Fréttablaðið - 30.08.2012, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 30.08.2012, Blaðsíða 52
30. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR36 lifsstill@frettabladid.is Eygló Guðjónsdóttir á svo sannarlega ráð undir rifi hverju en hún er forstöðu- maður Leiðbeiningastöðvar heimilanna og aðstoðar fólk með ýmis vandamál í gegn- um síma eða Internetið. HÚSRÁÐ „Það er mikið um karla sem hringja inn og biðja um ráð til að elda mat eins og mamma gerir hann,“ segir Eygló hlæjandi. Leiðbeiningastöð heimilanna var sett á fót í október 1963 og fagnar því 50 ára afmæli á næsta ári. „Lengst af hringdi fólk allt- af inn en fyrir fimm árum tókum við heimasíðuna í gagnið og nú getur fólk fundið svör við flestum spurningum þar,“ segir Eygló. Hún segir þó vera töluvert af fólki sem enn hringi inn og að álagið sé árstíðabundið. „Það er mikið að gera þegar fólk stendur í jólabakstrinum, á sláturtíð og á þessum árstíma þegar verið er að spá í sulturnar og saftin,“ segir hún og bætir við að fyrirspurnir um veisluhöld og upplýsingar um erlendar gæðakannanir á heimilis- tækjum séu líka algengar. Aðspurð hvort hún sé með svör við öllum vandamálum hlær Eygló og segir það ekki vera svo gott en að það sé þó mjög sjaldan sem fólk fái ekki úrlausn sinna mála, enda leiti hún svara hafi hún þau ekki á reiðum höndum. Hún segir ungar konur vera þær sem hafi mest sam- band en að það hafi þó aukist mjög að karlar leiti að stoðar. „Fyrst eftir efnahagsófarirnar hringdi mikið af yngra fólki og var að velta fyrir sér sparnaðarráðum. Það hefur nú aðeins gengið til baka núna,“ segir hún og bætir við að aukning hafi orðið á að miðaldra karlmenn leiti aðstoðar. „Ég fékk skondið sím- tal fyrir nokkru þar sem maður hringdi og bað um ráðleggingar um hvort hann ætti að hefja sam- búð með kærustunni sinni. Honum KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is SAMBÖND Rosalind Sedacca, höf- undur bókarinnar How Do I Tell the Kids About the Divorce?, segir mikilvægt að hafa fimm atriði í huga þegar hjón með börn skilja. Fyrsta atriðið sem Sedacca nefnir er að hvorugt foreldrið skuli tala illa um hitt foreldrið í návist barnanna eða kenna því um skiln- aðinn. Þetta skaðar sjálfsmynd barnsins og einnig framtíðarsam- band foreldranna. Sedacca segir einnig mikilvægt að láta börnin ekki um ákvarðanatökur, þau eigi mjög erfitt með að gera upp á milli foreldra sinna og eigi því ekki að vera sett í þá aðstöðu. Þriðja atriðið sem Sedacca segir mikilvægt er að gera börnunum ljóst að skilnaðurinn sé ekki þeim að kenna og að minna þau á það oft og reglulega. Annað sem hafa ber í huga er að gera börnin ekki að trúnaðar- manni, þau séu of ung til að takast á við vandamál fullorðinna. Og loks segir Sedacca að aldrei eigi að rífast fyrir framan börnin. Vel heppnaður hjónaskilnaður SKILNAÐUR Ekki skal rífast fyrir framan börn þegar gengið er í gegnum skilnað, að sögn Rosalind Sedacca, höfundar How Do I Tell the Kids About the Divorce? NORDICPHOTOS/GETTY TÍSKA Alber Elbaz, yfir hönnuður Lanvin, segist ekki hafa neitt á móti því að tískukeðjur á borð við Topshop og H&M hermi eftir hönnun hans. „Ef við veitum þeim inn blástur, þá er það af hinu góða. Ég hann- aði fatalínu í samstarfi við H&M eitt sinn og fannst það skemmti- legt. Með því gat ég hannað fatnað handa fólki sem annars hefði ekki haft efni á hönnun minni. Og mér fannst gaman að 95 prósent af flíkunum höfðu selst á aðeins fjórum klukkustundum,“ sagði hönnuðurinn viðkunnanlegi í við- tali við vefsíðuna WSJ.com. Hann viðurkenndi jafnframt að hann hefði engan áhuga á að létta sig því hann óttaðist að það hefði áhrif á vinnu hans. „Ég er of þungur og læt mig þess vegna dreyma um allt sem er fislétt. Ég yfirfæri drauma mína á hönnunina og þess vegna eru flíkur mínar léttar og fljótandi. Ég er hræddur um að ef ég léttist fari ég að hanna þungar flíkur. Þið hlæið kannski, en mér er alvara.