Fréttablaðið - 27.07.2012, Síða 22
KYNNING − AUGLÝSINGMaraþon FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is, sími 512 5411
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Við undirbúning hlaupa er mataræði mjög mikilvægt og holl næring fyrir stór
hlaup á borð við maraþon skiptir
miklu máli. Nýlega var kynnt á
markað nýtt Hleðsluskyr. Skyrið
er framleitt hjá MS Akureyri en þar
er framleitt afar verðmætt mysu-
prótein.
Hleðsluskyrið er með bláberja-
bragði annars vegar og hins vegar
hreint. Hreina Hleðslu skyrið inni-
heldur heil 26 grömm af próteinum
og ber norræna hollustu merkið
Skráargatið. Að sögn Guðnýjar
Steinsdóttur, markaðsstjóra MS,
komu hugmyndir um þróun
vörunnar fram fyrir tveimur árum
þegar Hleðslu drykkurinn kom á
markað. „Sem kunnugt er þá hafa
neytendur nú þegar úr miklu að
velja þegar skyr er annars vegar
á íslenska markaðnum,“ segir
Guðný. „Við þróun vörunnar var
vandað mjög til eigingerðar og
áferðar. Hleðsluskyr er ólíkt öðrum
skyrtegundum að því leyti að það
inniheldur hærra hlutfall af mysu-
próteinum og áferðin er einstak-
lega mjúk. Hleðsluskyrið hefur enn
fremur sérlega milt bragð. Hlut-
fall mysupróteina í skyrinu er ríf-
lega fjörutíu prósent. Mysuprótein
henta einstaklega vel við uppbygg-
ingu vöðva og eru jafnframt talin
auðmeltanlegri en önnur prótein.“
Með hreina Hleðsluskyrinu er
komin þriðja varan á þessu ári frá
MS sem fær norræna hollustu-
merkið Skráargatið. „Þær vörur
sem komast í gegnum Skráar gatið
eru þær vörur sem eru hollastar
í hverjum flokki og er merkinu
ætlað að auðvelda neytendum
að velja sér holla matvöru,“ segir
Guðný.
Þótt Hleðsluskyrið hafi ein-
göngu verið á markaði í skamman
tíma fer sala vel af stað. „Við
höfum fengið mjög góðar viðtökur
og í kynningum er mjög vel látið af
vörunni.“
„Hleðsluskyrið kemur inn í
sterkan vöruflokk en þar er fyrir
próteindrykkurinn Hleðsla sem
kom á markað 2010 og hefur fyrir
löngu slegið í gegn á meðal íþrótta-
fólks og neytenda sem sækjast eftir
hollri næringu og hágæða pró-
teinum. Hleðsla er einmitt rík af
hágæða mysu próteinum og hún
hentar mjög vel öllum þeim sem
stunda íþróttir og aðra hreyfingu.
Hleðsla og Hleðsluskyr eru jafn-
framt hlaðin víta mínum og stein-
efnum frá náttúrunnar hendi, eins
og mjólk er reyndar líka. Hleðsla
er enn fremur kolvetnarík en kol-
vetni eru mikilvægasti orkugjafi
líkamans og skipta miklu máli
við undirbúning hlaupa,“ segir
Guðný.
Hleðsla og hleðsluskyr
henta hlaupurum vel
Holl næring er mjög mikilvæg við undirbúning maraþonhlaupa. MS setti nýlega nýtt próteinríkt
skyr á markað sem er merkt norræna hollustumerkinu, Skráargatinu. Skyrið hefur hátt hlutfall
mysupróteina en þau henta vel við uppbyggingu vöðva og eru auðmeltanleg.
Hleðsluskyrið hefur fengið góðar viðtökur þrátt fyrir að hafa verið í stuttan tíma á markaði og að sögn Guðnýjar hefur vel verið látið af
því í kynningum. MYND/ERNIR
Skok k hópurinn ÍR skok k var stofnaður árið 1994 og er einn elst i skok k-
hópur landsins. Upphafsmaður
hópsins var Gunnar Páll Jóakims-
son, þáverandi þjálfari keppnis-
liðs ÍR, sem þjálfaði hópinn í upp-
hafi. Ýmsir aðilar hafa komið að
þjálfun hópsins þann tíma sem
hann hefur verið starfræktur en
undan farin þrjú ár hefur Örnólf-
ur Oddsson séð um þjálfun hans.
