Fréttablaðið - 27.07.2012, Blaðsíða 42
27. júlí 2012 FÖSTUDAGUR26
sport@frettabladid.is
ÁSDÍS HJÁLMSDÓTTIR , keppandi í spjótkasti kvenna, verður fánaberi Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna í
London í kvöld og mun því leiða íslenska hópinn inn á Ólympíuleikvanginn í London. Ásdís er þar með önnur íslenska konan
sem fær það hlutverk á setningarhátíð sumarleikanna en Guðrún Arnardóttir var fánaberi á leikunum í Sydney árið 2000.
Ásdís keppti á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 og þetta verða því aðrir leikar hennar.
UTAN VALLAR
Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Ólympíuleikunum í London
segir sína skoðun
Í dag verða Ólympíuleikarnir settir og
er ekki annað að sjá en að allt sé til
reiðu hjá Bretunum. Þetta er mesta
íþróttahátíð heimsins og teljast Ólymp-
íuleikarnir til heimsviðburða, hvort
sem er á sviði íþróttanna eða ekki.
Hér eru allir bestu íþróttamenn
heims samankomnir en þó svo að
athyglin beinist að þeim sem keppa
um verðlaunin er sjálft íþróttafólkið
aðeins brotabrot af þeim gríðarmikla
fjölda sem tengist Ólympíuleikunum
á einn eða annan hátt.
Ég er nú búinn að vera hér í
Lundúnum í tvo daga og því rétt svo
byrjaður að kynnast starfseminni –
þá helst þeirri sem snýr að fjöl-
miðlamönnum. Og það fyrsta sem
mér datt í hug við komuna hingað í
Ólympíugarðinn er hvernig í ósköp-
unum mönnum tókst að skipuleggja
þetta allt saman. Umfangið er
gríðarlega mikið og við fyrstu sýn
einfaldlega yfirþyrmandi.
Á aðalsvæðinu, sem nefnist
Olympic Park, eru átta leikvangar þar
sem keppt er í ellefu íþróttagreinum
en þar er líka sjálft Ólympíuþorpið
þar sem eru vistaverur íþróttamanna
og þeirra fylgifólks. Svæðið er 2,5
ferkílómetrar á stærð eða á við 357
knattspyrnuvelli. Fyrir blaðamenn og
ljósmyndara er búið að reisa risastórt
hús sem verður minn heimavöllur
á meðan á leikunum stendur. Við
hliðina á því húsi er annað (og miklu
stærra) hús sem er eingöngu fyrir
þær sjónvarpsstöðvar sem sýna frá
leikunum.
Hótelið sem ég dvelst á er
miðsvæðis í Lundúnum, í Covent
Garden. Í þeirri grennd er Russel
Square og er þar búið að koma upp
stærðarinnar umferðarmiðstöð þar
sem rútur flytja fjölmiðlamenn á
keppnisstaðina. Það er nefnilega
keppt í 39 íþróttagreinum á leik-
unum á sautján stöðum víðs vegar
um borgina, ef Ólympíugarðurinn er
frátalinn.
Innan Ólympíugarðsins sjálfs eru
svo einnig rútur sem ferja fjölmiðla-
menn á milli keppnishalla, enda væri
ég líklega um klukkustund að labba
í sundhöllina sem er í hinum enda
garðsins. Það er þó ekki gert ráð
fyrir því að taka rútu í Koparboxið,
þar sem riðlakeppni handboltans fer
fram, enda í göngufæri. Samt tekur
það mig um 20 mínútur að labba
þessa leið, sem virtist svo stutt á
kortinu sem ég kynnti mér áður en
ég hélt utan.
Við komuna í blaðamannahöllina
fékk ég leiðarvísi fyrir rútusam-
göngurnar. Hann er tæplega 200
blað síður. En samgöngur fyrir fjöl-
miðlamenn og aðra starfsmenn
eru aðeins brot af þeirri starfsemi
sem búið er að setja á laggirnar fyrir
leikana en þetta ætti að veita innsýn í
hversu mikið umfangið er.
Ballið byrjar svo á morgun.
Íslendingarnir 27 keppa í samtals
sex greinum og í þremur þeirra
(badminton, júdó og skotfimi)
utan Ólympíugarðsins. Kári Steinn
Karlsson keppir svo í maraþoni karla
á lokakeppnisdeginum og geri ég nú
ekki ráð fyrir að fylgja honum eftir
hvert fótmál – nema þá að ég verði
í það góðri æfingu eftir að hafa elt
uppi hina íslensku keppendurna í
rúmar tvær vikur.
