Fréttablaðið - 24.11.2012, Síða 40

Fréttablaðið - 24.11.2012, Síða 40
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40 1. SÆTI Illska eftir Eirík Örn Norðdahl. Hönnun kápu: Alexandra Buhl. „Ég var á báðum áttum með þessa kápu en féll fyrir henni að lokum.“ Örn Úlfar Sævarsson. „Fallegir litir og flott hönnun. Allt við þessa kápu vekur forvitni, óspennandi tannburstaglas í miðju listaverki, „ídyllískt“ landslagið á kaldranalegum baðherbergis- veggnum og hvert er þessi pínulitli bréfbátur að sigla?“ Brynhildur Björnsdóttir „Hvernig tengist þessi aðlaðandi landslagsmynd með vaski og tann- bursta illsku? Vel heppnuð hönnun sem ætti að moka lesendum að bókinni.“ Vigdís Þormóðsdóttir „Ein flottasta kápan í ár. Ævintýra- heimurinn á bak við hversdags- legan vaskinn og glasið með tannburstanum er áhrifarík á lágstemmdan hátt.“ Valur Grettisson „Langflottasta bókakápan. Algert listaverk. Draumkennd og súrrealísk, einföld en samt uppfull af einhverju sem mann langar að skoða nánar.“ Júlía Margrét Alexandersdóttir Illska þykir allra best Jólabókaflóðið er skollið á með öllu til- heyrandi, þar á meðal hinum árlega sam- kvæmisleik þar sem fundinn er kostur og löstur á bóka- kápum vertíðarinnar. Fréttablaðið fékk nokkra álitsgjafa til að vega og meta bóka- kápurnar í ár. Álitsgjafar Fréttablaðsins Andrés Jónsson almannatengill Arnór Bogason grafískur hönnuður Ásgrímur Sverrisson dagskrárstjóri í Bíó Paradís Brynhildur Björnsdóttir dagskrárgerðarkona Brynja Þorgeirsdóttir dagskrárgerðarkona Hilda Jana Gísladóttir dagskrárstjóri á N4 Júlía Margrét Alexandersdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu Ólafur Sindri Ólafsson þýðandi Maríanna Clara Lúthersdóttir leikkona Roald Viðar Eyvindsson blaðamaður Stígur Helgason blaðamaður á Fréttablaðinu Valur Grettisson blaðamaður á Vísi Vigdís Þormóðsdóttir fj ölmiðlafræðingur Þórhildur Ólafsdóttir dagskrárgerðarkona og dómari í Gettu betur Æsa Guðrún Bjarnadóttir bókmenntafræðingur Örn Úlfar Sævarsson hugmyndasmiður hjá Fíton Um sumar kápur voru álitsgjafar nær einróma en um aðrar voru skiptar skoðanir. Þannig þóttu sumum kápur bæði Illsku og Undantekningarinnar ekki upp á marga fiska. „Maður fær nú bara illt í augun við að handfjatla þennan grip,“ sagði Roald Eyvindsson um Illsku. „Vekur upp minningar um bókakápur á verkum Fay Weldon frá 9. áratug 20. aldar– og það eru ekki meðmæli!“ Á hinn bóginn þótti sumum Ár kattarins og Ósjálfrátt dæmi um velheppnaðar kápur. „Litirnir á þessari kápu virka vel saman og hlutföllin líka,“ sagði Vigdís Þormóðsdóttir um Ósjálfrátt. „Enn fremur er gaman að vera minntur á tilvist hluta, eins og ritvéla, sem einu sinni þóttu sjálf- sagðir en eiga nú heima á safni. Það er dálítið eins og að stíga inn í tímavél.