Fréttablaðið - 19.09.2012, Page 46
19. september 2012 MIÐVIKUDAGUR30
BÓKIN
VIÐ FELLSMÚLA, 108 REYKJAVÍK - SÍMI: 585 2888
50%
afsláttur
AF ÚTILJÓSUM Í
KOPAR OG GYLLTU
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9 -18
Laugard. kl. 10 -16
Sunnud. kl. 12-16
5.995
2.997
6.995
3.497
3.995
1.997
4.995
2.497
TÖFR ANDI
· HLAUT HIN VIRTU
ORANGE-VERÐLAUN 2011
· VALIN EIN BESTA BÓK
ÁRSINS 2011 AF
MÖRGUM FJÖLMIÐLUM
· SAT LENGI Á
METSÖLULISTA
NEW YORK TIMES
– BETRI HEILSA ER BETRA LÍF MEÐ BECEL –
Halldór Baldursson, skopteiknari Fréttablaðsins,
er einn af sex handritshöfundum Áramótaskaups-
ins í ár. Hann segist hlakka til þess að fá loks
tækifæri til að vinna með öðrum í hópi í stað þess
að sitja einn að vinnu sinni.
Halldór semur handritið ásamt Sævari Sigur-
geirssyni, Önnu Svövu Knútsdóttur, Hjálmari
Hjálmarssyni, Gunnari Helgasyni og Gunnari
Birni Guðmundssyni leikstjóra Skaupsins.
„Það verður spennandi að fá að vinna með
svona skapandi og skemmtilegu fólki, að sjá
hvort ég finni nýja hlið á minni kímni og hvort
hópvinnan kveiki í fleirum þarna inni. Svo er
þetta líka mikill heiður,“ segir Halldór.
Hann segir Gunnar Björn hafa borið hug-
myndina undir sig fyrir nokkrum vikum og hefur
hópurinn þegar hist einu sinni. Aðspurður segist
hann viss um að vinna hans sem skopteiknari
muni nýtast við handritaskrifin. „Pólitískt spé er
allsráðandi á báðum vettvöngum. Það kemur líka
fyrir að brandararnir mínir ganga ekki upp sem
teikningar og þá get ég kannski notað þá í Skaup-
ið,“ segir Halldór en þverneitar að eiga brand-
ara á lager. „Ég er algjörlega hugmyndasnauð-
ur og eins og undin tuska dag hvern. Það kemur
þó alltaf eitthvað þegar maður sest niður og fer
að skapa og búa til, en það er ekki þannig að ég
haldi áfram og safni í lager. Ég er bara feginn að
vera búinn.“
Þegar hann er að lokum spurður hvort hann
muni ekki sitja límdur við sjónvarpsskjáinn á
gamlárskvöld segir hann: „Ég missi aldrei af
Skaupinu og það ætti enginn að missa af því,
þetta er skylduáhorf.“ - sm
Skopmyndateiknari skrifar Skaupið
VINNUR Í HÓP Halldór Baldursson skopmynda-
teiknari er einn af handritshöfundum Áramóta-
skaupsins í ár. Hann hlakkar til að prófa að vinna í
hópi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég á von á hörkukeppni enda tel
ég að ungmenni séu betur að sér
í ár en nokkru sinni fyrr,“ segir
Atli Freyr Steinþórsson, sem
senn tekur sæti við hlið Þórhildar
Ólafsdóttur sem spurningahöfund-
ur og dómari í Gettu betur, hinni
sívinsælu spurningakeppni fram-
haldsskólanna.
Þetta er í fyrsta sinn sem Atli
starfar í sjónvarpi en hann er þó
vel kunnur keppninni og Ríkis-
sjónvarpinu. Atli hefur starfað
sem útvarpsþulur á Rás 1 síðan
2005, en þar les hann meðal ann-
ars dánarfregnir og jarðarfar-
ir, auglýsingar, kynningar milli
þátta og stjórnar útsendingum.
„Ég held að flestir landsmenn
ættu að kannast við röddina í mér
og ég uni mér vel bak við hljóð-
nemann í Efstaleitinu. Auglýsing-
ar frá ónefndum hamborgarastað
ættu til dæmis að vera útvarps-
hlustendum að góðu kunnar,“ segir
Atli hlæjandi.
