Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.09.2012, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 19.09.2012, Qupperneq 22
KYNNING − AUGLÝSINGSparneytnir bílar MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 20124 Toyota Prius Plug-In er heillandi farkostur; grænn, umhverfisvænn og spar- neytinn. Að auki er hann ákaflega laglegur útlits og útbúinn nýjasta tækni- og öryggisbúnaði. Toyota á Íslandi hefur gert margvíslegar tilraunir til að sann- reyna Prius Plug-In við íslenskar aðstæður og nýir eigendur Prius Plug-In bera honum allir góða sög- una. „Meira að segja rafmagns- hræddasta fólk er óragt við að hlaða raf hlöðu bílsins,“ segir Sigur rós Pétursdóttir, vörustjóri Toyota á Íslandi, en Prius Plug-In fylgir sérstakt hleðslubox sem upp- fyllir ströngustu öryggiskröfur hér á landi. Boxið má tengja beint í raf- magnstöflu. „Því er bæði einfalt og aðgengi- legt að stinga snúrunni í samband og hlaða raf hlöðuna á aðeins einum og hálfum tíma.“ Sigurrós segir hleðslu rafhlöð- unnar duga allt að 25 kílómetra leið miðað við bestu skilyrði en reynslan hérlendis sýni að hún dugi um 20 kílómetra við algeng- ar aðstæður. „Hleðsla ætti að duga bíleigend- um úr og í vinnu á höfuðborgar- svæðinu og í minni bæjarfélögum til flestra erinda án þess að þurfa nokkurn tímann að grípa í bensín- tankinn,“ útskýrir Sigurrós. „Með skynsemi og nánari um- gengni við bílinn lærist fljótt hvern- ig komast á sem lengst á hverri hleðslu og nýta bílinn sem best. Í inngötum hverfa er þannig ekið á rafmagni en við akstur á hraðbraut- um skipt yfir í blendingsvélina með því einu að ýta á takka. Þá geymist rafmagn á rafhlöðunni á sama tíma og keyrt er á sparneytnu hybrid- kerfi.“ Sigurrós segir bíleigendur seint verða tilbúna til að verða stopp úti á miðri götu og því sé kostur að geta stillt yfir á hybrid-kerfi Prius sem er í senn traust og hagkvæmt. „Ég held að Íslendingar stökkvi ekki í einu vetfangi yfir í rafmagns- væðingu bíla heldur taki hana í skrefum. Toyota tekur það allt með í reikninginn og bendir meðal annars á að bensín megi ekki verða of gam- alt á tankinum og því varasamt að fylla bílinn þar sem daglegar vega- lengdir eru stuttar. Þá er veðurfar hér kalt á vetrum og sparar rafmagn að ræsa bílinn á hybrid-kerfinu þar til skilyrði fyrir rafmagnsakstur eru uppfyllt. Þannig fæst besta spar- neytnin og nýting bílsins.“ Í Prius Plug-In má meðal annars fylgjast með nýtingu rafmagns og bensíneyðslu á stórum skjá í mæla- borði og skoða myndrænt hvernig ökumaður byrjar smám saman að safna skógi og því næst dýrum og blómum með umhverfisvænum sparakstri. „Umhverfisvitund ökumanna eykst sjálfkrafa við akstur hybrid- bíla og fara þeir ósjálfrátt í keppni við sjálfa sig um að gera enn betur,“ segir Sigurrós. „Bensíneyðsla Prius + er uppgef- in 2,1 lítri miðað við besta akstur en þegar menn komast enn neðar hleypur í þá enn meira kapp því það finnst svo rækilega á buddunni.“ Stingdu honum í samband Ferskasti meðlimur Prius-fjölskyldunnar er tvinnbíllinn Prius Plug-In. Eins og nafnið gefur til kynna er hægt að stinga bílnum í samband og keyra allt að 25 kílómetra eftir hleðslu í aðeins eina og hálfa klukkustund. Prius Plug-In safnar líka skógi og dýrum. Toyota Prius Plug-In má stinga í samband til að hlaða rafhlöðuna í einn og hálfan tíma. Eftir það er hægt að keyra á rafmagni allt að 25 kílómetra vegalengd. Skoða má Prius-línuna í nýju húsi Toyota í Kauptúni 6 í Garðabæ. MYNDIR/ANTON NÝIR FJÖLSKYLDUMEÐLIMIR HJÁ PRIUS Saga Prius-tvinnbílsins hófst fyrir fjörutíu árum þegar japanski bílafram- leiðandinn Toyota hugsaði til framtíðar og um hvaða bíl fyrirtækið vildi kynna til sögunnar á 21. öldinni. Framtíðarsýnin reyndist sannspá og farsæl og nú er komin til landsins þriðja kynslóð Prius-tvinnbíla auk Prius-rafbíls að hluta. „Prius kom fyrst til landsins 1997. Þá var hann glænýr af færibandinu og lá svo mikið á að sýna Íslendingum framtíðar- bílinn að eintakið var með vinstri handar stýri,“ segir Sigurrós Pétursdóttir vöru- stjóri hjá Toyota á Íslandi. Þess má geta að Priusinn sem um ræðir var nýlega gefinn Borgarholtsskóla til skrafs og ráðagerða í bíliðngreinum. Prius fékk strax góðar við- tökur og reynslan hefur verið góð. „Toyota hefur farið sér hægt í framleiðslu tvinnbíla og viljað sannreyna hybrid-kerfin áður en nýjungum hefur verið bætt við. Prius hélst því óbreyttur til ársins 2010 en nýtt módel leit dagsins ljós árið 2006,“ útskýrir Sigurrós. Toyota framleiddi einnig hybrid-bílinn Auris árið 2010 og þriðja kynslóð Prius kom á markað í fyrra. „Í dag hefur Toyota tekist að ná niður kostnaði í framleiðslu tvinnbíla. Í ljósi kreppunnar hefur verið lögð áhersla á framleiðslu minni og sparneytnari bíla og nýlega bættist við Yaris Hybrid. Hann hefur slegið rækilega í gegn enda í hentugum stærðarflokki fyrir landsmenn sem eru að byrja að endurnýja bílaflota sinn og horfa einna helst til sparneytinna, minni bíla.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.