Fréttablaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 50
KYNNING − AUGLÝSINGKirkjur LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 20122
Umfangsmikið kórastarf mun ein-kenna aðventuna undir nafninu Kórafoss. „Í ár mun verða gert örlítið
betur þar sem kirkjan fagnar 25 ára vígslu-
afmæli,“ segir Þór Hauksson, sóknar prestur
Árbæjarkirkju.
Fyrsti sunnudagur í aðventu 2. desember
Fyrsti sunnudagurinn í aðventunni í Ár-
bæjarkirkju er Kirkjudagurinn, en þá er af-
mæli kirkjunnar fagnað. „Dagurinn byrjar
á sunnudagaskóla klukkan ellefu líkt og
venjulega. Klukkan tvö verður svo hátíðar-
guðsþjónusta þar sem biskup Íslands, Agnes
Sigurðardóttir, predikar. Þá mun, auk Ag-
nesar, séra Guðmundur Þorsteinsson, sem
var fyrsti sóknarprestur Árbæjar safnaðar,
þjóna með mér og séra Sigrúnu Óskars-
dóttur. Mikill fjöldi tónlistarfólks kemur
fram í messunni, en Þóra Gylfa dóttir syngur
einsöng og kór Landsvirkjunar kemur í
heimsókn og syngur bæði einn og með
kirkjukórnum okkar.“
Kvenfélagskaffihlaðborð
Eftir messuna mun Kvenfélag Árbæjar-
safnaðar vera með sitt árlega kaffi hlaðborð
og líknarsjóðshappdrætti. „Fyrirtæki
og einstaklingar hafa þá lagt til ýmsan
varning sem Kvenfélagið hefur safnað
saman og pakkað inn. Þær eru ótrúlega
öf lugar þessar konur, hafa prjónað og
föndrað alls kyns muni sem verða einnig í
happdrættinu. Allur ágóðinn rennur svo í
styrktarsjóð Árbæjarkirkju sem notaður er
til að aðstoða safnaðarmeðlimi sem þurfa
á hjálp að halda.“
Annar sunnudagur í aðventu 9. desember
Annan sunnudag í aðventu mun svo Ár-
bæjarkirkja og íþróttafélagið Fjölnir slá upp
balli. „Þá verður dansað í kringum jólatréð,
sungin jólalög og vonandi láta ein hverjir
jólasveinar sjá sig. Þeir hafa nú vanalega
litið við með eitthvað í pokanum sínum.“
Um kvöldið klukkan átta er svo aðventu-
kvöld þar sem ræðuhaldari verður frétta-
konan Edda Andrésdóttir. Hvorki meira
né minna en þrír kórar munu syngja þetta
kvöld, svo búast má við að þakið rifni af
kirkjunni. „Það er samstarfsverkefni í gangi
hérna milli Árbæjarkirkjukórs, Grafarholts-
kirkjukórs og Grafarvogskirkjukórs. Þeir
eru búnir að æfa saman dagskrá og munu
á næstunni syngja saman í öllum þessum
þremur kirkjum.
Á dagskránni verða sjálfsagt klassískir
kirkjusálmar og ég veit að endað verður á
Heims um ból. Það verður helg stund að
hlusta á þessa kóra syngja saman og kór-
stjórinn okkar, Krisztina Kalló Szklenár, á
heiður skilinn fyrir gott starf með kórnum
okkar,“ segir Þór.
Gospeltónleikar 12. desember
Þriðjudaginn 12. desember klukkan 20
verður Gospelkór Árbæjarkirkju með tón-
leika. „Kórinn okkar er einn elsti gospelkór
landsins og verður þrettán ára um þessar
mundir. Ingvar Alfreðsson stýrir honum og
má búast við léttri og skemmtilegri stemn-
ingu.“
Þriðji sunnudagur í aðventu 16. desember
„Möguleikhúsið kemur í sunnudaga skólann
til okkar klukkan ellefu með leiksýningu
sem minnir okkur á inntak jólanna. Þetta
verður kósí stund, þar sem fjölskyldan getur
mætt og horft á fallega leiksýningu. Að öðru
leyti verður ekki meira um að vera þann
daginn í kirkjunni og kórinn og organistinn
fá smá frí.“
Messur um jólin
Á aðfangadag verða tvær messur í Árbæjar-
kirkju, ein klukkan ellefu að morgni og
önnur klukkan ellefu að kvöldi. „Það er
alltaf sama fólkið sem mætir í messur á að-
fangadag. Mikill munur er þó á andrúms-
lofti á þessum tveimur messum.
