Fréttablaðið - 27.07.2012, Side 25

Fréttablaðið - 27.07.2012, Side 25
KYNNING − AUGLÝSING Maraþon27. JÚLÍ 2012 FÖSTUDAGUR 5 Atlas göngugreining er stað-sett í Íþróttamið stöðinni Laugarda l. „Við er um hluti af afreksmiðstöð ÍSÍ þannig að mikið af afreksíþróttafólki og hlaupurum kemur til okkar í göngu- og hlaupagreiningu. Við höfum mjög reynslumikið starfs- fólk í göngu- og hlaupagreiningum og að auki erum við sérfræðingar í skóm,“ segir Lýður B. Skarphéðins- son, sérfræðingur hjá Atlas. Göngu- og hlaupagreining er fyrir alla sem eru með einkenni í stoðkerfinu s.s. í baki, mjöðmum, nára, hnjám, framan á leggjum ( b e i n h i m nu b ól g a), k á l f u m , ökklum, hælum, iljum og tábergi. Einnig fyrir þá sem hafa aflaganir á fæti, aukabein eða óeðlilegan vöxt beina. „Í stuttu máli er göngugrein- ing fyrir alla þá sem eru með verki í líkamanum. Þegar fólk er til dæmis að byrja að hreyfa sig og fær ein- hvers konar verki í stoðkerfið er um að gera að koma til okkar. Við finn- um oft einfalda lausn á vandamáli sem getur orðið stórt ef ekkert er að gert. Ef eitthvað kemur í ljós sem við ráðum ekki við að laga höfum við mjög öflugt net ýmissa sérfræðinga svo sem bæklunarlækna, sjúkra- þjálfara og annarra sem við vísum fólki til. Við höfum verið lengi í göngu- og hlaupagreiningum og okkar reynsla er mjög jákvæð.“ Göngugreining er mikilvæg fyrir alla með mikið álag á fótunum. „Þegar fólk kemur í greiningu til okkar er fyrst tekin skýrsla og farið í gegnum verkja- og meiðslasögu við- komandi. Við einbeitum okkur að verkjum í stoðkerfi. Næst er tekin upptaka af viðkomandi að ganga og/eða hlaupa á bretti og sjáum við þá skekkjur í hælum ökklum og hnjám. Einnig notum við fullkomna tölvuþrýstiplötu sem sýnir hvernig álagið kemur niður á fæturna. Næst er mæld mislengd ganglima, en ná- lægt helmingur fólks mælist með mislanga fætur. Mislengd getur or- sakað brjósklos hjá sumum meðan aðrir finna lítið fyrir henni.“ Þegar niðurstaða er fengin úr greiningunni eru ýmsar lausnir í boði. „Við ráðleggjum fólki um skó- búnað miðað við fótlag og niður- stig. Getum leiðrétt skekkjur og mislengd með sérsmíðuðum inn- leggjum og þar til gerðum púðum og/eða með skóbreytingum. Ef mis- lengd mælist og einkenni eru ekki til staðar er ekkert að gert. Við erum ekki að hrófla við einhverju sem er í lagi og búum ekki til vandamál að óþörfu.“ Atlas sérhæfir sig í sölu á gæða- vörum og leggur metnað í góða þjónustu og sanngjarnt verð. Hjá Atlas sér fagfólk um sölu og þjón- ustu í verslun. „Við erum með mesta úrval landsins af Asics- skóm og fatnaði. Einnig erum við með hlaupa skó, létta gönguskó, barnaskó og sandala frá Ecco.“ Atlas ferðast um landið með göngu- og hlaupagreiningar, sölu á skóm og tengdum vörum. „Við höfum haldið þessari þjónustu í 12 ár og heimsækjum yfir 30 bæjarfélög víðs vegar um landið á hverju ári.“ segir Lýður. Nánari upplýsingar um Atlas göngugreiningu má finna á heima- síðunni www.gongugreining.is eða í síma 55 77 100. Sérfræðingar í göngu- og hlaupa- greiningum, skóm og fylgihlutum Atlas göngugreining er með reynslumikið starfsfólk sem sérhæfir sig í göngu og hlaupagreiningum. Það býr jafnframt yfir mikilli sérfræðiþekkingu á öllu sem viðkemur skóm. Atlas sérhæfir sig í sölu á gæðavörum og leggur metnað í góða þjónustu. Þau Lýður B. Skarphéðinsson og Elva Björk Sveinsdóttir sérhæfa sig í göngu- og hlaupagreiningum og Petrea Richardsdóttir er sér- fræðingur í skóm. Þau leggja metnað í góða þjónustu og sanngjarnt verð. MYND/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.