Fréttablaðið - 19.09.2012, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGSparneytnir bílar MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, tp.: benediktj@365.is, s: 512 5411. | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Opel býr yfir traustum, fal-legum og dugandi bílum sem ár eftir ár tróna í efstu
sætum yfir söluhæstu bíla Evrópu.
Það segir sitt um endingu og gæði
Opel og því fagnaðarefni að fá aftur
nýja bíla frá Opel í BL,“ segir Hörð-
ur Þ. Harðarson, sölustjóri Opel hjá
BL.
Í tilefni innreiðar Opel á Íslands-
markað hefur BL opnað glæsilegan
Opel-sýningarsal í Ármúla 17. Þar
má sjá nýjustu línur Opel Corsa,
Opel Astra, Opel Zafira og Opel
Insigna sem kosinn var bíll ársins
2009 í Evrópu og hefur ekki sést
áður á Íslandi. „Síðast en ekki síst
má nefna rafbílinn Opel Ampera
sem hefur bensínvél sem drægnis-
auka sem aka má allt að 560 kíló-
metra á fullri hleðslu og fullum
tanki sem síðan er fyllt á aftur og
áfram haldið án þess að þurfa að
stinga í samband. Annars fer bíll-
inn allt að 80 kílómetra. á hleðsl-
unni einni saman en hver hleðsla
kostar ekki nema rúmar 100 krón-
ur. Þannig að ef bíllinn er einung-
is notaður á rafhlöðunni kostar það
ekki nema 36.500 krónur á ári.“
Breið vörulína
Hörður segir BL bjóða upp á breiða
vörulínu frá Opel en bílarnir eiga
það sameiginlegt að vera spar-
neytnir og glæsilega hannaðir. „Við
bjóðum upp á sparneytna bíla í
öllum stærðarflokkum, allt frá smá-
bílum til sjö manna bíla. Það telst
vissulega til tíðinda hérlendis að
umboðin bjóði upp á jafn fjölbreytt
úrval þegar kemur að sparneytnum
„grænum“ bílum.“
Hörður nefnir sem dæmi Opel
Corsa sem er bæði seldur sem bens-
ín- og dísilbíll. „Dísilbíllinn er um-
hverfisvænni og með aðeins 95
grömm í útblæstri. Bensínbílinn er
einnig svokallaður klukkubíll með
eyðslu upp á 5,1 lítra. Þetta eru því
umhverfisvænir bílar.“
Opel Astra er annað dæmi um
umhverfisvænan bíl segir Hörður.
„Astra er í boði sem 5-dyra hlaðbak-
ur og 5-dyra wagon. Dísilbílinn er
130 hestöfl en engu að síður með 95
grömm í útblæstri sem er ansi lítið
fyrir svo stóran bíl auk þess sem
hann hefur eyðslu upp á 3,7 lítra.“
Opel Insigna var kosinn bíll
ársins í Evrópu árið 2009. Bíllinn
hefur ekki áður verið í sölu hér-
lendis segir Hörður. „Insigna hefur
meðal annars tveggja lítra vél og
er 130 hestöfl. Hann hefur einung-
is 114 grömm í útblástur og eyðir
bara 4,4 lítrum á hundraði og fær
frítt í stæði í höfuðborginni.“ Bíll-
inn er einnig í boði með stærri 160
hestafla vél og sjálfskiptur. Insignia
er í boði 4-dyra og 5-dyra og einnig
í wagon-útgáfu.
Opel leggur einnig mikið upp úr
hagkvæmum en öflugum dísilvél-
um. Þannig eru flestir grænir bílar
í dag með 1,5-1,7 lítra vél en Opel-
bílarnir eru með 2,0 lítra vél. „Þetta
er alvöru afl en samt um leið græn-
ar vélar.“
Einn af nýju bílunum í Opel-
f lotanum er Opel Zafira Tourer.
Um er að ræða sjö manna bíl sem
er mun rúmbetri en forverinn auk
þess að hafa nýtt útlit. „Bíllinn er
komin í sölu hjá okkur. Hann er
beinskiptur og um leið grænn bíll
með tveggja lítra mótor, 130 hestöfl
og 4,5 lítra í eyðslu sem er ansi gott
fyrir sjö manna bíl.“ Zafiran er líka
í boði sjálfskiptur og í Cosmo-út-
gáfu sem er með panorama-fram-
rúðu og glerþaki ásamt að vera með
flottara sætafyrirkomulagi. Bíllinn
verður til sýnis um helgina.
Umhverfisvænni neytendur
Að sögn Harðar eru neytendur al-
mennt að verða umhverfisvænni
þegar kemur að ákvörðunum um
bílakaup. „Fólk spáir miklu meira
í þessum þætti en áður. Fjármögn-
unarfyrirtækin verðlauna líka lán-
takendur sem kaupa græna bíla
enda engin lántökugjöld á slík-
um bílum. Þetta er umtalsverður
sparnaður eða um 70.000-100.000
krónur.“
Opel-bílar hafa ekki verið seld-
ir hérlendis síðan árið 2008. Hörð-
ur segir marga fagna endurkomu
bílanna enda nutu þeir mikilla
vinsælda áður fyrr. Opel-bílar eru
þýskir í gegn enda hannaðir og
smíðaðir í Þýskalandi. Frágang-
ur og efnisval Opel er einfaldlega
í lúxusflokki og hægt að fullyrða
að gæði Opel eru eins og þau ger-
ast best að sögn Harðar. „Hönn-
un bílanna er frábær og mikið er
lagt upp úr öryggisþættinum og
allir bílarnir með fimm stjörnur í
árekstrarprófunum. Einangrunin
er líka mjög góð. Þetta er góð, þýsk
gæðavara út í gegn. Margar spenn-
andi nýjungar eru á leiðinni þann-
ig að viðskiptavinir okkar eiga von
á góðu í vetur.“
Nýr sýningarsalur var opnaður í
Ármúla 17 fyrr á þessu ári. Þar má
skoða fjölbreytt úrval Opel-bíla en
aðra þjónustu, viðgerðir og vara-
hluti sækja bíleigendur til höfuð-
stöðva BL við Sævarshöfða.
Umhverfisvænir bílar í öllum
stærðarflokkum hjá Opel
Íslendingar hafa farið á mis við trausta gæðinga Opel í hartnær fjögur ár. Þökk sé BL halda þeir nú innreið sína á Íslandsmarkað á
ný með ómótstæðilegt úrval traustra og glæsilegra bíla. Þar á meðal er Bíll ársins 2012 í Evrópu; rafbíllinn Opel Ampera sem fylgir
bylting í sparneytni og umhverfisvitund. Nýr sýningarsalur Opel var opnaður nú í sumar í Ármúla 17.
BL hefur opnað glæsilegan Opel sýningarsal í Ármúla. Guðmundur Finnbjarnarson sölumaður og Hörður Þ. Harðarson, sölustjóri Opel hjá BL. MYND/ANTON