Fréttablaðið - 19.09.2012, Síða 36
19. september 2012 MIÐVIKUDAGUR20
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
G-Strengs Gulli
er úti að skokka
með vini sínum
Brúna Hauk ...
Þá allt
í einu ...
Veistu hvað
Brúni Haukur?
Þú ættir að
skipta um nafn
í Gráfiðringur!
Hvað myndirðu gera
ef þú værir ég?
Ef ég væri þú, þá myndi ég
krjúpa á kné og þakka fyrir að
vera fimmtán ára
og fá að byrja upp á nýtt.
Ég skal útskýra
þetta nánar ef
þú lofar að segja
ekki mömmu
þinni frá.
Ég meinti
reyndar hvort
ég ætti að
fara í grænu
eða rauðu
skyrtuna.
Áttu fleiri
af þessum
gráu og
hvítu sem
bragðast
eins og
kjúklingur?
Páfa-
gauka-
heimur
Aldrei mana
mömmu út í að
stöðva þig í einhverju.
Ég vissi ekki að hún væri svona
snögg að klifra upp rennuna!
LÁRÉTT
2. samtök, 6. í röð, 8. málmur, 9. fugl,
11. leyfist, 12. kortabók, 14. dútla,
16. dreifa, 17. stígandi, 18. traust, 20.
grískur bókstafur, 21. mannsnafn.
LÓÐRÉTT
1. óskerta, 3. drykkur, 4. skipafélag, 5.
af, 7. andmæli, 10. næra, 13. for, 15.
heimsálfu, 16. stykki, 19. klukka.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. stef, 6. lm, 8. eir, 9. lóa,
11. má, 12. atlas, 14. bauka, 16. sá,
17. ris, 18. trú, 20. pí, 21. karl.
LÓÐRÉTT: 1. alla, 3. te, 4. eimskip, 5.
frá, 7. mótbára, 10. ala, 13. aur, 15.
asíu, 16. stk, 19. úr.
Hikst!
Slurp!
Ég bið
um
grið!
Hikst!
Hey! (hátt blístur) Pitsan þín er til-búin!“ Ungi maðurinn með svuntuna
veifaði mér og ýtti til mín kvöldmat fjöl-
skyldunnar þetta mánudagskvöldið. Ég
varð hálf hvumsa við hátt blístrið þar sem
ég var eini gesturinn fyrir framan borðið
hjá honum en stökk auðvitað til og þreif
til mín pappakassann. Hér átti greini-
lega ekkert að hanga lengur en þörf var á.
Unga manninum stökk ekki bros og mér
sýndist hann hálf súr. Klukkan
var orðin margt. Hann lang-
aði greinilega að vera ein-
hvers staðar annars staðar en
í gluggalausu pitsueldhúsinu.
Það var mánudagur í honum.
AFGREIÐSLU- og þjónustu-
störf eru hreint ekki allra
og til að standa sig vel
í þess konar starfi
þarf jafnaðargeð.
Þjónustulund er
það víst kallað. Ég
hef sjálf unnið við
afgreiðslustörf og
veit að þau eru ekk-
ert grín. Ég fór meira
að segja á námskeið í
þjónustu þegar ég réð
mig til starfa sem þjón
í sal á hóteli fyrir mörg-
um árum. Þar var mér
sagt að brosa og vera liðleg við gestina,
sama hvað á gengi, líka á mánudögum.
Að best tækist til þegar gestinum fyndist
starfsfólkið hafa gengið lengra en venju-
legt væri við að þjónusta hann og bara
hann. Ég náði þessu ekki.
ÉG NÁÐI því hins vegar að fólk gerir
ósanngjarnar kröfur til afgreiðslufólks
alla daga vikunnar. Ég hef bæði afgreitt
pylsur gegnum lúgu og þjónað til borðs
með hvítt viskustykki á handleggnum. Ég
renndi líka eitt sinn vörum yfir skann-
ann í matvöruverslun, í nokkra daga, áður
en ég gafst upp. Það var með því erfið-
ara sem ég hef unnið við. Fólk er merki-
lega ófeimið við að sýna afgreiðslufólki
sínar verstu hliðar. Ég get talið á fingrum
annarrar handar þau tilvik gegnum tíðina
þar sem sá sem afgreiðir mig hefur verið
dónalegur, en missi töluna yfir þau skipti
þar sem ég sem afgreiðslukona lenti í
dónalegum viðskiptavinum.
NÚ ER langt síðan ég hef afgreitt nokkurn
um neitt. Sem betur fer kannski, var ekki
á réttri hillu þar. Ekki frekar en blessaður
vinur minn í pitsueldhúsinu, sem blístraði
á mig eins og hund eftir pitsunni! Ég erfði
það ekki við hann. Fékk mig ekki til þess
og hló bara með sjálfri mér á leiðinni út
með kvöldmatinn undir hendinni. Hvað ég
man þessa mánudaga.
Mánudagur til mæðu
Lindarbraut 41 Seltjarnarnesi
Til sölu gullfallegt 210 fm einbýlishús. Húsið er mikið
endurnýjað. Skjólsæll garður með stórri timburverönd og
nýlegri sólstofu. Hér er á ferðinni einkar bjart og vel skipulagt
hús með 3-4 svefnherbergjum og rúmgóðum bílskúr.
Verð 63,9 millj.
Ásmundur Skeggjason fasteignasli verður á staðnum með
allar nánari upplýsingar, asmundur@hofdi.is S: 895 3000.-
Opið hús í dag á milli 17-18:00
OP
IÐ
HÚ
S
Sigrún Stella
Einarsdóttir
lögg. fasteignasali
GSM 824 0610
NÓATÚN 27
OPIÐ HÚS MIÐVIKUDAGINN 19.9 KL. 17-17.30.
VERIÐ VELKOMIN! ÍBÚÐIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING
OP
IÐ
HÚ
S
Falleg og björt 121,9 fm 5 herb. íbúð á jarðhæð, með
sérinngangi í þríbýlishúsi á góðum stað miðsvæðis
í Reykjavík.
Lýsing eignar:
Komið inn í forstofu með flísum
á gólfi og fatahengi. Eldhús með
fallegri innréttingu, ljósar flísar á gólfi
og milli skápa. Tvær samliggjandi
stofur með parketi á gólfi, útgengt í
garð. Baðherbergi með glugga, flísar
á gólfi og veggjum, góð innrétting
og baðkar. Hjónaherbergi með
parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Barnaherbergi með parketi á gólfi,
annað herbergi með litlum glugga
sem má nýta sem herbergi eða
tölvuherbergi. Góð staðsetning, mið-
svæðis í Reykjavík, stutt í miðbæinn,
Kringluna og Klambratún.
Save the Children á Íslandi