Fréttablaðið - 30.08.2012, Blaðsíða 27
| FÓLK | 3
■ Marion í Dior
Franska leik- og söngkonan
Marion Cotillard vekur athygli
hvar sem hún kemur fyrir
glæsilegan klæðaburð. Leik-
konan er sérstakur aðdáandi
Raf Simons, aðalhönnuðar
Dior, og gengur jafnan í hönnun
hans. Marion varð heims-
fræg er hún hlaut Óskarsverð-
laun árið 2008 fyrir leik sinn
í kvikmyndinni Édith Piaf en
hún hlaut fjölda verðlauna fyrir
þá kvikmynd. Nýjasta mynd
hennar, The Dark Knight Rises,
var frumsýnd í lok júlí og þá
mætti Marion í hátísku fatnaði
frá Dior. Nokkrum dögum áður
hafði sami fatnaður verið sýnd-
ur á haust- og vetrarsýningu
Dior. Marion hefur leikið í fjöl-
mörgum þekktum kvikmyndum
og má meðal annars nefna
Midnight in Paris eftir Woody
Allen. Hún var forsíðustúlka
Vogue Paris nú í ágúst.
ELSKAR DIOR
Það eru mjög spennandi tímar fram undan hjá okkur. Meðal annars erum við að flytja í nýtt vinnuhúsnæði þar sem
við setjum upp okkar eigið prjónaverkstæði.
Við erum bara að flytja inn prjónavélina,“
segir Olga Hrafnsdóttir vöruhönnuður en
hún rekur hönnunartvíeykið Volka ásamt
vöruhönnuðinum Elísabetu Jónsdóttur.
Þær stöllur hafa sent frá sér heimilisvörur
úr íslenskri ull, púða og teppi og einnig kolla
sem þær hafa heklað utan um úr prjónuðum
lengjum. Kollur frá Volka verður meðal annars
sýndur á Hönnunarvikunni í Helsinki nú í sept-
ember og þá eru þær að fara á fullt við undir-
búning hönnunarvikunnar í Stokkhólmi í vor.
Með nýrri prjónavél segir Olga ný tækifæri bíða
Volka.
„Við förum á námskeið á vélina og eftir það
eru okkur allir vegir færir,“ segir hún hlæjandi
og bætir við að svona vél hafi vantað hér á
landi. „Þetta er svaka græja sem getur tekið
allt upp í 17 liti. Í framhaldinu verður auðvi-
tað vöruþróun hjá okkur. Okkur langaði til að
vera sjálfstæðar með okkar framleiðslu en það
skiptir okkur miklu máli að vörurnar okkar séu
framleiddar á Íslandi. Það þýðir auðvitað meiri
kostnað. Sjálf er ég tilbúin til að borga meira
fyrir vöru sem ég veit hvaðan kemur og hvernig
er unnin.“ ■ heida@365.is
EIGIN PRJÓNAVÉL
ÍSLENSK HÖNNUN Hönnunartvíeykið Volki
stendur í stórræðum þessa dagana. Fyrirtækið
tekur þátt í hönnunarvikunni í Helsinki í
september og Stokkhólmi í vor.
NÝ TÆKIFÆRI
Olga Hrafnsdóttir og
Elísabet Jónsdóttir vöru-
hönnuðir leggja mikið
upp úr því að vörur
Volka séu framleiddar
hér á landi. Þær eru að
flytja inn prjónavél og
munu í framhaldinu
framleiða sjálfar vöru-
línu Volka.
MYND/ANTON
20% afsláttur
St. 38-48
Haustvörurnar komnar
áður 14.990,-
nú 11.990,-
áður 16.990,-
nú 13.590,-
Við erum á Facebook
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flott föt fyrir flottar konur
st. 40 – 58
afsláttur af
öllum
útsöluvörum
*
RÝMINGARSALA Á ÚTSÖLUNNI
*90% afsláttur frá upphaflegu verði
- reiknast af á kassa
90%
VÖRUÞRÓUN
Með nýju prjóna-
vélinni sem er afar
afkastamikil er
hægt að fara í frek-
ari munsturgerð og
bæta við teppum
og púðum og fleira
spennandi,“ segir
Olga.