“ Fleiri umdeildar kápur: Íslenskir kóngar eftir Einar Má Guðmundsson. Hönnun kápu: Alexandra Buhl. „Þessi kápa stendur algjörlega upp úr í ár. Ekki nóg með að hún skeri sig úr fjöld- anum með því að vera frumleg, fögur, stílhrein og töff, þá er hitt mikilvægara að þessi sniðuga og fallega mynd af ættartrénu talar beint til manns með sterku myndmáli sem vekur hug- renningartengslin írónía, klíkuskapur, ættarveldi, hroki– sem er í fullkomnu samræmi við innihald bókarinnar.“ Brynja Þorgeirsdóttir „Við fyrstu sýn er þetta hræddur, úrsérvaxinn kolkrabbi. Ef sú er ætl- unin hefði kannski mátt útfæra hana aðeins betur.“ Brynhildur Björnsdóttir Milla eftir Kristínu Ómarsdóttur. Hönnun kápu: Emilía Ragnarsdóttir. „Ég er enn ekki viss hvort mér finnst þetta rosalega flott eða ofboðslega ljótt. Hallast að hinu fyrrnefnda samt og kápa sem á annað borð getur vakið þessar tví- blendnu tilfinn- ingar á heiður skilinn.“ Ólafur Sindri Ólafsson „Þessi kápa höfðar ekki til mín og segir mér lítið.“ Hilda Jana Gísladóttir BESTU KÁPURNAR UMDEILDAR KÁPUR 1. SÆTI Húsið eftir Stefán Mána. Hönnun kápu: Emilía Ragnarsdóttir. „Höfundur má þakka fyrir að landsmenn virðast ekki láta val sitt á lesefni ráðast af umgjörðinni. Gamaldags kápa sem gerir út á nafn höfundar með hallærislegri útkomu.“ Roald Viðar Eyvindsson „Óvanalegt feilspor hjá annars flottum hönnuðum á vegum Forlagsins. Mér finnst þessi eiginlega bara frekar viðvan- ingsleg.“ Æsa Guðrún Bjarnadóttir „Vissulega draugaleg kápa og segir manni strax að um spennusögu sé að ræða, en fær stóran mínus fyrir ófrumleika og flatneskju.“ Þórhildur Ólafsdóttir „Þessi blanda fer ótrúlega hallærislega saman, eldur, hvítir draugastafir og svo klisjukenndur titillinn. Í raun minnir kápan á lélega hrollvekju frá níunda áratugnum.“ Valur Grettisson „Góður drengur og hörku höfundur. En þessi kápa er ekki fyrir minn smekk.“ Andrés Jónsson VERSTU KÁPURNAR 2. SÆTI Bjarna-Dísa eftir Kristínu Steinsdóttur. Hönnun kápu: Alexandra Buhl. „Litirnir eru fallegir og heillandi hvernig konan er mótuð af landinu og landið eða kortið af henni. Flott kápa.“ Brynhildur Björnsdóttir „Fallegt letur, einföld og heillandi útfærsla, ljúfir litir – bókarkápa sem þröngvar sér ekki upp á skilningar- vitin en er lokkandi og stendur upp úr í bókaflóðinu.“ Þórhildur Ólafsdóttir „Litirnir tóna vel saman og notk- unin á Íslandskortinu fer vel við efni bókarinnar. Letrið í sjálfum titlinum er svolítið ofnotað í ár, fór til dæmis líka vel á Fantasíubókinni.“ Æsa Guðrún Bjarnadóttir „Flott andstæðuspil – tilfinningar gegn staðreyndum.“ Ásgrímur Sverrisson 3.-4. SÆTI Boxarinn eftir Úlfar Þormóðsson. Hönnun kápu: Jón Ásgeir Hreinsson. „Ég er alltaf hrifin af svona retró-ljós- myndum og svo kallast hún fallega á við efnið.“ Maríanna Clara Lúthersdóttir „Ótrúlega flott ljósmynd og gefur margt til kynna um efni bókarinnar. Maður leggur allan mögulegan skilning í káp- una aðra en þann sem hún vísar aug- ljóslega til, það er að segja íþróttarinnar sjálfrar. Kápa sem kýlir þig kaldan.“ Valur Grettisson 3.-4. SÆTI Rof eftir Ragnar Jónsson. Hönnun kápu: Ragnar Helgi Ólafsson. „Klassískt mótív þar sem titill og mynd- ræn útfærsla kallast á. Sker sig vel frá öðrum á bókahlaðborðinu með sterku og einföldu myndmáli.“ Ásgrímur Sverrisson „Þetta finnst mér flott hönnun, tók eftir henni um leið. Flott mynd, flott fram- setning – kápan dregur mig að sér. Ég strauk yfir hana í bókabúð um daginn til að athuga hvort skilin sem sjást í miðjunni séu í alvörunni. Bók sem fær mann til að snerta sig kemur manni til.“ Þórhildur Ólafsdóttir 5. SÆTI Undantekningin eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Hönnun kápu: Ragnar Helgi Ólafsson. „Oftast er það einfaldleikinn sem virkar best og hér er guð í smáatriðunum. Texti og myndir eru þrykkt beint framan á bókina sjálfa sem er því í raun kápulaus. Einföld og látlaus myndbygging sem gerir lesandann forvitinn.“ Arnór Bogason „Þetta er ein af allra fallegustu kápunum, þessi vínrauði litur, léreft og þrykk skapar löngun til að strjúka bókinni. Hún fær smá mínus fyrir að minna um of á fallegustu kápu síðasta árs, Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævars- dóttur.“ Brynja Þorgeirsdóttir „Þessi kápa þykir mér alveg æðisleg, kvenleg, falleg og mjúk viðkomu. Kápan er eiginlega punkturinn yfir i-ið á þessari yndislegu bók. Ég myndi velja hana flottustu kápu ársins.“ Hilda Jana Gísladóttir 2. SÆTI Íslendingablokk eftir Pétur Gunnarsson Hönnun kápu: Jón Ásgeir Hreins- son „Pétur Gunnarsson, sá afbrags- höfundur, á betra skilið en þetta ósannfærandi og óspennandi klastur.“ Ásgrímur Sverrisson „Sniðug hugmynd í orði kveðnu, en foxljótt í framkvæmd.“ Örn Úlfar Sævarsson „Þetta er voða ljótt. Þetta minnir mig á einhverja gamla auglýsingu... fyrir jógúrt– gæti það verið?“ Maríanna Clara Lúthersdóttir „Þessi kápa er svo vond að hún er næstum góð. Perlan sem geimskip. Ha ha ha.“ Vigdís Þormóðsdóttir 3.-4.SÆTI Vestfirskar konur í blíðu og stríðu 3. Finnbogi Hermannsson tók saman. Hönnun kápu: Nína Ivanova. „Fæst orð hafa minnsta ábyrgð. Vestfirskar konur eiga svo miklu betra skilið.“ Örn Úlfar Sævarsson „Þetta er glæsileg kona– en maður hlýtur að spyrja sig af hverju hún er í galakjól þarna uppi á bjarginu. Henni lítur út fyrir að vera kalt. Svo er um- gjörðin eitthvað voða mis…“ Maríanna Clara Lúthersdóttir 3.-4. SÆTI Ár kattarins eftir Árna Þórarinsson. Hönnun kápu: Jón Ásgeir Hreinsson. Lítur út eins og hálfmeltur köttur í maga. Það er líklega ekki hughrifin sem skáldið er að vonast eftir. Kattarauga í gotnesku líki að gráta blóði. Er það ekki full dramatískt? Valur Grettisson 5. SÆTI Ósjálfrátt eftir Auði Jónsdóttur. Hönnun kápu: Lubbi. „Aftur fær fínn höfundur slæma grafíska meðferð. Skelfilega fráhrindandi og klúðurslega samansett.“ Ásgrímur Sverrisson „Hugmyndin var þegar orðin klisja þegar ritvélin á myndinni kom af færibandinu. Bónusstig fyrir að útfæra klisjuna illa líka.“ Ólafur Sindri Ólafsson 1 2 3-4 3-4 5 1 2 3-4 3-4 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.