Fréttablaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 70
Fjalakötturinn er vinalegur veitingastaður í hjarta
miðborgarinnar við Aðalstræti 16. Húsið var byggt
að fyrirmynd gamla Fjalakattarhússins sem var fyrsta
kvikmyndahús landsins. Það var rifið árið 1985 en endur-
byggt árið 2005.
Á Fjalakettinum er eldað úr úrvals íslensku hráefni og
í boði er úrval árgangsvína á góðu verði. Staðurinn hefur
í tvígang hlotið verðlaun frá hinu virta tímariti Wine
Spectator fyrir framúrskarandi vínseðil. „Við viljum að
fólk geti slakað á og höldum formlegheitum í lágmarki.
Stemningin er notaleg og við leggjum áherslu á góða
þjónustu og matarmikla rétti,“ segir Emmanuel Bodinaud,
matreiðslumeistari staðarins. Emmanuel sem er franskur
hefur starfað á Íslandi undanfarin 20 ár. Hann lætur vel
af landinu og rómar íslenska hráefnið. „Ég nota mikið
kryddjurtir og íslenskt hráefni; íslenskan ost, lambakjöt,
silung, naut og fleira. Ég hef til dæmis verið að prófa mig
áfram í að útbúa soufflé með íslenskum osti sem er algjört
lostæti.“
Fjalakötturinn er opin öllum gestum, alla daga í hádeginu
frá kl. 11:30 til 14, sunnudaga til fimmtudaga frá kl. 18 til
22:30 og frá kl. 18 til 23 á föstudögum og laugardögum.
Nánari upplýsingar um Fjalaköttinn, þar á meðal matseðil
og vínseðil, má finna á www.fjalakötturinn.is
H l Reykjavík Centrum er glæsilegt hótel í hjarta Reykjavíkurborgar. Á hótelinu eru
89 herbergi með öllum nútíma þægindum, svo sem
gervihnattasjónvarpi, síma, öryggishólfi og minibar.
Öll herbergin hafa sér baðherbergi sem ýmist eru
búin sturtu eða baðkari. Auk þess býður hótelið upp
á fjórar stúdíóíbúðir til útleigu í Grjótagötu, bæði til
styttri og lengri tíma. Tveir fundarsalir eru á hótelinu.
Forsetastofan sem tekur 18 manns í sæti við stórt
langborð er bæði nýtt í fundarhöld og einkasamkvæmi.
Fógetastofan tekur 45 manns í skólastofuuppstillingu
og er bæði nýtt sem fundarsalur en ekki síður undir
ráðstefnuhald og námskeið. Báðar stofurnar eru búnar
öllum nauðsynlegum fundarbúnaði.
Hótelið er staðsett í Aðalstræti 16 í nýuppgerðri gamalli
byggingu en elsti hluti hússins var byggður árið 1764.
Beggja vegna eru nýbyggingar gerðar eftir gömlum
sögufrægum húsum, Fjalakettinum og Uppsölum. Útlit
hótelsins er sótt til byggingarlistar Reykjavíkur um alda-
mótin 1900. Við byggingu hótelsins fundust elstu mann-
vistarleifar á Íslandi frá um 870. Opnað var glæsilegt sýn-
ingarrými, Landnámssýningin - Reykjavík 871±2, undir
hótelinu sem Reykjavíkurborg rekur.
Fjalakötturinn er glæsilegur veitingastaður við hliðina
á hótelinu. Þar er boðið upp á gott úrval þjóðlegra rétta.
Uppsalir er notalegur og vingjarnlegur bar við hlið
Fjalakattarins. Þar er notalegt að slaka á og fá sér drykk
eða velja úr úrvali minni og léttari rétta. Uppsalir er
einnig tilvalinn fyrir minni móttökur. Vegna nálægðar
við miðborgina er fjöldi verslana, menningarstofnana og
veitingastaða í göngufæri frá hótelinu.
Glæsilegt hótel byggt
á gömlum grunni
Vinalegur veitingastaður
byggður á gömlum grunni
Spínatbaka
Bökudeig
250g hveiti
125g smjör
1 eggjarauða
5 cl. kalt vatn
Klípa af góðu salti
Setjið hveiti á borðið og gerið holu í í miðjuna.
Skerið smjörið í litla kubba og setjið í miðjuna ásamt
eggjarauðunni og saltinu. Klípið smjörið saman við
hveitið og hnoðið svo hratt saman. Bætið vatninu út í.
Smyrjið bökuform, hristið hveiti yfir. Fletjið út deigið og
leggið í formið þannig það nái aðeins yfir barmana. Notið
smjörpappír og baunir sem farg ofan á. Bakið í ofni við
180° C í 8-10 mín. Látið kólna á borði.
Fylling
500 g ferskt spínat
Biti af geitaosti (líka hægt að nota hreinan fetaost)
70 g rifinn ostur
2 eggjarauður
2 egg
1/2 lítri rjómi
Salt og pipar
Steikið spínatið í smjöri við vægan hita í stuttan tíma.
Saltið og piprið. Látið leka af því í sigti og pressið vökva
úr. Pískið saman eggjum, eggjarauðum og rjóma. Takið
helminginn af blöndunni frá. Setjið spínatið út í og
blandið við soppuna. Hellið í bökuskelina og stráið
helmingnum af rifna ostinum yfir. Sneiðið geitaostinn
(eða fetaostinn)og raðið fallega ofan á. Hellið afganginum
af soppunni yfir og stráið rifnum osti yfir. Setjið í heitan
ofn 200° C í 10 mín. og lækkið þá niður í 180°C og bakið
í 10-15 mín. til viðbótar. Þegar bakan er stinn þá er hún
tilbúin.
MYND 5
Hótel Reykjavík Centrum
Aðalstræti 16, 101 Reykjavík
Sími: 514 6000
www.hotelcentrum.is
reservations@hotelcentrum.is