Ég keppi í eltingaleikÓL2012 Enn eru einhverjir miðar
óseldir á setningarathöfn Ólymp-
íuleikanna í Lundúnum í tveimur
dýrustu flokkunum. Miðarnir í
þeim flokkum kosta annars vegar
1.600 pund (310 þúsund krón-
ur) og 2.012 pund (390 þúsund
krónur) og því ef til vill skiljan-
legt að eftirspurnin hafi ekki
verið mikil.
Skipuleggjendur eru enn
að íhuga ráð sitt en útiloka
ekki að gefa miðana, þá til
barnafjölskyldna og/eða
hermanna.
Setningarathöfnin hefst
klukkan 20 í kvöld og má
búast við miklu sjónarspili.
Kvikmyndaleikstjórinn Danny
Boyle hefur yfirumsjón með
henni en alls var um 5,2
milljörðum króna varið í að gera
sýninguna sem glæsilegasta. - esá
Setningarathöfn ÓL í kvöld:
Þeir dýrustu
eru enn óseldir
FJÖR Í KVÖLD Bretar bjóða heiminn
velkominn í kvöld. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Öll íslensku liðin eru nú úr leik í
Evrópukeppnunum eftir að FH og Þór féllu
út Evrópudeildinni í gærkvöldi. FH-ingar
áttu mun meiri möguleika en Þór en urðu að
sætta sig við 0-1 tap á móti AIK á heima-
velli eftir að hafa gert 1-1 jafntefli í fyrri
leiknum.
AIK hóf leikinn með mikilli pressu og fékk
fín færi snemma leiks sem liðið nýtti ekki.
Þegar FH virtist hafa staðið mestu pressuna
af sér gerðu leikmenn liðsins skelfileg
mistök í vörninni sem varð til þess að Martin
Lorentzson náði skoti sem fór af varnar-
manni og í netið. Heppnismark á 40. mínútu.
FH var meira með boltann í seinni hálfleik
en náði ekki að skapa sér afgerandi færi til
að jafna metin en féll engu að síður út með
sæmd.
„Þetta snerist að mínu mati um það halda
út í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikurinn var
betri en það vantaði herslumuninn þegar
kominn var inn á síðasta þriðjunginn en ég
held að við höfum staðið okkur vel á móti
AIK, atvinnumannaliði,“ sagði Heimir
Guðjónsson þjálfari FH.
Þórsarar nýttu ekki tvær vítaspyrnur í
0-1 tapi á móti tékkneska liðinu FK Mlada
Boleslav á Þórsvellinum í gær. FK Mlada
Boleslav vann fyrri leikinn 3-0 og þar
með 4-0 samanlagt. Lukáš Magera skoraði
sigurmarkið á 31. mínútu. Jan Seda varði
víti sem Ármann Pétur Ævarsson tók á 33.
mínútu og Jóhann Helgi Hannesson skaut
framhjá úr öðru víti á 52. mínútu. Jóhann
Helgi fékk sitt annað gula spjald á 68.
mínútu. -gmi, óój
Seinni leikirnir í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í gær:
Lið FH-inga og Þórsara féllu bæði úr leik
HELGI VALUR DANÍELSSON Fagnaði sigri með félögum
sínum í AIK í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GOLF Keilismaðurinn Rúnar Arn-
órsson og Valdís Þóra Jónsdóttir
úr Golfklúbbnum Leyni eru efst
eftir fyrsta daginn á Íslands-
mótinu í höggleik á Strandarvelli
á Hellu.
Rúnar lék holurnar 18 á 66
höggum eða fjórum höggum
undir pari. Rúnar fékk fimm
fugla á hringnum, á 2., 7., 10., 12.
og 15. holu. „Ég fékk einn skolla,
en annars var þetta að ganga vel
upp. Ég lék vel í meistaramótinu
hjá Keili og ég ætla bara að halda
því áfram,“ sagði Rúnar. Hann
hefur eitt högg í forskot á heima-
manninn Andra Má Óskarsson
og GR-inginn Harald Franklín
Magnús. Íslandsmeistarinn frá
því í fyrra, Axel Bóasson, fann
sig ekki og lék á fjórum höggum
yfir pari.
Birgir Leifur Hafþórsson er
í 8. sæti en hann lék hringinn á
einu höggi undir pari.
Valdís Þóra hefur eins höggs
forskot hjá konunum en hún lék á
71 höggi eða einu höggi yfir pari.
Anna Sólveig Snorradóttir úr GK
og Guðrún Pétursdóttir úr GR
koma næstar en þær léku báðar á
72 höggum.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
Íslandsmeistarinn frá því í
fyrra, lék ekki vel og er hún á 77
höggum eftir fyrstu 18 holurnar.
