Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.11.2012, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 03.11.2012, Qupperneq 20
20 3. nóvember 2012 LAUGARDAGUR Íslendingar eiga því láni að fagna á þessu herrans ári að ekki steðjar hætta að landinu af hernaðarógn. Öðru máli gegndi vissulega á árum kalda stríðsins þegar Ísland skipaði sér í varnar- samstarf lýðræðisþjóða í Atlants- hafsbandalaginu. Aðildin varð mesta átakamál íslenskra stjórn- mála en öfgaöfl á vinstri vængn- um með Þjóðviljann sem málgagn börðust af ákefð gegn varnarliðinu og NATO sem tryggði friðinn. Og eitthvað eimir enn eftir af NATO- óvild, ef merkja má ummæli Árna Þórs Sigurðssonar, formanns utan- ríkismálanefndar Alþingis, í RÚV 30.11. um þátttöku Svía og Finna í loftrýmisgæslunni sem um samd- ist við brottför Bandaríkjahers héðan 2006. Norðurlandaríkin hafa stigið það spor, þeim og öðrum til gæfu og gagns, að eiga samstarf á sviði varnarmála á tímum umróts í heimsmálum. Upphaf þessa máls var skýrsla nefndar sem Thor- vald Stoltenberg stýrði og er sögulegt frumkvæði um nýtt átak Norðurlandaríkjanna. Við brott- för Bandaríkjahers frá Keflavík 2006 má heita að öll umræða á Íslandi um öryggismál hafi dottið í dúnalogn og margt tekið að falla í gleymsku. Friður eða alþjóðleg- ur stöðugleiki eru markmið, sem vinna verður að með þjóðum sem við eigum með hugsjónalega sam- leið um þjóðfélagslegt frelsi. Ekk- ert er sjálfgefið varðandi þá ógn, sem að kann að steðja og ræða ber á grundvelli greininga sem Íslend- ingar sjálfir geta lagt til. Þetta var eitt hlutverk Varnarmálastofnunar sem illu heilli var lögð niður. Raunveruleikinn býður ekki upp á annað en árvekni. Ísland er við norðurskautið, sem er ríkt af ónýttri orku, og þess er skammt að bíða að við verðum í alfaraleið mikilla sjóflutninga. Lega okkar dregur að sér aðra sem hér vilja varanlega aðstöðu og gætu gengið hart fram. Þá eru á ferðinni nýjar ógnir eins og skipulögð glæpa- starfsemi, hryðjuverk, umhverf- isslys og fjarskipta- eða netárásir. Orkuöryggi má heita lífsskilyrði í einangruðu landi. Í NATO eru Eistlendingar í broddi fylkingar varðandi samvinnu um netöryggi enda orðið fyrir árásum Rússa á því sviði. Árni Þór boðar skýrslu um þjóðaröryggi þar sem vænta má að sú eina sýnilega vernd sem við njótum, loftrýmiseftirlit af hálfu vinaríkja, verði afþökkuð. Hvernig verður samvinnu varð- andi norðurskautið háttað? Von- andi sendi skáldið Huang Nubo okkur lokakveðjuna í Der Spiegel fyrir nokkrum dögum. Þá snertir aðild að ESB einnig öryggismál. Þótt Evrópusambandið sé ekki varnarbandalag felst óumdeilan- lega öryggi í að vera innan sam- eiginlegra landamæra þess. Efna- hagslegt öryggi Íslands er háð þátttöku í frjálsum innri markaði Evrópusambandsins. Samningur- inn um Evrópska efnahagssvæðið tryggir ekki það meginmarkmið, hvorki í náinni bráð eða til fram- tíðar. Það krefst ESB-aðildar sem þjóðinni ber að samþykkja eða hafna þegar fyrir liggur samn- ingur þar um, sem tekur tillit til séraðstæðna okkar. Verða alþingiskosningarnar 2013 örlagatími um stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum? Varnarsamvinna og Norðurlöndin Í nýlegri frétt í Tíund, fréttablaði Ríkisskattstjóra, kemur fram að árið 2011 hafi í fyrsta skipti meiri- hluti íslenskra fyrirtækja sem gera upp í erlendri mynt ákveð- ið að gera upp ársreikning sinn í evrum. Hingað til hefur Banda- ríkjadollarinn verið vinsælasta uppgjörsmyntin. Þetta er áhuga- verð staðreynd því dómsdagsspá- menn í bloggheimum og einstaka fjölmiðill hafa í langan tíma reynt að sannfæra íslenskan almenn- ing að evran sé ótækur gjaldmið- ill og að Evrópa standi í ljósum logum. Það er greinilegt að þessi íslensku stórfyrirtæki eru ekki á sama máli. Þegar Alþingi ákvað árið 2009 að sækja um aðild að Evrópusam- bandinu var eitt af markmiðunum að kanna möguleika á því að taka upp evru og koma þannig á stöðug- leika í íslensku efnahagslífi. Síðan þá hefur ýmislegt gerst í evrópsku efnahagslífi og aðildarviðræðurn- ar dregist á langinn. En það hefur ekkert breyst varðandi þá stað- reynd að íslenskt efnahagslíf er í fjötrum gjaldeyrishafta og fátt bendir til annars en að við þurfum á utanaðkomandi aðstoð að halda til að koma okkur út úr þeirri úlfa- kreppu. Hvort það er aðild að Evrópu- sambandinu sem getur aðstoðað okkur á eftir að koma í ljós því ekki er búið að ljúka viðræðunum. En eina leiðin til að komast að því er að ganga þá götu til enda sem Alþingi ákvað fyrir rúmum þremur árum. Síðan er það íslensku þjóðarinnar að ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort hún er sátt við það sem úr þeim viðræðum kemur. Það er því sorgleg staðreynd að til séu pólitískir flokkar og hags- munasamtök sem hamast eins og rjúpan við staurinn að útiloka íslenska þjóð frá því að kjósa um þetta stóra hagsmunamál íslensks almennings. Ekki er ljóst hverra erinda sumir forráðamenn þess- ara afla ganga því þeir hafa lýst því yfir að þeir myndu alltaf segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslu, sama hve hagstæður samningur við ESB væri fyrir íslenskt samfélag! Mikil er ábyrgð þeirra manna sem halda þessu blákalt fram. Nýlega kom hópur áhrifafólks úr atvinnulífinu, verkalýðshreyfing- unni, háskólasamfélaginu og öllum helstu stjórnmálaöflunum saman og sendi frá sér mjög beinskeytta yfirlýsingu. Þar er meðal annars skorað á stjórnvöld að halda áfram með aðildarviðræðurnar við Evr- ópusambandið og að taka upp ný vinnubrögð í íslenskri pólitík. Loka- orð þeirrar yfirlýsingar eru mjög sterk og langar mig að gera þau að mínum lokaorðum í þessari grein; „Ekki er rökrétt að veikja stöðu Íslands með því að loka á einstaka kosti meðan ekki er vitað að aðrir séu færir. Við skorum því á fólkið í landinu að taka höndum saman um öfgalaus viðhorf, að beita áhrifum sínum til að þrýsta á stjórnmála- flokkana og treysta samstöðu um þjóðarhagsmuni, festu í alþjóða- samskiptum og eflingu hagstjórnar á Íslandi. Þannig verða samkeppn- ishæfni og ásættanleg lífskjör þjóð- arinnar tryggð til framtíðar.“ Meirihluti fyrirtækja gerir upp í evrum Varnarmál Einar Benediktsson fv. sendiherra Evrópumál Andrés Pétursson fjármálastjóri Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands og formaður Evrópusamtakanna Þórsteinssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur Þórsteinssjóðs er að styrkja blinda og sjónskerta til náms við Háskóla Íslands og að efla rannsóknir á fræðasviðum sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember 2012. Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra eða sjónskertra stúdenta sem stunda nám eða hyggja á nám við Háskóla Íslands skólaárið 2013–2014. Heildarfjárhæð styrkja er að hámarki tvær milljónir króna. Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna á heimasíðu HÍ, hi.is og sjóðavef HÍ, sjodir.hi.is. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnastjóra styrktarsjóða og hollvina, helgab@hi.is, sími 525 5894. STYRKTARSJÓÐIR PI PA R\ TB W A • S ÍA • 12 31 48 Styrkir til blindra og sjónskertra nemenda við HÍ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.