Fréttablaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 44
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44
mikið á þessu ári og ég hef verið
að hugsa mikið um hvað ég vil
gera. Þegar maður missir félaga
sinn og vin þá fer maður að hugsa
um margt annað sem er í lífinu.
Það er ekki bara sundið sem er
mikilvægt. Ég fór að hugsa um
slíkt eftir að Alexander lést. Við
vorum æfingafélagar, herbergis-
félagar í keppnisferðum og mikl-
ir vinir. Þegar Alexander dó
fór maður að hugsa hvort þetta
væri allt saman þess virði. Það
fór ótrúlega mikil orka í allt sem
þessu fylgdi og ég missti aðeins
einbeitinguna og fókus á sundið
í kjölfarið. Ég keppti á Evrópu-
meistaramótinu tveimur vikum
seinna. Og það var skrítið. Þegar
ég fór á norska meistaramótið í
sumar þá langaði mig eiginlega
ekkert að keppa. Mér fannst tóm-
legt og undarlegt að koma í sund-
laugina til þess að keppa án þess
að Alex væri þar. Ég keppti þrátt
fyrir það.“
Átti erfitt með að trúa þessu
Sindri var einn sá fyrsti sem kom
að Alexander þar sem hann lá
meðvitundarlaus á baðherbergis-
gólfinu. Sundmaðurinn ungi leynir
því ekki að það sé erfitt að rifja
þetta atvik upp.
„Það var frídagur hjá okkur. Ég
fór að versla og Alexander fór í
golf. Við hittumst síðdegis á her-
berginu og allur hópurinn ætlaði
út að borða saman. Alexander fór
í sturtu og ég fór að horfa á NBA-
körfuboltaleik ásamt Sverre, félaga
okkar úr landsliðinu, inni á her-
berginu mínu og Alexanders. Tím-
inn leið og mér fannst Alexander
vera mjög lengi í sturtu. Ég kall-
aði á hann, fékk ekkert svar, og
ég prófaði að slökkva ljósin inni á
baðherberginu, en það komu engin
viðbrögð. Okkur fannst þetta mjög
skrítið og við vissum að það var
eitthvað að. Sverre hafði keypt
veiðihníf í verslunarferðinni og
við notuðum hann til þess að brjóta
upp lásinn á baðherbergishurðinni.
Þegar við komumst inn þá lá Alex-
ander þarna á gólfinu. Ég hljóp
strax út til þess að ná í lækni og
þjálfarana og þeir voru komnir
eftir nokkrar sekúndur. Þá hófst
endurlífgunin. Ég trúði því ekki
að heimsmeistarinn í sundi myndi
falla frá með þessum hætti. Ég
hef reynt að hugsa sem minnst
um þetta atvik og reyni frekar að
muna eftir góðu stundunum sem ég
átti með Alexander.“
Eins og áður segir hefur Sindri
ekki æft sund að undanförnu en
hann hefur tekið ákvörðun um að
halda áfram að æfa og komast á
Ólympíuleikana í Brasilíu árið 2016.
„Á undanförnum mánuðum hef
ég velt ýmsu fyrir mér. Ég ætla
að byrja æfingatörnina heima
á Íslandi í byrjun janúar. Það
er einnig á dagskrá að ég fari
til Suður-Afríku næsta sumar
og verði þar meira eða minna
í heilt ár. Ég þarf nýjar áskor-
anir, Það sem ég ætla að gera er
að æfa með ólympíumeistaran-
um Chad le Clos en hann sigraði
í 200 metra flugsundinu á ÓL í
London og hann varð annar í 100
metra flugsundi. Þetta er spenn-
andi og ég fæ þarna nýja þjálf-
ara sem eru með allt aðrar vænt-
ingar til mín, og ég fæ ný viðmið
ef ég æfi með þeim allra besta.“
Skagamaðurinn hikar aðeins
þegar hann er inntur eftir því
hvort hann mæli með því að
íslenskt afrekssundfólk feti í hans
fótspor og gerist norskir ríkis-
borgarar.
