Fréttablaðið - 27.07.2012, Qupperneq 10
27. júlí 2012 FÖSTUDAGUR10
Hagkvæmir heimilisbílar
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Nú getur þú kíkt á ergo.is og kynnt þér yfir 50 nýjar tegundir grænna
bíla og kosti grænna bílalána.
1Blönduð eyðsla á hverja 100 km
2Rekstur í eitt ár á meðalstórum fólksbíl m.v. að bensínverð sé 243 kr., dísilverð 243 kr. og akstur á ári 20.000 km
Árgerð 20052
sjálfskiptur · bensín
Árgerð 20122
beinskiptur · dísil
Sparnaður
á ári
228.420 kr.Eyðsla1 218.700 kr.
4,5 l
447.120 kr.
9,2 l
- =
24.480 kr.Bifreiðagjöld 9.760 kr.34.240 kr. - =
2.040 kgCO2 útblástur 2.380 kg
119 g/km
4.420 kg
221 g/km
- =
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
3
4
2
3
BANDARÍKIN James Holmes sendi
minnisbók til háskólans í Colorado
þar sem hann lýsti í orðum og
teikningum hvernig hann hygðist
fremja fjöldamorð, nokkrum
dögum áður en hann lét til skarar
skríða, myrti tólf manns og særði
58 í kvikmyndahúsi.
Þetta fullyrða nokkrir fjöl-
miðlar í Bandaríkjunum, en lög-
reglan hefur ekki viljað staðfesta
það.
Fulltrúar háskólans staðfesta
hins vegar að pakkinn hafi komið í
pósti á mánudegi, innihaldið verið
skoðað strax og hann síðan sendur
til lögreglunnar sam stundis. Ekki
er vitað hvað lögreglan gerði með
pakkann, en morðin voru framin
stuttu eftir miðnætti aðfaranótt
föstudagsins 20. júlí.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti segir þennan atburð gefa til-
efni til þess að herða eftirlit með
vopnaeign í Bandaríkjunum, þrátt
fyrir harða andstöðu bæði á þingi
og meðal þjóðarinnar við hvers
kyns bönn í þeim efnum.
„En ég hef trú á því að margir
byssueigendur myndu fallast
á að AK-47 rifflar eigi að vera
í höndum hermanna, en ekki
glæpamanna,“ sagði Obama á
fundi á miðvikudag.
Hann hefur hins vegar ekki
kynnt neinar tillögur að lögum
um efnið, enda væru litlar líkur
til þess að þingið samþykkti slík
lög.
Repúblikaninn Mitt Romney,
sem keppir við Obama um for-
setaembættið í kosningum í
haust, segist ekki sjá ástæðu til
að breyta lögum um vopnaeign í
Bandaríkjunum.
„Margt af því sem þessi ungi
maður gerði var greinilega brot á
lögum. En sú staðreynd að þetta
voru lögbrot kom ekki í veg fyrir
að það gerðist,“ segir Romney.
Vopnasinnar í Bandaríkjunum
vísa jafnan í 2. viðauka banda-
rísku stjórnarskrárinnar, sem
tryggir öllum íbúum landsins
óskertan rétt til að eiga og bera
vopn.
Túlkun viðaukans hefur reyndar
verið umdeild, því aðrir vilja
meina að þar sé fyrst og fremst
verið að tryggja rétt ríkisins til
þess að hafa jafnan fullbúið her-
lið til taks. Hæstiréttur Banda-
ríkjanna hafnaði hins vegar
þeirri túlkun í úrskurði sínum árið
2008, þar sem naumur meirihluti
dómara komst að þeirri niðurstöðu
að stjórnvöld mætti ekki setja lög
sem banna einstaklingum að eiga
og bera skotvopn. Slík lög brytu í
bága við stjórnarskrána.
gudsteinn@frettabladid.is
Sendi lýsingu
á morðunum
Obama Bandaríkjaforseti vill herða eftirlit með
vopnaeign. Lögreglan hafði fengið pakka frá morð-
ingjanum fyrir fram en verst allra frétta af málinu.
Í RÉTTARSALNUM James Holmes, sem skaut á fólk við forsýningu á nýjustu Batman-
myndinni í Bandaríkjunum, sendi háskólanum í Colorado ýtarlegar lýsingar í orðum og
teikningum á áformum sínum nokkrum dögum fyrir fjöldamorðin. NORDICPHOTOS/AFP
1. Hvar veitti Orkustofnun nýverið
umdeilt rannsóknarleyfi?
2. Hvar er kvikmyndin Djúpið
heimsfrumsýnd?
3. Hvar tekur Vegagerðin niður
eyjar sem áttu að hægja á umferð?
SVÖRIN
SVÍÞJÓÐ Um 100 berjatínslumenn
frá Búlgaríu hafa verið fluttir
frá norðurhluta Svíþjóðar í búlg-
arska sendiráðið í Stokkhólmi.
Fólkið var yfirgefið vegna
lélegrar uppskeru. Á mánudags-
kvöld kom það í bæinn Svabens-
verk þar sem íbúar gáfu því mat
og húsaskjól. Fólkið óskaði þess
að komast í sendiráðið til að
fá hjálp við að komast heim til
Búlgaríu.
Sendiráðið vissi hins vegar
ekkert um fólkið og sagði enga
lausn að fá það þangað. - þeb
Skilið eftir í Svíþjóð:
Berjatínslufólk
á hrakhólum
1. Í Stóru Laxá í Hrunamannahreppi. 2. Á
kvikmyndahátíðinni í Toronto í Kanada. 3.
Við innkeyrslur í Þjóðgarðinn á Þingvöllum.
SKIPULAGSMÁL Borgarráð samþykkti
á fundi sínum í gær að stofna til
hönnunarsamkeppni um fyrir-
hugaða viðbyggingu Sundhallar-
innar við Barónsstíg í Reykjavík.
Lengi hefur staðið til að byggja við
Sundhöllina og gera þar útilaug.
Samkeppnin mun taka mið af þeirri
vinnu sem þegar hefur verið unnin
að hálfu borgarinnar.
Skipulags- og byggingaráð og
framkvæmda- og eignasvið munu
hafa forystu um hönnunarsam-
keppnina í samvinnu við ÍTR,
rekstraraðila sundlauga Reykja-
víkur, og Arkitektafélag Íslands.
Í lok maí lagði starfshópur
um endurbætur og hugsanlega
stækkun Sundhallarinnar inn
skýrslu til borgarráðs. Í skýrslunni
er lögð áhersla á að viðbyggingin
geri byggingarlist Sundhallarinnar
að innan og utan hátt undir höfði.
„Sérstaða og saga bygging-
arinnar er mikil og það gerir
hana að auki eftirsóknarverða
fyrir sundlaugargesti,“ segir í
skýrslunni.
Sturtu- og búningsklefar Sund-
hallarinnar verða áfram notaðir
ef starfshópurinn fær að ráða.
Aðgengi að þeim yrði hins vegar
bætt í viðbyggingunni með
nútímalegri aðstöðu en rúmast
hefur í gömlu Sundhöllinni. - bþh
Efnt verður til hönnunarsamkeppni um fyrirhugaða viðbyggingu við Sundhöllina:
Samkeppni um nýja útisundlaug
Í SUNDI Sundhöllin var tekin í notkun í
mars 1937. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?
Úr því vel skipulagt
landvarnarlið er nauð-
synlegt fyrir öryggi frjálsra
ríkja skal réttur fólks til að
eiga og bera vopn óskertur
látinn.
STJÓRNARSKRÁ BANDARÍKJANNA
ANNAR VIÐAUKI