingar komi að og leið-
beini gefendum og sóknarnefndum í
þessum efnum. „Einmitt vegna þess
að allt sem gert er í kirkjum skiptir
almenning svo miklu máli. Síðan
er afar erfitt að fjarlægja hluti úr
kirkjum þegar fólk er búið að gefa
þá af heilum hug.“
Skúli S. Ólafsson, sóknar prestur
Keflavíkurprestakalli, þekkir
þennan vanda vel en í næsta mán-
uði verða steind glerlistaverk sem
staðið hafa í gluggum Keflavíkur-
kirkju fjarlægð og því komið fyrir
í geymslu. Hefur það vakið sterk
viðbrögð hjá mörgum sóknar-
barnanna. „Og ég skil það sjónar-
mið ósköp vel,“ segir Skúli. Þetta er
liður í því að koma kirkjunni í upp-
runalegra horf fyrir aldarafmæli
hennar árið 2015 en Skúli segir
Gjafir til guðshúsa
setja sóknir í vanda
Víðast hvar eru sóknir í vanda með gjafir sem henta ekki kirkjum, segir for-
maður húsafriðunarnefndar. Það kallar á sterk viðbrögð þegar gjafir eru fjar-
lægðar eins og í Keflavíkurkirkju þar sem teknir verða niður steindir gluggar.
Í KEFLAVÍKURKIRKJU Skúli S. Ólafsson segist vel skilja þá sem sjái á eftir steindu
gluggunum en þeir verða teknir niður í næsta mánuði.
einnig aðrar ástæður fyrir breyt-
ingunum. Til dæmis sé ekki hægt
að opna þessa steindu glugga og hafi
af þeim sökum oft verið þungt loft
innan dyra.
„Á sólskinsdögum hefur meira
að segja orðið svo loftlítið að það
hefur liðið yfir sóknarbörn í miðri
guðsþjónustu. Þannig að nú þykir
mörgum tími til kominn að ferskur
blær fái að leika um kirkjuna,“ segir
Skúli. Einnig segir hann að gler-
listaverkið hafi enga skírskotun til
sögu kirkjunnar. „Þess misskilnings
hefur líka gætt að við séum að
skipta um gler en svo er ekki því
þetta glerlistaverk var einfaldlega
sett innan við rúðuna. Nú verður
þetta tekið niður svo sólin lýsi kirkj-
una upp en það er ekki þar með sagt
að ekki verði hægt að setja verkið
upp aftur.“ jse@frettabladid.is
DANMÖRK Nýjar fornleifarann-
sóknir í nágrenni Ribe á Jótlandi
benda til þess að Danir hafi tekið
kristni fyrr en hingað til hefur
verið talið. Þetta kemur fram á
vef Berlingske.
Samkvæmt rúnum á Jalang-
urssteininum innleiddi Haraldur
blátönn konungur kristni á seinni
hluta tíundu aldar. Grafirnar við
Ribe, sem eru um einni öld eldri,
eru hins vegar nær örugglega
úr kristnum sið þar sem fólkið
er lagt til á ákveðinn hátt. Því er
talið víst að hluti Dana hafi tekið
á móti kristni nokkru áður en hún
var lögleidd. - þj
Ný tilgáta fornleifafræðinga:
Danir kristnir
fyrr en talið var
JALANGURSSTEINARNIR Á öðrum
steininum segir að Haraldur blátönn hafi
kristnað Dani. WIKIPEDIA/CASIOPEIA
MÁNUDAGUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
33°
27°
24°
31°
32°
23°
23°
25°
24°
29°
33°
33°
21°
30°
20°
21°Á MORGUN
Hæg vestlæg eða
breytileg átt.
MÁNUDAGUR
Hæglætis veður víðast.
10
12
13
13
13
15
14
15
16
14
8
2
4
5
5
3
3
7
6
4
4
9
15
16
15
15
17
15
18
19
15
16
BLÍÐA UM
HELGINA Þetta
sumar hefur verið
hreint ótrúlegt
hvað varðar sól
og blíðu. Djúp
lægð kom til okkar
síðustu helgi með
rok og rigningu en
nú snýst dæmið
alveg við. Hægur
vindur og bjartviðri
um allt og fl ottar
hitatölur!
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Við erum með einhver
ódýrustu bílastæði í
hinum vestræna heimi.
KARL SIGURÐSSON
FORMAÐUR UMHVERFIS- OG
SAMGÖNGURÁÐS REYKJAVÍKUR
LÖGREGLUMÁL Rannsókn á andláti
fanga á Litla-Hrauni í maí síðast-
liðnum stendur enn yfir. Niður-
staða úr krufningu er ókomin enn.
Talið er að fanganum, Sigurði
Hólm Sigurðssyni, hafi verið
veittir áverkar sem drógu hann
til dauða. Tveir þekktir ofbeldis-
menn, Annþór Kristján Karls-
son og Börkur Birgisson, sáust
á öryggismyndavélum fara inn í
klefa til Sigurðar skömmu áður en
hann lést og voru í kjölfarið hand-
teknir.
Að sögn Þorgríms Óla Sigurðs-
sonar hjá rannsóknardeild lög-
reglunnar á Selfossi er ekki vitað
hvenær niðurstöðu krufningar er
að vænta. Annars vill hann litlar
upplýsingar veita um gang rann-
sóknarinnar. - sh
Bíða enn gagna úr krufningu:
Andlát fanga
enn í rannsókn
NOREGUR Til stendur að koma á
ferjusiglingum milli Noregs og
Bretlands á nýjan leik. Að því
vinna fjárfestar í báðum löndum.
Fram til 2008 fór ferja á milli
Newcastle í Englandi og Bergen,
Stavanger og Haugesund í Nor-
egi. Þegar siglingarnar lögðust af
töpuðust á einu ári um 300 þúsund
gistinætur í vesturhluta Noregs.
Bergens Tidende segir nýju
ferjuna geta flutt allt að 300 bíla
og 800 farþega. - þeb
Ferjusiglingar á nýjan leik:
Sigla milli Nor-
egs og Englands
SAMFÉLAGSMÁL Myndlistarsýning
verður sett upp á torginu í Álf-
heimum á morgun. Fjórar lista-
konur munu sýna þar verk sín.
„Þetta verður svona örsýning
eða popup-sýning. Við verðum
með nokkur verk, en þau verða
af ýmsum toga, bæði málverk
og hugsanlega eitt útilistaverk,“
segir Rán Jónsdóttir, ein mynd-
listarkvennanna. - ktg
Sýning í Álfheimum:
Málverk undir
berum himni
LITLA-HRAUN Tveir voru handteknir vegna
andláts á Litla-Hrauni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR