Fréttablaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 18. október 2012 33 Brynjar Níelsson, fv. formað-ur Lögmannafélags Íslands, skrifar grein á Pressunni nýlega og kýs að opinbera þar fáfræði sína um þá sögu sem býr að baki núverandi stjórnarskrá. Hann segir það alkunna að gildandi stjórnarskrá hafi aldrei verið „hugsuð til bráðabirgða“ og lætur að því liggja að um hana hafi verið sátt frá upphafi sem staðfest hafi verið með þjóðar- atkvæðagreiðslu 1944 og allar breytingar á henni síðan verið gerðar með sátt og samlyndi stjórnmálaflokkanna. Hið rétta er að stjórnarskráin var í upphafi samin af dönskum embættismönnum og einhliða neytt upp á Íslendinga sem sam- stundis hófu baráttu gegn henni og um það snerist stjórnmálabar- átta þjóðarinnar meira eða minna allt fram til 1918, þegar Ísland var viðurkennt fullvalda ríki í konungssambandi við Danmörku og stjórnarskránni breytt til sam- ræmis við það (1920). Brynjar fullyrðir að rangt sé að „lýðveld- isstjórnarskráin frá 1944 hafi aðeins verið hugsuð til bráða- birgða“. Það er þó borðleggjandi og hingað til ágreiningslaust að ráðandi öfl í landinu ákváðu að gera einungis þær breytingar á þágildandi stjórnarskrá konungs- ríkisins Íslands sem nauðsynlega og óhjákvæmilega leiddi af því að stofnað væri lýðveldi í land- inu. Þannig var lýðveldið stofnað á grunni konunglegrar danskr- ar stjórnarskrár með fáeinum orðalagsbreytingum. Svona var að málum staðið til þess fyrst og fremst að ágreiningur í þessum efnum yrði ekki til að sundra þjóðinni um meginviðfangsefn- ið: sambandsslitin við danska konungdæmið og stofnun sjálf- stæðs lýðveldis. Allur almenn- ingur taldi réttilega þá stjórn- arskrá til bráðabirgða og gert var ráð fyrir að Alþingi mundi hefjast handa um að semja nýja stjórnarskrá fyrir lýðveldið strax á fyrstu mánuðum eftir sam- bandsslitin. Gunnari Thorodd- sen var falið að leiða það verk. Um það segir ævisöguritari hans, Guðni Th. Jóhannesson: „Flestir þeir sem höfðu komið að samn- ingu lýðveldisstjórnarskrárinnar sáu fyrir sér að hún gilti aðeins til bráðabirgða.“ Ennfremur full- yrðir Guðni: „Stjórnmálamenn úr öllum flokkum hefðu gjarn- an viljað vinna að gagngerum breytingum á stjórnarskránni um leið og landið varð lýðveldi. Þeir hagsmunir vógu þó þyngra að einhugur ríkti þegar Íslend- ingar fengju á ný sjálfstæði. Og ennfremur: „Í aðdraganda henn- ar [lýðveldisstofnunarinnar] var illdeilum, þessvegna afstýrt með því að breyta að sinni sem allra minnstu í stjórnarskrá Íslands.“ Og enn: „Að sjálfstæðisheimt lok- inni skyldi endurskoðun stjórnar- skrárinnar aftur á móti hefjast. Þá mættu stjórnmálamennirnir leggja fram róttækar breytingar og berjast sín á milli.“ Guðni víkur svo að stjórnar- sáttmála nýsköpunarstjórnar- innar og minnir á að í honum hafi verið gefin fyrirheit um að í breyttri stjórnarskrá yrðu meðal annars „ótvíræð ákvæði“ um réttindi allra landsmanna til atvinnu, almannatrygginga og menntunar. Þá yrði „jafn kosn- ingaréttur“ tryggður og sett „skýr fyrirmæli um verndun og eflingu lýðræðisins og um varnir gegn þeim öflum, sem vilja vinna gegn því“. Stefnt var að því að frumvarp um þessar breyting- ar yrði lagt fram fyrir næstu alþingiskosningar. Nýsköpunarstjórnin tók við stjórnartaumum 21. október 1944 og næstu þingkosningar fóru fram 30. júní 1946. Það er því ljóst að stjórnin ætlaði þinginu aðeins tvö ár til að ljúka samn- ingu stjórnarskrár hins íslenska lýðveldis. Það gekk aldeilis ekki eftir. Lítið mun Gunnar hafa grunað þá að nær 40 árum síðar mundi hann sem forsætisráð- herra og formaður stjórnarskrár- nefndar Alþingis leggja fram og mæla fyrir fullbúnu frumvarpi til stjórnskipunarlaga – sem svo Alþingi gerði ekkert með fremur en fyrri daginn. Enn bættist nær aldarfjórðungur við sem Alþingi reyndist ófært um að setja lýð- veldinu viðeigandi stjórnarskrá og það var með herkjum að það viðurkenndi loks þann vanmátt sinn með því að setja málið í hendur stjórnlaganefndar, þjóð- fundar og loks stjórnlagaþings, sem síðan skilaði af sér uppkasti að stjórnarskrá til Alþingis, en samkvæmt gildandi stjórnarskrá verður það að eiga síðasta orðið um samþykkt nýrrar stjórnar- skrár. Ég hygg að Ásgeir Ásgeirs- son, síðar forseti, hafi komist réttilega að orði um samningu slíks plaggs í bréfi til tengda- sonar síns sumarið 1945: „Annað hvort verður stjórnarskrárbreyt- ing að vera bara það nauðsynleg- asta – eða þá verulega radikal svo skapi nýja trú hjá fólkinu.“ Og það er um það sem málið snýst. Enginn kennir okkar gömlu bráðabirgðastjórnarskrá um það hrun, sem hér varð. En hún stuðlaði að þeirri lausung í stjórnarfari, sem átti verulegan þátt að hruninu og gerði afleið- ingarnar verri viðureignar en þurfti. Við þurfum nýja stjórn- arskrá sniðna að stjórnarfari lýðveldisins með skörpum skil- um milli löggjafarvalds, fram- kvæmdarvalds og dómsvalds, til að „skapa nýja trú hjá fólkinu“. Rjúfum því þá pattstöðu sem samning stjórnarskrár fyrir lýðveldið hefur verið í í hönd- um Alþingis í 65 ár og sýnum þinginu með ótvíræðum hætti að við kunnum að meta að verðleik- um þau vel unnu störf, sem innt voru af hendi á skömmum tíma af stjórnlaganefnd, þjóðfundi og stjórnlagaráði. Það er ekki full- komið plagg í öllum atriðum, en ef þjóðin fylkir sér að baki því mun Alþingi ekki geta vikið sér undan því að ljúka því mikla og góða verki sem þar hefur verið unnið. Fjölmennum á kjörstað og sýnum þinginu hvað þjóðin vill. Að skapa nýja trú hjá fólkinu Ný stjórnarskrá Ólafur Hannibalsson blaðamaður „Heimilistækin mín eru frá Smith & Norland. Það kemur ekkert annað til greina.“ „Siemens-tækin eru margreynd á Íslandi. Þau eru fallega hönnuð, endingargóð og þægileg í notkun. Smith & Norland er eins og Siemens: traust fyrirtæki með mikla reynslu þar sem viðskiptavinurinn er í fyrirrúmi. Þannig vil ég hafa það.“ Örn Arnarson, íþrótta- og ökukennari, hefur keypt öll heimilistækin sín hjá Smith & Norland.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.