Hann hefur þó verið viðloðandi
hópinn mun lengur og segir margt
hafa breyst undanfarin ár þegar
kemur að hlaupum hérlendis. „Í
dag eru hlaup miklu vinsælli en
áður fyrr. Þegar ÍR skokkhópurinn
var stofnaður samanstóð hann af
blöndu eldri íþróttamanna og fólks
sem hafið einfaldlega áhuga á að
hreyfa sig.
Félagsskapurinn kringum hóp-
inn hefur alltaf skipt mjög miklu
máli og var svolítið leiðandi þáttur
í upphafi. Þannig hafa margir
byrjað að hlaupa með okkur í
gegnum tíðina sem hafa þekkt ein-
hvern í hópnum og kynnst honum
og félagslegu hlið hans líka.“
Örnólf ur seg ir skok k hópa
góðan vettvang fyrir þá sem vilja
stunda hlaup. Þannig komist regla
á hlaupin og minni hætta sé á því
að hlaupum sé frestað til dæmis
vegna veðurs. „Ég ráðlegg öllum
sem vilja stunda hlaup reglulega
að hlaupa með skokkhópi. Þannig
komast hlaupin fljótt inn í rútínu
fólks. Síðan blandast hópurinn vel
saman þótt hlauparar séu mislangt
komnir og hafi misjöfn markmið.
Æfingum er stillt upp þannig að
allir fái sitt út úr æfingum. Það er
enginn dragbítur hjá okkur.“
Sérsta k u r göng u hópu r er
þannig starfræktur innan skokk-
hópsins sem fer í reglulegar göngu-
ferðir innanlands, fjall göngur og í
náttúruskoðun. „Göngu hópurinn
fór á Vestfirði í fyrra og er núna
nýkominn frá Aust fjörðum þar
sem við fórum í gönguferð um
Víkurnar. Hópurinn fer árlega í
þriggja til fjögurra daga göngu-
ferðir. Þá er alltaf leiðsögumaður
með í för. Hingað til hefur þetta
verið 30-40 manna hópur sem
hefur farið í hvert skipti.“ Yfir
vetrar tímann eru haldnir fyrir-
lestrar fyrir meðlimi hópsins þar
sem þeir eru fræddir um ýmis mál-
efni sem tengjast hlaupum.
Samsetning hlaupahópsins er
nokkuð fjölbreytt. Meðlimir hans
eru á öllum aldri þótt miðaldra fólk
sé í meirihluta. Einnig eru f leiri
konur í hópnum en karlar. „Svo
slæðast með mjög góðir hlauparar
sem njóta þess að hlaupa með
skokkhópnum. Þá taka þeir hluta
af prógrammi sínu með okkur þótt
þeir séu að æfa annars staðar.“
Hann segir kjarnann telja 30-40
manns en f leiri mæti á vorin og
á haustin. „Það er minni mæt-
ing yfir hásumarið þegar fólk er í
sumar fríum og er ekki í bænum.
Svo fjölgar yfirleitt á haustin þegar
skólarnir byrja og þegar losnar um
tíma hjá mörgum.“
Sumarið í ár hefur verið sann-
kallað langhlaupasumar hjá með-
limum ÍR skokkhópsins. Örnólfur
segir að flestir í hópnum hafi keppt
í fimm eða tíu kílómetra hlaupi
og hálfmaraþonhlaupi í fyrra en
í ár séu f lestir að keppa í lengri
hlaupum.
„Milli 40-50 manns keppa
þetta sumarið í lengri hlaupum
bæði hérlendis og erlendis. Um 35
manns keppa í Berlínarmaraþon-
hlaupinu í haust, nokkrir hlaupa
maraþon í Reykjavíkurmaraþon-
hlaupinu í ágúst og um tíu manns
hlupu Laugavegshlaupið í sumar
þar sem hlaupið var frá Land-
mannalaugum inn í Þórsmörk.“
Félagslegi þátturinn skiptir miklu máli
Skokkhópur er tilvalinn byrjunarreitur fyrir byrjendur. Þar fá meðlimir leiðsögn í takt við getu sína og markmið.
„Ég ráðlegg öllum sem vilja stunda hlaup reglulega að hlaupa með skokkhópi,“ segir
Örnólfur Oddsson, þjálfari ÍR skokkhópsins. MYND/STEFÁN