Fólk er mun afslappaðra í seinni mess-
unni, enda mesta jólastressið búið. Aðrar
messur eru á jóladag klukkan tvö og annan
í jólum klukkan ellefu, en þá er fjölskyldu-
stund. Það er því nóg að gera hjá okkur hér
um jólin og allir hjartanlega velkomnir.“
25 ára afmæli Árbæjarkirkju
fagnað á aðventunni
Aðventan í Árbæjarkirkju verður viðburðamikil í ár líkt og undanfarin ár. Kórsöngur, barnaleikhús, líknarsjóðshappdrætti og
gospeltónleikar eru á meðal þess sem á dagskrá verður.
Hér er starfsfólk Árbæjarkirkju ásamt krökkum úr 7 til 9 ára starfi kirkjunnar sem haldið er reglulega. MYND/GVA
Flestar af hæstu kirkjum heims eru í Evrópu og voru byggðar fyrir
árið 1900. Hæsta kirkja heims telst vera Ulm Minster sem staðsett
er í Ulm í Þýskalandi. Hún var byggð árið 1890 og er 161,5 metra há.
Ganga þarf upp 768 þrep til að komast á hæsta útsýnisstaðinn. Til
gamans má geta þess að Hallgrímskirkja, hæsta kirkja Íslands, er
74,5 metra há. Ulm Minster er því meira en tvöföld stærð Hallgríms-
kirkju en níu hæstu kirkjur heims eru allar meira en tvöföld stærð
Hallgrímskirkju. Af fimmtíu hæstu kirkjum heims er ein í Banda-
ríkjunum og Kanada, ein í Afríku og tvær í Suður-Ameríku. Hinar
eru allar í Evrópu, þar af sextán í Þýskalandi. Hæsta kirkju Norður-
landa er dómkirkjan í Uppsölum í Svíþjóð. Hún er 118,7 metra há.
Einungis tíu af fimmtíu hæstu kirkjum heims voru byggðar eftir
1900 og eru þær flestar utan Evrópu.
Spánverjar eru enn að byggja hæstu kirkju heims sem mun slá
Ulm Minster út verði hún einhvern tímann fullbyggð. Vinnan við
byggingu kirkjunnar hófst árið 1883. Kirkjan heitir Sagrada Família
og er í Barcelona. Verði byggingu hennar lokið mun hún verða 170
metra há.
Hæsta kirkja heimsFJÖGUR KERTALJÓS AÐVENTU
Aðventa þýðir „Koma Drottins“ á latínu og hefst
fjórða sunnudag fyrir jól. Aðventan er einnig kölluð
jólafasta því á öldum áður mátti ekki borða hvað
sem var og alls ekki kjöt.
Aðventukrans byggir á norður-evrópskri
hefð. Sígrænt greni táknar líf í Kristi og
hringurinn eilífðina.
Fyrsta kertið nefnist Spádómskerti
og minnir á fyrirheit spámanna
Gamla testamentisins sem sögðu fyrir
um komu frelsarans. Annað kertið er
Betlehemskerti og minnir á þorpið sem
Jesús fæddist í. Þriðja kertið er Hirðingjakertið og vísar
til þess þegar snauðum og ómenntuðum fjárhirðum
var á undan öllum sögð tíðindin góðu. Fjórða kertið
er Englakertið sem tákn um englana
sem báru mannheimi fregnirnar um
Jesúbarnið í Betlehem.
Aðventukrans barst sem siður frá
Danmörku til Íslands um miðja
síðustu öld. Hann varð algengur
á íslenskum heimilum á sjö-
unda áratugnum og þykir nú
ómissandi hluti af íslensku jólahaldi.
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
LÁTUM
FRIÐARLJÓSIÐ
LÝSA UPP AÐVENTUNA
www.forlagid.is