Fréttablaðið - 19.09.2012, Side 28
KYNNING − AUGLÝSINGSparneytnir bílar MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 201210
Metanbíll
er venjulegur bensínbíll með viðbót-
arbúnaði sem gerir það að verkum
að bíllinn getur keyrt á bensíni og
metani. Búnaði er komið fyrir í vél-
arhlíf bílsins og metantankar sett-
ir undir hann að aftan, í farangurs-
rými, á palli eða á annan hentugan
stað og leiðslur lagðar milli vélar og
tanka. Metan er ódýrara en bensín og
mengar minna auk þess sem niður-
felling á vörugjöldum er í boði á met-
anbreyttum bílum. Metan er loft-
tegund sem meðal annars myndast
á urðunarstöðum sorps við niður-
brot á lífrænum úrgangi og þaðan er
metangasið fengið sem nýtt er á bíla
á Ísland. Ókosturinn við metan er að
það er ekki fáanlegt nema á tveimur
bensínstöðum á höfuðborgarsvæð-
inu. Það liggur þó fyrir að opna fleiri
slíkar stöðvar í framtíðinni.
Tvinnbíll eða hybrid-bíll
er bíll sem knúinn er rafmótor og
bensín- eða dísilvél. Lítil rafhlaða er
í bílnum sem knýr rafmótorinn. Raf-
mótorinn knýr bílinn áfram úr kyrr-
stöðu en þegar ákveðnum hraða er
náð tekur bensínvélin við. Auk þess
vinna þessir tveir aflgjafar saman á
fjölbreyttari hátt, en það er mismun-
andi eftir bíltegundum og stýrikerfi
bílsins. Þegar stigið er á hemlana er
orkan sem skapast við það fönguð til
að hlaða rafgeymi bílsins, svo aldrei
þarf að stinga honum í samband við
rafmagn. Tvinnbílar eru orkuspar-
andi og eyða minna eldsneyti en
hefðbundnir bensín- eða dísilbílar
og hafa notið mikilla vinsælda und-
anfarin ár.
Rafmagnsbíll
er bíll sem eingöngu er knúinn
áfram af raforku. Hann hefur enga
vél, aðeins rafmótor og rafhlöðu sem
stinga þarf í samband við rafmagn
til að hlaða. Rafmagnsbílar skila
engum útblæstri og eru því einkar
vistvænir. Hins vegar eru takmörk á
því hve langt er hægt að aka á hverri
hleðslu og hraðinn er minni en hjá
bensín-, dísil- og tvinnbílum.
Vetnisbíll
er knúinn rafmótor. Vetni er sett á
geymslutanka bílsins og því svo um-
breytt í raforku í sérstökum efnaraf-
al. Þessi aðferð er hentugri en raf-
magnsbílatæknin að því leyti að
ekki þarf að hlaða rafgeymi líkt og
í rafmagnsbílum heldur aðeins fyllt
á vetnistankinn. En hleðsla á raf-
geymum er einkar tímafrek. Vand-
kvæði hafa þó verið á því hvernig
skuli geyma vetnið en sú tækni er í
stöðugri þróun. Annar ókostur við
vetni er orkutap. Fyrst þarf að fram-
leiða vetni með rafmagni og svo að
umbreyta vetninu aftur í rafmagn.
Við þessar breytingar tapast mikil
orka og margir sem segja það óhag-
kvæman kost þegar á heildina er
litið.
Á undanförnum árum og áratugum hefur þróun mismunandi bíla tekið stökk fram á við. Ekki hefur þó fundist varanleg lausn sem leys-ir bensín- og dísilbíla af hólmi. Þessar gerðir eru þó orðnar nokkuð
margar. Metanbíll, vetnisbíll, rafmagnsbíll og tvinnbíll eru kannski ekki
annað en orð á blaði fyrir suma. En hvaða merkingu hafa þessi orð?
Mismunandi
vistvænir bílar
Margar gerðir vistvænna bíla sem byggja á
mismunandi tækni eru til. Ekki er þó auðvelt að
átta sig á hver þeirra sé vænlegasti arftaki
hefðbundinna bensín- og dísilbíla.
Metangas er lofttegund sem meðal
annars myndast á urðunarstöðum sorps
við niðurbrot lífræns úrgangs.
Tvinnbílar eru knúnir af rafmótor og
bensín- eða dísilvél.
Rafbílar hafa enga vél, aðeins rafmótor og
rafhlöðu sem þarf að stinga í samband við
rafmagn.
ÓKEYPIS Í BÍLASTÆÐI
Reykjavíkurborg býður eigendum visthæfra bíla að leggja bílum sínum án endurgjalds í
gjaldskyld bílastæði borgarinnar. Gjaldfrjáls bílastæði fyrir visthæfa bíla voru innleidd með
Grænum skrefum árið 2007 með það að markmiði að auka notkun sparneytinna ökutækja og
einnig ökutækja sem nota innlenda orku. Reglunum var breytt í borgarráði sumarið 2011 og
gilda út árið 2012.
Visthæfir bílar teljast meðal annars vera bensín- og dísilbílar og tvinnbílar sem gefa ekki frá
sér meira en 120 grömm af koltvísýringi á kílómetra. Einnig eru bílar með brunahreyfli sem
ganga fyrir innlendum orkugjöfum, til dæmis metanóli, metani og lífdísil, og gefa ekki frá sér
meira en 120 grömm af koltvísýringi á kílómetra gjaldgengir í slík bílastæði. Einnig flokkast
bílar sem ganga fyrir rafmagni og vetni í þennan flokk.
Umræddar bifreiðar og ökutæki mega þó ekki vera þyngri en 1.600 kg. og séu þeir á
nagladekkjum fellur gjaldfrelsið niður. Lista yfir bíla sem uppfylla kröfur Reykjavíkurborgar
um ókeypis bílastæði má finna inn á vef Bílgreinasambandsins, www.bgs.is.
Vetnisbíll er knúinn rafmótor. Vetni er
sett á geymslutanka bílsins og því svo
umbreytt í raforku í sérstökum efnarafal.
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
1Blönduð eyðsla á hverja 100 km
2Rekstur í eitt ár á meðalstórum fólksbíl m.v. að bensínverð sé 243 kr., dísilverð 243 kr. og akstur á ári 20.000 km
Árgerð 20052
sjálfskiptur · bensín
Árgerð 20122
beinskiptur · dísil
Sparnaður
á ári
228.420 kr.Eyðsla1 218.700 kr.
4,5 l
447.120 kr.
9,2 l
- =
24.480 kr.Bifreiðagjöld 9.760 kr.34.240 kr. - =
2.040 kgCO2 útblástur 2.380 kg
119 g/km
4.420 kg
221 g/km
- =
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
3
4
2
3
Þú getur sparað allt
að 250.000 kr. á ári
Ef þú ekur grænum bíl þá getur þú sparað allt að 250.000 kr. á ári í
eldsneytiskostnað og bifreiðagjöld. Kíktu á ergo.is og kynntu þér yfir
50 nýjar tegundir grænna bíla og kosti grænna bílalána. Engin lántökugjöld út september 2012!