„Það er ekkert auðvelt að ger-
ast norskur ríkisborgari. Maður
þarf að vera hér í fimm ár áður en
maður getur sótt um. Ef ég hugsa
um peningahliðina á þessu öllu
saman þá er það kostur að vera
norskur. En ég er og verð alltaf
Íslendingur, það breytist aldrei.“
Sindri Þór er fæddur árið 1991 á
Akranesi. Flutti til Noregs fyrir sjö
árum með móður sinni og fóstur-
föður, Sigurlínu Þorbergsdóttur og
Ómari Þorsteini Árnasyni. Jakob
Halldórsson er faðir Sindra og
Sindri á fimm systkini. Sindri, sem
hefur verið norskur ríkisborgari
í tvö ár, á enn Íslandsmetið í 50
metra laug í 200 metra flugsundi,
2:02,97 mín. Hann á Noregsmetið
í þessari grein, 2:00, 96 mín, og
einnig í 100 metra flugsundi í 25
metra laug, 53,29 sek.
➜ Sindri Þór Jakobsson
Það var töluvert fjallað um það í fjölmiðl-um þegar Sindri Þór Jakobs son tók þá ákvörðun að sækja um norskt ríkisfang
– og hætta þar með að keppa
fyrir Íslands hönd. „Ég sakna
Íslands og ég verð alltaf Íslend-
ingur innst inni, og það var allt-
af markmiðið hjá mér að standa á
verðlaunapalli á Ólympíuleikum
fyrir Íslands hönd. Það var erfið
ákvörðun fyrir mig að sækja um
norskt ríkisfang en ég taldi það
vera besta kostinn fyrir mig.
Ástandið á Íslandi var með þeim
hætti. Það er gert meira fyrir
afreks sundmenn hér í Noregi
en á Íslandi,“ sagði Sindri þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í
vikunni. Hann dáist að dugnaðin-
um hjá íslenska sundfólkinu sem
þurfti að greiða allt að 300.000
krónur úr eigin vasa til þess að
komast á Evrópu meistaramótið í
25 metra laug sem nú stendur yfir.
„Það er mikill aðstöðu munur
hvað slíka hluti varðar ef ég miða
við Noreg. Hér í Noregi er allur
slíkur kostnaður greiddur af
félaginu sem maður keppir fyrir
eða norska sund sambandinu.
Hvað varðar peningamálin þá er
varla hægt að bera þetta saman.
Ég get ekki lifað af þeim pen-
ingum sem ég fæ fyrir að vera í
sundinu en það er enginn kostn-
aður sem ég þarf að greiða. Ég
fæ styrki hér og þar en ég þarf
að ná betri árangri til þess að
komast í þá stöðu að geta lifað
af sundinu. Ef ég hefði komist á
Ólympíuleikana í sumar þá hefði
ég fengið styrk frá Olympiatop-
pen og það hefði dugað til að geta
lifað af sundinu. Það er fáránlegt
að þurfa að borga kostnað sem
fylgir því að keppa fyrir landið
sitt. Ég hef hitt marga á keppnis-
ferðum á undanförum árum og ég
held að það sé bara á Íslandi þar
sem landsliðsmenn þurfa að borga
fyrir keppnis ferðir.“
Reynslunni ríkari
Árið 2012 hefur verið viðburða-
ríkt hjá Sindra og hann segist
vera reynslunni ríkari. Og svip-
legt andlát eins besta sundmanns
heims, Alexanders Dale Oen,
hafði mikil áhrif á Sindra.
„Ég hef ekkert æft í tvo mán-
uði og ég er núna í námi með-
fram vinnu. Það gerðist svo
Verð alltaf Íslendingur innst inni
Sindri Þór Jakobsson gerðist norskur ríkisborgari fyrir tveimur árum og hann er nú þegar fremsti flugsundsmaður Norð-
manna. Skagamaðurinn tók sér frí frá sundinu eftir að æfingafélagi hans féll frá með sviplegum hætti. Sindri var sá fyrsti
sem kom að Alexander Dale Oen þar sem hann lá meðvitundarlaus á hótelherbergi í Bandaríkjunum.