Ítarlegri umfjöllun um mótið
má finna inn á Vísi. - óój, - seth
Íslandsmótið í höggleik í gær:
Rúnar og Valdís
byrjuðu best
RÚNAR ARNÓRSSON Lék manna best á
Hellu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SETH
ÓL2012 Keppni á Ólympíuleikum
hefst af fullum krafti á morgun og
eins og venjulega beinist athygli
margra að sundi sem keppt verður
í fyrstu dagana. Ísland á alls sjö
sundkappa á leikunum og keppa
þrír þeirra strax á morgun.
Fréttablaðið hitti á íslenska
sundhópinn í Ólympíuþorpinu í
gær og lá vel á öllum í hópnum,
enda fjögurra ára bið á enda. Þeir
sem eru að keppa á sínum fyrstu
leikum hafa beðið alla ævi.
Eygló Ósk Gústafsdóttir er
sautján ára gömul og yngsti
keppandi Íslands á Ólympíu-
leikunum í þetta skiptið. Hún segir
upplifunina einstaka.
„Þetta er æðislegt. Miklu stærra
en ég bjóst við. Það sem stekkur
á mann er hversu ótrúleg vinna
hefur farið í að byggja þetta allt
saman upp,“ sagði hún og benti á
þær fjölmörgu byggingar sem eru
nú vistarverur íþróttamannanna
á leikunum.
Jakob Jóhann Sveinsson er
reyndasti keppandi Íslands á
leikunum en hann er að taka þátt í
fjórða skiptið. Hans frumraun var
í Sydney fyrir tólf árum síðan.
„Mér finnst voðalega stutt síðan
ég var á mínum fyrstu Ólympíu-
leikum. En tíminn líður bara svona
hratt,“ sagði hann.
Jakob fannst þægilegt að koma
inn í þorpið í fyrsta sinn. „Ég var
stressaður áður en ég kom en
leið svo mjög vel þegar ég kom
inn í þorpið. Hér þekki ég allar
aðstæður svo vel og leið eins og
ég væri kominn heim, þó svo að
ég hafi aldrei komið hingað áður.
Fyrir mér eru Ólympíu leikarnir
eins og jólin – hér er allt frítt
og komið fram við mann eins og
kóngafólk.“
Undirbúningur flestra hefur
gengið vel fyrir sig. Reyndar var
ákveðið í gær að Hrafnhildur
Lúthersdóttir myndi ekki keppa í
100 m bringusundi á sunnu daginn
þar sem hún er meidd á olnboga.
„Við vorum í æfinga búðum í
Frakklandi þar sem ég datt og
meiddi mig,“ segir hún. „Ég hef
því misst aðeins úr æfingum en á
þessu stigi undirbúningsins hefði
ég hvort sem er þurft á hvíldinni
að halda og kom það því ekki að
sök. Vonandi dregur þetta ekki úr
mér kraftinn – ég ætla alla vega að
vera áfram jákvæð og bjartsýn.“
Æfingaferlið hefur þó verið mis-
munandi hjá sundfólkinu. Eygló
Ósk var fyrst til að tryggja sig
inn á leikana þegar hún gerði það
á Íslandsmeistaramótinu í apríl
síðast liðnum og naut góðs af því.
„Það var mjög þægilegt – ekkert
stress í sumar og ég gat slakað á
og einbeitt mér frekar að æfing-
um en að ná lágmörkum á loka-
sprettinum. Öll mót eftir ÍM hafa
verið æfingamót fyrir mér.“
Sundfólkið á það allt sameigin-
legt að vera í sínu besta formi nú
enda stefnan að toppa á Ólymp-
íuleikunum. Og mátti heyra á
flestum að markmiðin væru
svipuð. „Ég ætla bara að gera mitt
besta og fara eins hratt og ég get,“
sagði Eygló og mælti þar í raun
fyrir allan hópinn.
Ólympíuleikarnir eins og jólin
Þeir sjö sundmenn og -konur sem skipa íslensku keppnissveitina ætla að ná sínu besta fram á
Ólympíuleikunum. Þrír þeirra hefja keppni á laugardagsmorgun en leikarnir verða settir í kvöld.
SJÖ SUNDMENN Á ÓL Hér er íslenska sundfólkið á leikunum, talið frá vinstri: Eva Hannesdóttir, Anton Sveinn McKee, Árni Már
Árnason, Jakob Jóhann Sveinsson, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Sarah Blake Bateman. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
og Valgarður
Gíslason
fjalla um ÓL 2012
eirikur@frettabladid.is - valli@frettabladid.is