Fréttablaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 6
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
Reyndu smygl
á reiðtygjum
1 Við innflutningseftirlit á Seyðisfirði nýlega var stöðvaður innflutningur
á notuðum reiðtygjum. Um var að ræða
hnakk, ólíkar gerðir múla, gjarðir, hlífar,
píska, hestaábreiðu, reiðhanska og fleira.
Mikil hætta er á að notuð reiðtygi og
ósótthreinsaður reiðfatnaður beri með
sér smitefni sem valdið getur alvarlegum
dýrasjúkdómum hér á landi. Er þar skemmst
að minnast faraldurs smitandi hósta sem
lamaði alla hestatengda starfsemi árið 2010.
Matvælastofnun mun kæra málið, sem kom
upp sl. viku, til lögreglu en fyrirhugað er að
láta farga reiðtygjunum.
Ríflega tvöfalt
fleiri með Herjólfi
2 Siglt hefur verið samfellt milli Vest-mannaeyja og Landeyja hafnar frá því í
byrjun apríl og er allt útlit fyrir að svo verði
út nóvember. Ríflega 280 þús und farþegar
hafa farið með Herj ólfi það
sem af er ári, eða um 120%
fleiri en árið 2009. Þetta
segir Sigurður Áss
Grét arsson hjá
Siglingastofnun
í viðtali við
Eyjafréttir.
Búningar úr þvotti
eftir heil sextán ár
3 Sextán árum eftir að keppnisbúningar KFÍ á Ísafirði voru settir í hreinsun
skiluðu þeir sér til réttmæts eiganda. Eins og
bb.is segir frá er ekki svo að skilja að hreins-
unin hafi tekið þetta langan tíma heldur
fundust þeir við tiltekt á slökkviliðsstöðinni
á Ísafirði. Búningarnir voru sem sagt settir
í hreinsun árið 1996 en þeir eru merkilegir
fyrir þær sakir að KFÍ fékk sérstakt leyfi til
að merkja hvern og einn búning einu fyrir-
tæki sem styrkti félagið á sínum tíma. Er því
hægt að finna nöfn fyrirtækja á treyjunum
sem ekki eru til í dag eins og Ísafjarðar-
apóteks og Hraðfrystihússins Norðurtanga.
1
2
3
LANDIÐ
umboðssölu með notað og nýtt
að Ármúla 44
við hliðina á Rekkjunni
GRAMSI
var að opna markað
KOMIÐ OG SKOÐIÐ
OG GERIÐ GÓÐ KAUP
EGYPTALAND, AP Tugir manna slös-
uðust í átökum milli stuðnings-
manna og andstæðinga Mohammeds
Morsi Egyptalandsforseta, sem
brutust út í Kaíró í gær út af stjórn-
arskrárbreytingum forsetans.
Morsi kynnti stjórnarskrár-
breytingarnar á fimmtudaginn, en
með þeim tekur hann sér einhliða
nánast alræðisvald í landinu.
Tugir þúsunda manna komu
saman í gær á Tahrir-torgi í Kaíró
til að mótmæla þessu og krefjast
þess að lýðræði yrði í hávegum haft.
Kveikt var í skrifstofum Bræðra-
lags múslíma í nokkrum helstu
borgum landsins, en stjórnmála-
flokkur Morsis er afsprengi þeirra
samtaka.
Stuðningsmenn Morsis segja
stjórnarskrárbreytingarnar rök-
rétt skref til þess að tryggja að sá
árangur, sem náðist þegar Hosni
Mubarak var steypt af stóli, verði
ekki að engu. Þetta sé eina leiðin til
að koma í veg fyrir að ekkert verði
úr þeim breytingum á stjórnskipan
landsins, sem unnið hefur verið að
síðustu mánuði.