Einn þekktasti íþróttamaður Noregs, Alexander Dale Oen, var aðeins 26 ára
gamall þegar hann lést. Hann landaði heimsmeistaratitlinum í 100 metra
bringusundi árið 2011. Þar með varð hann fyrsti norski sundmaðurinn sem
náði þeim árangri. Silfurverðlaun hans frá Ólympíuleikunum í Peking í Kína
árið 2008 voru fyrstu verðlaun Norðmanna í sundi á ÓL.
Oen sigraði á HM árið 2011 aðeins þremur dögum eftir hryðjuverkin í Ósló
og Útey. Alls létust 77 manns í þeirri árás. Norska þjóðin og
sundmaðurinn sýndu miklar tilfinningar þegar hann stóð
efstur á verðlaunapallinum og norski þjóðsöngurinn var
leikinn. Oen var á þeim tíma ljósið í myrkrinu.
Sundmaðurinn lést í Flagstaff í Arizona í Bandaríkj-
unum í lok apríl á þessu ári. Dánarorsökin reyndist
vera hjartaáfall. Læknir norska landsliðsins, Ola
Röensen, reyndi lífgunartilraunir á sundmanninum
á hótelinu í Arizona en þær tilraunir báru ekki
árangur.
Við krufningu kom í ljós að Oen hafði verið með
hjartasjúkdóm sem hafði ekki komið fram í ítarlegum
læknisrannsóknum. Oen hafði glímt við meiðsli í vinstri
öxl í langan tíma áður en hann fór í æfingabúðirnar í
Bandaríkjunum og læknar fundu ekki hver ástæðan var
fyrir meiðslunum. Talið er að verkirnir sem hann var með
á þessu svæði hafi í raun og veru verið lítil hjartaáföll.
Oen var fæddur í Bergen í Noregi 21. maí árið 1985.
Hann hóf að æfa sund aðeins fjögurra ára gamall. Hann
kom margoft hingað til Íslands til æfinga en Oen og
Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Ægi, voru nánir
vinir.
Alexander Dale Oen
M
YN
D
/CH
RIS RO
N
ALD
H
ERM
AN
SEN
, FAN
APO
STEN
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 483 0300 og á www.hnlfi.is
Dvalið er frá föstudegi til sunnudags, gist í íbúð eða í vel búnum eins og/eða tveggja manna herbergjum á
Perluströnd. Allur matur er innifalinn auk aðgangi að baðhúsinu Kjarnalundi, sundlaugum, heitum pottum,
nuddpotti, víxlböðum og gufuböðum.
Yoganámskeið er á dagskrá á meðan dvöl stendur. Lagt er upp með yogaæfingum og kennsla er
innifalin sem nýtist þátttakendum í framhaldi af námskeiði. Arnar Erlingsson er lærður yogakennari og
yogaeinkaþjálfari og hefur m.a. verið með námskeið fyrir Golfklúbb Hveragerðis. Golfkennari er Einar Lyng
Hjaltason – PGA golfkennari og hefur víðtæka reynslu af golfkennslu og fararstjórn golfferða erlendis.
Námskeiðin verða haldin 7.-9. desember, 14.-16. desember og 11.-13. janúar.
Kynningaverð í desember 38.000 kr.
Heilsustofnun bíður upp á Yoganámskeið fyrir golfáhugafólk og keppnisfólk.
Um er að ræða helgardvöl fyrir pör eða einstaklinga sem vilja ná góðum tökum
á einbeitingu í daglegu lífi sem síðan nýtist m.a. við golffimi af ýmsu tagi.
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Yoganámskeið og
sveiflugreining í golfi
Sigurður Elvar
Þórólfsson
seth@frettabladid.is