Fréttablaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 46
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 46
Álfrún
Pálsdóttir
alfrun@frettabladid.is
Rúllukragamenn
ÓÐUR TIL RÚLLUKRAGANS Á plötu hljóm-
sveitarinnar Bítlavinafélagsins, Ennþá til
sölu, sem kom út árið 1996, er að finna
lagið Rúllukragapeysan mín. Jón Ólafsson
samdi lagið í Hollandi árið 1986 en hann er
mikill aðdáandi rúllukragans. „Ég hef alltaf
verið mjög hrifinn af rúllukragapeysum og
finnst þær töff. Þegar við vorum í þessum
peysum á árunum 1986-1988 þóttum við
frekar hallærislegir en rúllukragapeysan
er sígild í mínum huga og eldist ákaflega
vel. Mér fannst því upplagt að gera lag og
texta tileinkað þessari uppáhaldsflík minni
á þessum árum.“
EINKENNISBÚNINGURINN Stofnandi
Apple, Steve Jobs, var frægur fyrir að klæðast
svörtum rúllukragabol og bláum Levi´s 501 gallabuxum.
Fæstir vita þó að rúllukragabolur Jobs var sérhannaður af
japanska hönnuðinum Issey Miyake og átti Jobs hundrað
alveg eins boli í fataskáp sínum. Það má því kalla Jobs
einn helsta aðdáandi rúllukragans í seinni tíð.
Mér skilst að ég sé einn af þessum rúllukragaaðdáendum,“ segir Unnsteinn Manuel Stefánsson, söngvari í hljómsveitinni Retro Stefson, sem þessa dagana getur skartað rúllu kraganum
ófeiminn enda er hann ein helsta tískubóla
herratískunnar í vetur.
Það var greinilegt að hönnuðir heimsins litu
til rúllukragans er fatalínur vetrarins liðu um
tískupallana hjá báðum kynjum í byrjun árs.
Oft er auðveldara að greina tískubólur í kven-
fatatískunni en í herratískunni milli ára. Því
þóttu það tíðindi þegar rúllu kraginn dúkkaði
upp á sýningum stóru nafnanna í tískuheimin-
um og ástæða til að draga fram rúllukragann
sem var hvað vinsælastur á sjötta áratugnum.
Unnsteinn byrjaði, fyrir tilstilli móður
sinnar, að vera í rúllukragapeysum þegar hann
fermdist. „Mamma setti mig stundum í rúllu-
kragapeysu en það var hins vegar ekki fyrr
en ég byrjaði að syngja að ég fór að kunna að
meta rúllukragann. Þá fann ég hversu gott er að
styðja við raddböndin í fallegum rúllukraga,“
segir Unnsteinn sem lumar á sex stykkjum inni
í fataskápnum sínum. „Ég á fjóra venjulega,
einn „guðfræðinema“ og einn spari.“
Unnsteinn hvetur herramenn landsins ein-
dregið til að byrja að nota rúllukragann og
segist sjálfur mjög feginn að flíkin sé loksins
dottin inn á tískuradarinn. „Já, ég er mjög
feginn. Helsti kostur rúllukragans er að hann
er nettur, og að auki þægilegur og góður til að
vera í undir skyrtu á sviði á útihátíð á norð-
lægum slóðum.“
Meðal þeirra hönnuða sem voru með rúllu-
kragaboli og -peysur í fatalínum sínum eru
Armani, Hermès, Lanvin og 3.1 Philip Lim.
Hægt er að nota rúllukragaflík á margbreyti-
legan máta; undir skyrtur, jakkaföt, hversdags
jafnt sem spari.
HOPPAR HÆÐ SÍNA Unnsteinn Manuel Stefánsson er mjög feginn því að rúllukraginn fær uppreisn æru í herratískunni í vetur en hann hefur klæðst rúllukraga frá fermingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ver raddböndin í rúllukraga
Söngvarinn Unnsteinn Manuel Stefánsson kveðst mjög feginn því að rúllukraginn sé loksins kominn í tísku. Sjálfur hefur
hann klæðst rúllukraga frá fermingu og á sex rúllukragapeysur í fataskápnum. Hönnuðir heimsins gefa rúllukraganum nýtt
líf í fataskápum karlpeningsins.