Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 48
1896
1918
1920 – 1945 1967 – 1980
1946 – 1967
1811
1875
bls 2
Viðskipti og verslun blómstraði í
München á þessum tíma. Borgin var
hlið inn í lönd Suður-Evrópu og gatna-
mót verslunar á bökkum fljótsins Ísar.
Duglegir íbúar borgarinnar bjuggu við
ágæt lífskjör en lifðu þó í ótta við ýmsar
ógnir, ekki síst eldsvoða sem voru tíðir
og óttuðust margir íbúar stöðugt að
missa allar eigur sínar í eldi.
Hinn vinsæli konungur, Maximillian I.,
sem oftast var kallaður Max kóngur,
skildi þessar áhyggjur og stofnaði
Almenna brunabótafélagið. Þar með
lagði hann hornstein að einni farsæl-
ustu tryggingasamsteypu Þýskalands
sem blómstrar enn þann dag í dag
og býður þjónustu sína meðal annars
á Íslandi.
Árið 1822 var um ein milljón bæverskra
húsa orðin brunabótatryggð og stöðugt
hélt áfram að bætast í hópinn.
Efnahagslægð var í Vestur-Þýskalandi
á áttunda áratugnum en þá var
dr. Robert Wehgartner við stjórnvölinn
hjá Bayerische Versicherungskammer.
Hann lagði kapp á að reisa nýjar skrif-
stofubyggingar og íbúðir; svo langt
gekk þetta að gárungarnir sögðu að
stofnunin væri fremur byggingaverktaki
en tryggingafélag.
Wehgartner verður ævarandi minnst
fyrir íbúðabyggingar og félagslegar
umbætur, bæði meðal starfsmanna og
út fyrir þeirra raðir. Hann lést skyndi-
lega og fyrir aldur fram árið 1974.
Bayerische Versicherungskammer óx
og dafnaði á seinni hluta áttunda
áratugarins þrátt fyrir þýsku kreppuna.
Á þriðja og fjórða tug 20. aldar voru
stofnuð mörg mikilvæg félög innan
samsteypunnar, til dæmis Trygginga-
samband Bæjaralands, Bæjaralands-
tryggingin og Sjúkrasamlag opinberra
starfsmanna. Allt eru þetta enn mikil-
vægir stólpar samsteypunnar.
Bayerische Versicherungskammer
fór ekki varhluta af heimskreppunni
fremur en önnur fyrirtæki. Á þessum
örlagatímum lauk Hans Otto Schmitt
stjórnartíð sinni. Hann er talinn
höfundur laga um opinberar tryggingar
en nýjungar þeirra koma sér vel
fyrir ýmsar deildir stofnunarinnar.
Undir handleiðslu hans voru ýmsar
réttarreglur færðar saman í einn laga-
bálk og færðist þá um leið stjórnun frá
ríki og löggjafa til sjálfra stofnananna.
Þessar nýjungar áttu stóran þátt í að
bæta hagkerfið og urðu því um leið
lyftistöng fyrir efnahag Bayerische
Versicherungskammer.
Stjórnunin færist til
sjálfra stofnananna
sem bæta hagkerfið
Dafnar þrátt fyrir
þýsku kreppuna
Óttinn við eldinn
Konunglegt tryggingafélag Opinber stofnun
breytist í nútímalegt
viðskiptafyrirtæki
Tuttugasta öldin
Með tilskipun Loðvíks II. af Bæjaralandi færðist
Almenna brunabótafélagið undir stjórn sérstakrar
opinberrar stofnunar og hlaut nafnið Konunglega
brunabótafélagið. Fyrsti forstjóri þessa félags var
lögfræðingurinn og búfræðingurinn Matthäus von
Jodlbauer. Í hátíðarræðu sem hann hélt í tilefni af 25
ára starfsafmæli félagsins sagði hann: „Hvað hefur
áunnist? Ég svara því í stuttu máli: Traust fólksins.“
Tryggingahugsjónin, það að vera hluti af heild og
njóta hjálpar hennar ef í nauðir rekur, festist í sessi í
huga fólks og varð að leiðarljósi á 20. öldinni allt til
dagsins í dag.
Rudolf Herrgen tók við forstjórastarfinu árið
1946 – í kjölfar heimskreppu og heimsstyrjaldar.
Þá hafði óðaverðbólga rýrt eigur stofnunarinnar
mjög. Herrgen beið það verkefni að endurbyggja
16 tryggingadeildir og samlög stofnunarinnar.
Á næstu árum breyttist þessi opinbera stofnun
í nútímalegt viðskiptafyrirtæki.
Annað afrek Rudolfs Herrgens var framlag
fyrirtækisins til lista. Hann reyndi að færa listina
nær fólkinu, t.d. með því að halda tónleika í
húsakynnum stofnunarinnar og láta prenta
listaalmanak. Enn þann dag í dag heldur
Bayerische Versicherungskammer hústónleika
með upprennandi hljóðfæraleikurum, skipulegg-
ur listsýningar og styrkir félagsmál.
Þetta ár hvarf viðbótin „konunglega“ úr nafni
félagsins. Með falli konungdæmisins varð heiti fyrir-
tækisins einfaldlega Tryggingastofnun Bæjaralands
– Bayerische Versicherungskammer.
Í desember þetta ár fékk stofnunin enn
nýtt nafn, