Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 19
Chevrolet Aveo er nú fáanlegur með dísilvél sem eyðir ekki nema 3,6 lítrum á hundraðið í blönduðum
akstri. Hann er öruggasti bíllinn í sínum
flokki og einkar glæsilega hannaður,
hlaðinn aukabúnaði og á góðu verði.
Öryggi öllu framar
Enginn bíll hefur fengið jafn háa einkunn
í árekstrarprófunum líkt og Chevrolet
Aveo. „Hann fékk fimm stjörnur í öllum
flokkum árekstrarprófa, bæði í Evrópu
og Ameríku. Þetta á við bæði hvað varð-
ar öryggi farþega og ökumanns,“ segir
Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri
Bílabúðar Benna.
Öflug dísilvél og góðir aksturseigin-
leikar
Vélin í Chevrolet Aveo er 1,3 lítra dísil-
vél sem gerir það að verkum að aflið er
mikið, eða 95 hestöfl, sem er töluvert fyrir
bíl sem vegur ekki meira en 1.200 kíló.
Eldsneytiseyðsla þessarar öflugu nettu
vélar er lítil, eða ekki nema 3,6 lítrar á
hverja hundrað ekna kílómetra í blönd-
uðum akstri. Í langkeyrslu eyðir hann
enn minna. Stýringin er einkar stefnu-
föst og hún, ásamt fínstilltu fjöðrunar-
kerfi, skilar þér ánægjulegri akstursupp-
lifun og nákvæmni í akstri. Í borgarakstri
er fullkomið samræmi milli sparneytni
og snerpu sem tryggir þægindi, afkasta-
getu og litla eldsneytisnotkun.
Glæsileg hönnun
Bíllinn er fimm dyra með sportlega yfir-
byggingu og svipmótið er í senn glæsi-
legt og kraftalegt. „Það er ofsalega þéttur
og flottur frágangur á öllu, þannig að til-
finningin er að maður sitji í margra millj-
óna króna lúxusbíl.“
Hlaðinn aukabúnaði
Þótt Aveo sé á góðu verði, bjóði besta ör-
yggi sem völ er á og sé sparneytinn, lætur
Chevrolet ekki þar við sitja heldur hleð-
ur aukahlutum á bílinn. „Aveo er með
„cruise control“, útvarpsstillingar í stýr-
inu og sérstakt hólf með tengi fyrir ipod
eða mp3-spilara sem
svo er hægt að stjórna
frá stýri. Auðvitað
er hann
svo með
raf-
magn í
rúðum og speglum, fjarstýrðum samlæs-
ingum, hita í sætum, hitamæli og armp-
úða á ökumannssæti auk fleiri þæginda.“
Startstopp-tækni
Aveo er búinn svokallaðri startstopp-
tækni sem virkar þannig að þegar stigið
er á kúplinguna og bíllinn er í kyrrstöðu
drepur vélin á sér, til dæmis á rauðu
ljósi. Þegar kúplingunni er svo sleppt
fer vélin aftur í gang. Tæknin
dregur þannig úr meng-
un og eyðslu elds-
neytis.
Kynningarblað Dísilbílar, rafbílar, metanbílar,
tvinnbílar, smábílar og aðrir eyðslugrannir bílar.
SPARNEYTNIR
MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2012
BÍLAR
Nú er enn þá lengra í
tóman tank á Chevrolet Aveo
Chevrolet Aveo Eco fæst nú með ótrúlega sparneytinni dísilvél sem eyðir aðeins 3,6 lítrum á hundraðið. Hann hefur hlotið viðurnefnið
draumabíll foreldranna og er fyrsti smábíllinn sem fengið hefur fimm stjörnur í öllum árekstrarprófum, bæði í Evrópu og Ameríku.
DRAUMABÍLL FORELDRANNA
Nýlega greindi bílavefmiðillinn vroomgirls.com frá niðurstöðum ítarlegrar úttektar á því sem
aðstandendur hans nefna bestu unglingabílana. Horft var til margra mismunandi þátta; spar-
neytni, verðs, útlits, innra rýmis, notagildis og öryggis. Sex bílar komust í úrslit, þar á meðal Aveo. Í
úttektinni hlaut hann viðurnefnið „draumabíll foreldra“. Þar réði valinu umhyggja foreldra um öryggi
barna sinna á vegunum, enda fyrsti smábíllinn sem hlýtur fimm stjörnur á árekstrarprófum bæði í
Bandaríkjunum og Evrópu.
„Foreldrar vilja auðvitað að börnin sín séu örugg þótt þau séu á litlum bíl. Chervolet Aveo veitir
mesta öryggið af öllum þeim bílum sem í boði eru af þessari stærð, eyðir svo til engu og er
glæsilega hannaður.“