Fréttablaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 10
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL Lögmaður Jafnaðar-
mannafélagsins Rósarinnar hefur
óskað eftir fundargerðum kjör-
stjórnar Samfylkingarinnar í
Reykjavík. Félagið er ósátt við þá
ákvörðun að 350 nýir félagar í Rós-
inni hefðu ekki fengið að taka þátt
í prófkjöri flokksins sem fram fór
um síðustu helgi.
Sigurður G. Guðjónsson lög-
maður segir að óskað hafi verið
eftir fundargerðunum á mánudag.
Engin viðbrögð hafi borist við
beiðninni en hann telur að Rósin
eigi rétt á að fá gögnin.
„Ef maður ætlar að skoða rétt-
arstöðu einhvers þá þarf maður
allavega að hafa þau gögn sem þá
réttarstöðu snerta.“
Stefán Benediktsson, formaður
kjörstjórnar, vildi ekki staðfesta
að beiðni um fundargerðirnar hefði
borist. Fréttablaðið hefur undir
höndum afrit af þeirri beiðni þar
sem óskað er eftir „öllum gögnum
sem lágu til grundvallar“ ákvörð-
uninni um að afmá fólkið af kjör-
skrá.
Spurður út í beiðni Rósarinn-
ar segir Stefán: „Ég get ekki
svarað því fyrr en ég
er búinn að afhenda
svar okkar í kjör-
stjórninni.“
Birgir Dýr-
fjörð, for-
maður
Rósar innar,
segir ekki
b ú i ð a ð
ákveða hver
næst u sk ref
verða.
„Málið er að ég vil
fá að vita hvað gerðist.
Við fáum ekki að vita
hverjir kærðu. Nú eru
mjög strangar reglur um
að kjörstjórn eigi að halda
fundargerðarbók og
annað, en maður bíður
bara eftir svari um hvað gerðist.“
Forsaga málsins er sú að félaga-
tal Rósarinnar fór inn á kjör-
skrá og félagar, nýskráðir sem
aðrir, fengu sendar upplýsingar
um prófkjörið. Nöfn þeirra voru
á kjörskrám sem frambjóðendum
voru afhentar. Eftir ábendingar
um að einhverjir þeirra könnuðust
ekki við að hafa skráð sig í félagið
ákvað kjörstjórn að kalla eftir stað-
festingu á skráningunum. Erindi
um það barst Rósinni klukkan
21.18 á miðvikudag með skilafresti
til klukkan 13 daginn eftir.
Birgir segist fráleitt að halda því
fram að Rósin hafi ekki getað skil-
að inn staðfestingunum.
„Ég vil ekki liggja undir því að
við höfum ekki getað gert þetta
og þess vegna hafi okkur verið
hent út. Við fengum bara aldrei
tækifæri til þess. Það
er enginn vandi að
tapa í keppni, ef þú ert
til dæmis að hlaupa í
hlaupakeppni og allir
hlaupa jafn langt. En ef
einhver fer að stytta sér
leið, einhver fer að hafa
rangt við, þá unir maður
ekki úrslitum.“
kolbeinn@frettabladid.is
Rósarstríðinu
er ekki lokið
Jafnaðarmannafélagið Rósin hefur óskað eftir fundar-
gerðum kjörstjórnar Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Fjöldi félaga var strikaður út af kjörskrá fyrir prófkjör.
Næstu skref ráðast af gögnunum, segir formaðurinn.
Það er
enginn vandi
að tapa í
keppni, ef þú
ert til dæmis
að hlaupa í
hlaupakeppni
og allir hlaupa jafn langt.
En ef einhver fer að stytta
sér leið, einhver fer að
hafa rangt við, þá unir
maður ekki úrslitum.
Birgir Dýrfjörð, formaður Rósarinnar
Ársfundur Verkfræðistofnunar
Háskóla Íslands 2012
Dagsetning Þriðjudaginn 27. nóvember kl. 16.00–17.30
Staðsetning Askja, salur N-132, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík
Fundarstjóri Dr. Hrund Ólöf Andradóttir, dósent og rannsóknastjóri umhverfis- og
byggingarverkfræðikjarna VHÍ
Dagskrá
16.00 Setning: Dr. Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor og formaður stjórnar
Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands
16.10 Olía og gas á norðurslóðum – staða Íslands: Dr. Guðni A. Jóhannesson,
verkfræðingur, orkumálastjóri, Orkustofnun
Olíuiðnaður og sæbarónar – Hvar og hvernig: Hafsteinn Helgason,
verkfræðingur, sviðsstjóri viðskiptaþróunar, Eflu hf. verkfræðistofu
17.00 Viðurkenning Starfssjóðs Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands
17.10 Ársskýrsla Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands
17.30 Léttar veitingar
Aðgangur ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Olíuleit við Ísland
Fjársjóður eða firring?
Hafsteinn Helgason
Guðni A. Jóhannesson
VERKFRÆÐISTOFNUN
HÁSKÓLA ÍSLANDS
ÖRYGGISMÁL Norðurlandaríkin
hyggja á meiri samvinnu í net-
öryggismálum. Þetta var ein af
niðurstöðum ráðherrafundar um
öryggismál sem haldinn var í
Reykjavík í gær.
„Einhugur var um að Norður-
landaríkin ættu að efla og treysta
samstarf sitt á sviði netöryggis,“
sagði Ögmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra í samtali við Frétta-
blaðið.
Fundinn sóttu, ásamt Ögmundi,
innanríkisráðherra Finnlands,
ráðuneytisstjóri norska dóms- og
almannaöryggisráðuneytisins og
ráðuneytisstjóri sænska varnar-
málaráðuneytisins auk sérfræð-
inga landanna á þessum sviðum.
Skýrsla 22. júlí-nefndarinnar í
Noregi um viðbrögð við voðaverk-
unum í Ósló í fyrrasumar kom
einnig til tals.
„Norðmennirnir greindu okkur
frá niðurstöðum sínum og hvernig
hægt væri að taka á þeim brota-
lömum sem komu í ljós í öryggis-
málum, en jafnframt að gæta að
undirstöðum lýðræðislegs sam-
félags,” sagði Ögmundur. - þj
Norræni ráðherrafundurinn um öryggismál:
Netöryggi á oddinn
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og fulltrúar
annarra Norðurlandaríkja ræddu mikilvægi samstarfs á sviði netöryggis.