“ Vill alls ekki léttast VILL EKKI LÉTTAST Alber Elbaz hönnuður óttast að þyngdin hafi áhrif á getu hans í starfi. NORDICPHOTOS/GETTY MÖMMUMATUR, SULTUR OG SPARNAÐARRÁÐ þótti lítið til þessarar leiðbeininga- stöðvar koma þegar ég gat ekki hjálpað honum með það vandamál,“ segir hún og hlær. Leiðbeiningastöðin heldur úti heimasíðunni Leidbeiningastod. is auk þess sem hún hefur gefið út ýmiss konar fræðsluefni í gegnum árin sem hægt er að kaupa gegn vægu gjaldi. Leiðbeiningastöðin er ekki eini vettvangurinn sem miðlar hús- ráðum því samskiptasíðan Face- book fer ekki varhluta af þeim, frekar en öðru, og síðan Húsráð og annar fróðleikur hefur verið stofnuð þar. Þar geta allir Face- book-notendur skrifað sín vanda- mál og aðrir notendur komið með ráðleggingar. tinnaros@frettabladid.is Eygló segist oftast svara spurn- ingum er varða bletti í fötum en einnig sé mjög algengt að fólk glími við sveppi í þvottavélunum sínum. „Margir hringja inn og kvarta yfir því að þvotturinn sé farinn að lykta illa hjá þeim. Þá er yfirleitt um að ræða sveppi í þvottavélum sem er mjög algengt og auðvelt að glíma við. Það er aðallega eitt efni sem vinnur á þessu og það heitir Rodalon og fæst í næsta apóteki,“ segir Eygló og bendir á síðuna Leidbeiningastod.is til að fá nánari leiðbeiningar um hvernig skuli losna við sveppinn. SVEPPIR Í ÞVOTTAVÉLUM ALGENGIR OSTSNEIÐAR Á DAG minnka líkurnar á sykursýki 2 um 12% samkvæmt nýjum rannsóknum breskra og hollenskra vísindamanna við rannsóknarstöð lækninga í Cambridge. 2 KYNLÍF Ég fór út að skemmta mér seinustu helgi. Á troðnum skemmti- staðnum fylgdist ég með dular- fullum augngotum, blikki, klaufa- legum strokum og óþægilega háværum samræðum milli slef- andi munns og eyra með fingri í. Mjög skemmtilegt allt saman fyrir áhorfandann en fyrir sjálfan þátt- takandann virtust þessi samskipti ekki vera neitt sérlega áhrifarík. Einu samskiptin sem geta átt sér stað í þessum aðstæðum er hvort viðkomandi sé tilkippilegur fyrir kynlíf. Því verður það oft eina leiðin til að kynnast tilvonandi maka. Þú nærð varla að kryfja persónuleika viðkomandi til mergjar þegar þú heyrir aðeins þriðja hvert orð og þið skiptist á einræðum í eyru hvors annars. Þú verður að drekka, dansa, rekast utan í hann, staulast heim, sofa saman og skiptast (vonandi) á símanúmerum þegar ölæðið er runnið af ykkur. Það er, ef viðkom- andi er talinn ásættanlegur í hörðu dagsljósi timburmanna. En hvað ef þig langar ekki að fara þessa leið? Ég var orðin leið á þessum klaufa- lega dansi, fannst hann einhæfur og flókinn. Mér gekk illa að slíta vininn úr þéttu fangi Bakkusar til að spyrja hann hvort hann langaði í kærustu eða bara einn snöggan. Flestir segja nú líka ansi margt til að komast í einn snöggan. En ég nennti þessu ekki. Ég nennti ekki klaufalegu fálmandi kynlífi með Bakkusi og sveittum djammara sem var svo týndur í sinni eigin til- veru að hann stundi vitlaust nafn og staulaðist sokkalaus heim til sín. Það er fátt um úrræði fyrir þá sem þessu ekki nenna og vilja bara kynn- ast einhverjum sem hefur svipaðar lífsskoðanir og gildi. Vissulega má liggja á netinu, pota og senda skila- boð en það getur verið tímafrekt og ekki allra að fara vel með hið skrifaða orð. Það vantar einhvern miðlara, einhvern sem sér um að para saman þá sem passa saman og vilja fá svipaða hluti út úr líf- inu. Bandaríkin hafa verið framar- lega í slíkum sambandsmiðlunum og samkvæmt þeim þá svínvirkar þetta. Slík miðlun hefur nú verið opnuð hér á landi og verður spenn- andi að fylgjast með hvort týndar sálir finni ástina hvor í annarri á formlegu stefnumóti. Kannski jafn- vel þróast einhvers konar menn- ing stefnumóta í framhaldinu. Það er mér algjörlega óskiljanlegt af hverju við erum svona feimin við stefnumót og ég skora á samlanda mína að breyta því frá og með þess- um degi. Af hverju berum við kyn- færin áður en við berum hjartað? Kærasta eða einn snöggur? STEFNUMÓT EÐA DRÁTTUR Hvað er til ráða fyrir þá sem ekki vilja hefja makaleit sína á skemmtistöðum eða öldurhúsum bæjarins? NORDICPHOTOS/GETTY RÁÐ UNDIR RIFI HVERJU Eygló leggur mikið upp úr því að geta svarað öllum spurn- ingum sem berast og leitar sér oft svara hafi hún þau ekki á reiðum höndum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.