Hann þurfti ekki að hugsa sig
tvisvar um er honum bauðst að
taka að sér hið ábyrgðarfulla
starf dómara og er þess fullviss að
reynsla hans úr Gettu betur hafi
skipt máli. Sjálfur er Atli tvöfald-
ur meistari í spurningakeppninni
en hann keppti fyrir hönd Mennta-
skólans í Reykjavík árin 2002 og
2003. Atli var einnig í liðinu er
MR tapaði eftirminnilega fyrir
Borgarholtsskóla árið 2004. „Ein-
hverra hluta vegna muna flest-
ir eftir þeirri dramatísku viður-
eign, enda var það í fyrsta sinn í
mörg herrans ár sem MR tapaði í
Gettu betur,“ segir Atli en kveðst
þó bara eiga góðar minningar úr
keppninni. „Ég eignaðist marga
góða vini og þetta var mjög góður
tími. Í raun mætti kalla þetta and-
lega fegurðarsamkeppni.“
Þrátt fyrir að vera fyrrverandi
MR-ingur ætlar Atli ekki að hygla
neinum og segist verða nokkuð
harður í horn að taka sem dómari.
„Mig langar að hækka nördastuð-
ulinn í keppninni. Við Þórhildur
ætlum að hittast í október á Akur-
eyri og eiga eina góða vinnuhelgi
þar. Þetta verður bara fjör.“
alfrun@frettabladid.is
NÝR DÓMARI Í GETTU BETUR: ÚTVARPSÞULUR Í SJÓNVARPIÐ
Andleg fegurðarsamkeppni
HLAKKAR TIL Atli Freyr Steinþórsson er nýtt andlit á skjánum en hann tekur sæti í dómaratvíeyki Gettu betur. Hann er þó vel
kunnur Ríkissjónvarpinu þar sem hann hefur starfað sem útvarpsþulur á Rás 1 í sjö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ásdís Ben vinkona mín kenndi
mér að lesa eitt ljóð og eina
mataruppskrift fyrir svefninn,
sem ég geri oft, en núna er ég
sokkinn í bókina Að endingu
eftir Julian Barnes.“
Kristján Freyr Halldórsson verslunarstjóri í
bókabúð Máls og menningar.
■ Framleiðandinn Andrés Indriða-
son, sem hefur séð um keppnina
frá upphafi, lætur af störfum í ár
og við keflinu tekur Elín Sveins-
dóttir. Elín vann síðast að gerð
sjónvarpsþáttanna Með okkar
augum.
■ Keppnin hefur verið haldin árlega
síðan árið 1986.
■ Í fyrstu keppninni sigraði Fjöl-
brautaskóli Suðurlands. Þá voru
þeir Jón Gústafsson og Þorgeir
Ástvaldsson spyrlar.
■ Meðal annarra spyrla í keppninni
má nefna Stefán Jón Hafstein,
Ómar Ragnarsson, Davíð Þór
Jónsson, Sigmar Guðmundsson
og Evu Maríu Jónsdóttur.
■ Menntaskólinn í Reykjavík hefur
oftast farið með sigur af hólmi,
eða sautján sinnum.
ANDRÉS INDRIÐASON DREGUR SIG Í HLÉ
„Þetta verður örugglega geð-
veikt,“ segir trommarinn
Magnús Trygvason Eliassen.
Magnús, sem lemur húðir með
Moses Hightower, og bassaleik-
arinn Gunnar Jónsson úr hljóm-
sveitunum 1860 og Coral spila
með Damo Suzuki, söngvara
hinnar sögufrægu þýsku hljóm-
sveitar Can, í Gamla bíói 3. októ-
ber. Þar leika þeir undir hinu
þögla meistaraverki Metropolis
og er sýningin hluti af Riff-kvik-
myndahátíðinni.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu auglýsti Suzuki
eftir svokölluðum „hljóðberum“
til að spila með sér á Íslandi og
svaraði Magnús kallinu á óhefð-
bundinn hátt. „Ég sendi mjög
fyndinn tölvupóst á þau [stjórn-
endur Riff]. Þar stóð: „Hæ, ég
heiti Magnús. Mig langar að
spila með Damo Suzuki. Er það
eðlilegt?“,“ segir Magnús, sáttur
við að hafa fengið „giggið“ enda
mikill aðdáandi Can.
Aðspurður hvenær æfingar
hefjast reiknar Magnús ekki með
neinu svoleiðis. „Mér skilst að
hann sé ekki mikið gefinn fyrir
að æfa. Ég verð einhvern veg-
inn að hlaða frídjassbyssurnar
mínar áður en þetta byrjar allt
saman.“
- fb
Slær taktinn með Damo Suzuki
HLAKKAR TIL Magnús hlakkar mikið til
að spila með Damo Suzuki og félögum í
Gamla bíói. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON