Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 43

Fréttablaðið - 15.11.2012, Qupperneq 43
KYNNING − AUGLÝSING Krakkar15. NÓVEMBER 2012 FIMMTUDAGUR 3 Við erum afar stolt af þessari vöru en í Kátum kroppum er eingöngu hreint íslenskt grænmeti og engin aukaefni,“ segir Kristín Linda Sveinsdóttir, markaðsstjóri Sölufélags garðyrkjumanna, en félagið hefur hafið framleiðslu á barna- mat. Hún segir neytendur lengi hafa beðið eftir barnamat unnum úr íslensku græn- meti enda um hágæða hráefni að ræða. „Fólk veit hvaðan íslenskt grænmeti kemur. Íslenskir garðyrkjubændur nota engin eiturefni við sína ræktun, því geta neytendur ávallt treyst. Íslenskt grænmeti vex hægar sökum lægra hitastigs hér á landi sem leiðir til þess að grænmetið tekur meira bragð til sín og næringu. Það er einn af kost- unum við grænmetisræktun á Íslandi,“ segir Kristín. „Þórdís Jóhannsdóttir verkfræðingur og Guðrún Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur þróuðu hugmyndina og upp skriftina að Kátum kroppum í samvinnu við Matís. Sölufélagið hafði lengi haft áhuga á að mæta óskum neytenda og þegar þær leituðu til okkar um framleiðslu á barna matnum tókum við því fagnandi. Við þróuðum vör- una áfram fyrir stórframleiðslu og hönnuð- um nýjar umbúðir. Í dag er framleiðslan al- farið í höndum dótturfélags Sölufélags garð- yrkjumanna, Í einum grænum. Í einum grænum sérhæfir sig í ýmiss konar fram- leiðslu á íslensku grænmeti og hefur gert það síðan 2005. Þar er mikil þekking og sér- hæfing innanhúss,“ segir Kristín. Frosinn barnamatur nýjung Í barnamatinn fer eingöngu besta hrá efnið sem í boði er hverju sinni þegar upp skeran er í hámarki. Grænmetið er tekið beint af akrinum, snöggfryst og svo unnið jafn- óðum inn á markaðinn. Barnamaturinn er frosinn, sem er nýjung á Íslandi. „Við viljum meina að maturinn sé fersk vara þó hann sé frosinn og mælingar hjá Matís sýndu merkjanlegan mun á næringar- gildi þessa barnamatar og niðursoðins. Frosni maturinn er ekki eins mikið unninn. Hann er hvorki soðinn við jafn hátt hitastig né jafn lengi og niðursoðinn barnamatur og þess vegna tapast síður næringargildin. Frosinn barnamatur hefur verið að ryðja sér til rúms bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum undanfarið, einmitt vegna þessa.“ Ekki bara fyrir smábörn Fjórar bragðtegundir eru fáanlegar í dag, gulrætur, gulrófur, gulrætur og steinselja saman og spergilkál og blómkál saman. Maturinn er fulleldaður. Best er að láta maukið þiðna í umbúðunum í ísskáp fyrir notkun eða í volgu vatni. Barnamaturinn geymist tvo daga þiðnaður í ísskáp. Einnig má setja maukið frosið í pott og hita upp. „Dósin þolir líka örbylgjuofn en við mælum ekki með því að hita barnamat í ör- bylgjuofni,“ segir Kristín. „Svo er mjög snið- ugt að blanda Kátum kroppum við annan mat, til dæmis handa eldri krökkum til að fá þau til að borða grænmeti. Auðvitað kaupir fólk líka grænmeti, sýður og maukar sjálft sem er frábært, en það er gott að eiga kost á hollri tilbúinni vöru til að grípa til þegar fyrirvarinn er lítill.“ Íslenskt grænmeti fyrir litla kroppa Kátir kroppar er nýr íslenskur barnamatur sem kom á markaðinn í sumar ætlaður fyrir börn sex mánaða og eldri. Barnamaturinn er úr íslensku grænmeti og framleiddur af dótturfélagi Sölufélags garðyrkjumanna á Íslandi, Í einum grænum. Kátir kroppar fást í fjórum bragðtegundum fyrir börn sex mánaða og eldri. MYND/SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA Grænmetið er tekið beint af akrinum, snöggfryst og svo unnið jafnóðum inn á markaðinn. MYND/SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA Kristín Linda Sveinsdóttir, markaðsstjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir eingöngu besta hráefni notað í fram- leiðslu Kátra kroppa. MYND/GVA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.