Fyrr á þessu ári leystu dóm-
stólar upp bæði nýkjörið þjóðþing
og stjórnlagaþing landsins. Í byrj-
un næsta mánaðar hugðist hæsti-
réttur Egyptalands síðan kveða
upp úrskurð um það hvort efri deild
þingsins hefði verið rétt kjörin.
Sjálfur hélt Morsi ræðu í gær
fyrir þúsundir stuðningsmanna
sinna þar sem hann sagði þess-
ar ráðstafanir nauðsynlegar til að
stöðva þau „meindýr“ sem hann
segir reyna að koma í veg
fyrir framfarir í landinu.
Morsi segir að breyt-
ingarnar eigi einungis að
vera tímabundnar. Þær
falli sjálfkrafa úr gildi
þegar ný stjórnarskrá
tekur gildi í landinu.
gudsteinn@frettabladid.is
Tugþúsundir andæfa
yfirgangi forsetans
Tugir þúsunda mótmæla á Tahrir-torgi gegn einhliða stjórnarskrárbreytingum,
sem Mohammed Morsi forseti kynnti á fimmtudag. Morsi segir breytingarnar
aðeins tímabundnar og falli sjálfkrafa niður þegar ný stjórnarskrá tekur gildi.
ÁTÖK Í KAÍRÓ Mótmælendur bera félaga sinn, sem særðist í átökum, til að koma
honum undir læknishendur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Andstæðingar Mohammeds Morsi Egyptalands forseta segja engu líkara en
hann vilji verða nýr faraó í Egyptalandi. Með stjórnarskrárviðbótum sem
hann tilkynnti um á fimmtudag tekur hann sér í reynd alræðisvöld:
Morsi tekur sér alræðisvöld
➜ Allar stjórnarskrárviðbætur, ákvarðanir og lög
forsetans eru endanleg, gegn þeim er ekki lengur hægt
að beita neinum réttarúrræðum.
Með þessari viðbót tryggir Morsi að allar tilskipanir hans sem dóm-
stólar hafa til þessa dæmt ógildar taka aftur gildi.
➜ Engin réttarfarsstofnun hefur
heimild til þess að leysa upp stjórn-
laganefndina eða öldungaráðið.
Með þessari viðbót tryggir Morsi að dómstólar
geta ekki haft áhrif á störf stjórnlagaþings
landsins, sem er að semja nýja stjórnarskrá,
né heldur getur hæstiréttur landsins lengur
úrskurðað hvort kosningar til efri deildar
þingsins hafi verið lögmætar.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í gær Gunnar Sigurðsson, fyrr-
verandi forstjóra Baugs, til að greiða
þrotabúi BGE eignarhaldsfélags 1,7
milljarða króna. Gunnar hyggst áfrýja
dómnum til Hæstaréttar.
BGE eignarhaldsfélag var stofnað í
nóvember 2003 utan um kaupréttar samninga
starfsmanna Baugs og var í eigu þeirra. Með
þessu kerfi töldu starfsmennirnir að þeir
væru ekki persónulega ábyrgir fyrir lánum
sem þeir fengu fyrir hlutabréfakaupunum
frá Kaupþingi, í gegnum Baug.
Nú hefur héraðsdómur komist að ann-
arri niðurstöðu, nefnilega þeirri að þeir
sem nýttu sér kauprétti í gegnum þetta
kerfi beri ábyrgð á lánunum.
Niðurstaðan getur haft áhrif á sambæri-
leg mál annarra fyrrverandi starfsmanna
Baugs sem samtals fengu milljarða að láni
fyrir slíkum hlutabréfakaupum. Margir
þeirra hafa samið um uppgjör sinna mála
við skiptastjórann, að því er fram kom í
Viðskiptablaðinu í ágúst.
- sh
Fyrrverandi forstjóri Baugs ber ábyrgð á lánum til hlutabréfakaupa:
Ber að endurgreiða 1,7 milljarða
SKULDAR MIKIÐ Gunnar taldi
sig ekki bera ábyrgð á lánunum.
Héraðs dómur er ósammála.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON