Fréttablaðið - 15.11.2012, Síða 43
KYNNING − AUGLÝSING Krakkar15. NÓVEMBER 2012 FIMMTUDAGUR 3
Við erum afar stolt af þessari vöru en í Kátum kroppum er eingöngu hreint íslenskt grænmeti og engin
aukaefni,“ segir Kristín Linda Sveinsdóttir,
markaðsstjóri Sölufélags garðyrkjumanna,
en félagið hefur hafið framleiðslu á barna-
mat. Hún segir neytendur lengi hafa beðið
eftir barnamat unnum úr íslensku græn-
meti enda um hágæða hráefni að ræða.
„Fólk veit hvaðan íslenskt grænmeti
kemur. Íslenskir garðyrkjubændur nota
engin eiturefni við sína ræktun, því geta
neytendur ávallt treyst. Íslenskt grænmeti
vex hægar sökum lægra hitastigs hér á landi
sem leiðir til þess að grænmetið tekur meira
bragð til sín og næringu. Það er einn af kost-
unum við grænmetisræktun á Íslandi,“ segir
Kristín.
„Þórdís Jóhannsdóttir verkfræðingur og
Guðrún Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur
þróuðu hugmyndina og upp skriftina að
Kátum kroppum í samvinnu við Matís.
Sölufélagið hafði lengi haft áhuga á að mæta
óskum neytenda og þegar þær leituðu til
okkar um framleiðslu á barna matnum
tókum við því fagnandi. Við þróuðum vör-
una áfram fyrir stórframleiðslu og hönnuð-
um nýjar umbúðir. Í dag er framleiðslan al-
farið í höndum dótturfélags Sölufélags garð-
yrkjumanna, Í einum grænum. Í einum
grænum sérhæfir sig í ýmiss konar fram-
leiðslu á íslensku grænmeti og hefur gert
það síðan 2005. Þar er mikil þekking og sér-
hæfing innanhúss,“ segir Kristín.
Frosinn barnamatur nýjung
Í barnamatinn fer eingöngu besta hrá efnið
sem í boði er hverju sinni þegar upp skeran
er í hámarki. Grænmetið er tekið beint af
akrinum, snöggfryst og svo unnið jafn-
óðum inn á markaðinn. Barnamaturinn er
frosinn, sem er nýjung á Íslandi.
„Við viljum meina að maturinn sé fersk
vara þó hann sé frosinn og mælingar hjá
Matís sýndu merkjanlegan mun á næringar-
gildi þessa barnamatar og niðursoðins.
Frosni maturinn er ekki eins mikið unninn.
Hann er hvorki soðinn við jafn hátt hitastig
né jafn lengi og niðursoðinn barnamatur
og þess vegna tapast síður næringargildin.
Frosinn barnamatur hefur verið að ryðja sér
til rúms bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum
undanfarið, einmitt vegna þessa.“
Ekki bara fyrir smábörn
Fjórar bragðtegundir eru fáanlegar í dag,
gulrætur, gulrófur, gulrætur og steinselja
saman og spergilkál og blómkál saman.
Maturinn er fulleldaður. Best er að láta
maukið þiðna í umbúðunum í ísskáp fyrir
notkun eða í volgu vatni. Barnamaturinn
geymist tvo daga þiðnaður í ísskáp. Einnig
má setja maukið frosið í pott og hita upp.
„Dósin þolir líka örbylgjuofn en við
mælum ekki með því að hita barnamat í ör-
bylgjuofni,“ segir Kristín. „Svo er mjög snið-
ugt að blanda Kátum kroppum við annan
mat, til dæmis handa eldri krökkum til
að fá þau til að borða grænmeti. Auðvitað
kaupir fólk líka grænmeti, sýður og maukar
sjálft sem er frábært, en það er gott að
eiga kost á hollri tilbúinni vöru til að
grípa til þegar fyrirvarinn er lítill.“
Íslenskt grænmeti
fyrir litla kroppa
Kátir kroppar er nýr íslenskur barnamatur sem kom á markaðinn
í sumar ætlaður fyrir börn sex mánaða og eldri. Barnamaturinn
er úr íslensku grænmeti og framleiddur af dótturfélagi Sölufélags
garðyrkjumanna á Íslandi, Í einum grænum.
Kátir kroppar fást í fjórum bragðtegundum fyrir börn sex mánaða og eldri.
MYND/SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA Grænmetið er tekið beint af akrinum, snöggfryst og svo unnið jafnóðum inn á markaðinn.
MYND/SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
Kristín Linda Sveinsdóttir, markaðsstjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir eingöngu besta hráefni notað í fram-
leiðslu Kátra kroppa. MYND/GVA