Fréttablaðið - 30.08.2012, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 30. ágúst 2012 31
DansLið þáttanna
kemur sérstaklega
á vegum:
5 ÁRA KAMERON BINKÍ TILEFNI AF AFMÆLI SKÓLANS VERÐUR ÚR
So You Think You Can Dance? GLÆSILEG SÝNING Í HÖRPUNNI!
ÞÖKKUM DANSGLEÐINA Á LIÐNUM ÁRUM! 10. SEPT!
AÐALKENNARI SKÓLANS –
KRAFTMIKLIR DANSTÍMAR Í HAUST BYRJA
JAZZFUNK – STREET – HIP HOP – BREAK – NÚTÍMADANS – BARNADANSAR & BALLETT - ZUMBA
ALDUR: 4-6 ára, 7-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára, 16-19 ára & 20 ára eldri (Dömur sem elska Dansa!)
12 VIKNA ANNIR – ÁRSKORT – MARG BORGAR SIG!
TRYGGÐU ÞÉR PLÁSS
dancecenter.is!
MEÐ ÞVÍ AÐ
SKRÁ ÞIG STRAX Á
dancecenter.is
dancecenter@dancecenter.is
777 3658
Nánari upplýsingar fást á
og á facebookgrúbbu DanceCenter RVK.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á
eða hringja
í síma hjá DanceCenter Reykjavík.
REYKJAVÍK
(ÞRÓTTUR)
KÓPAVOGUR
(HK, DIGRANESI)
GARÐABÆR
(SJÁLANDSSKÓLA)
HAFNARFJÖRÐUR
(FH, KAPLAKRIKA)
5 ÁRA
AFMÆLI!
„Við eigum von á mörg hundruð
manns í þetta partí en við erum
með það mikla aðsókn á nám-
skeiðin okkar að slíkar vænt-
ingar eru vel raunhæfar,“ segir
Jóhann Örn Ólafsson, zumba-
kennari hjá Dans og Jóga.
Dans og Jóga standa fyrir risa
zumba-veislu í Vodafonehöllinni
þann 8. september. Enginn annar
en Páll Óskar mætir á svæðið og
syngur fyrir trylltum dansi og er
öllum velkomið að mæta. „Þótt þú
hafir aldrei farið í zumba-tíma á
ævinni, eða bara danstíma yfir
höfuð, þá er þér velkomið að
mæta,“ segir Jóhann Örn og
bætir við að fólk geti tekið börnin
með sér en allir 10 ára og eldri
ættu vel að geta dansað með.
Partíið mun standa yfir í tvo og
hálfan tíma og lofar Jóhann brjál-
uðu fjöri allan tímann. „Við erum
að búa til zumba-dans í takt við
lögin hans Palla og ég er viss um
að það verði skemmtileg og flott
upplifun að dansa við lifandi tón-
list,“ segir hann.
Hægt er að kaupa miða á
skemmtunina á heimasíðunni
midi.is og kostar hann 2.500
krónur. „Það er nóg pláss inni
í höllinni svo ég hvet alla til
að kíkja við,“ segir Jóhann að
lokum.
- trs
Páll Óskar stjórnar zumba-partíi
ZUMBA-PARTÍ Páll Óskar mætir í
Vodafonehöllina þann 18. september og
syngur og spilar á zumba-hátíðinni.
Börn popparans sáluga Michaels
Jackson ætla að ljá persónum í
asískri teiknimyndaseríu raddir
sínar. Prince, Paris og Blanket,
sem eru á aldrinum tíu til fimm-
tán ára, munu þar með feta í fót-
spor föður síns í skemmtana-
bransanum.
Teiknimyndirnar, sem hafa
notið mikilla vinsælda í asísku
sjónvarpi, verða sýndar í Banda-
ríkjunum í framhaldinu.
Prince og Paris hafa áhuga
á að leggja leiklistina fyrir sig.
Þau leika í fjölskyldumyndinni
Lundon’s Bridge and the Three
Keys á næsta ári, sem verður
frumraun þeirra á hvíta tjaldinu.
Börnin í teiknimynd
PARIS JACKSON Dóttir Michaels Jackson
hefur áhuga á skemmtanabransanum.
Búið er að tilkynna alla þá lista-
menn er koma fram á Iceland
Airwaves tónlistarhátíðinni í ár.
Skipuleggjendur hátíðarinnar
kynntu síðustu 78 listamennina
er stíga á svið í október.
Meðal þeirra listamanna sem
kynntir voru í gær eru Apparat
Organ Quartet, Elíza Newman,
EmmSjé Gauti, Strigaskór Nr.
42, danska sveitin The Foreign
Resort, Ultra Mega Technobandið
Stefán, Woodpidgeon frá Kanada
og Æla.
Iceland Airwaves fer fram í
Reykjavík dagana 31. október
til 4. nóvember. Uppselt varð á
hátíðina um miðjan ágúst, ellefu
vikum fyrir upphaf hennar. - sm
Airwaves list-
inn tilbúinn
FRÍÐUR FLOKKUR Elíza Newman er
meðal þeirra sem koma fram á Iceland
Airwaves í ár.
Hann Harry Bretaprins kann
svo sannarlega að valda usla.
Ekki nóg með að nektarmyndir
af honum hafi lekið í fjölmiðla og
eru nú helsta áhugamál netverja
um heim allan, heldur gerðist
ýmislegt fleira á hótelherberg-
inu í Las Vegas þar sem hann
var í fríi. Orðrómur er nú í gangi
um að myndband sé til af prins-
inum þar sem hann dansar um
nakinn ásamt því að neyta kóka-
íns. Einnig hafa vitni gefið til
kynna í erlendum fjölmiðlum að
einhverjar kynlífsathafnir kunni
að hafa átt sér stað. Víst þykir
að myndirnar séu í það minnsta
bara toppurinn af ísjakanum og
að greyið Harry eigi ekki gott í
vændum. Það er víst ekki alltaf
tekið út með sældinni að vera
konungborinn.
Prinsalæti
DJAMMARI Harry virðist hafa tekið vel á
því í Las Vegas.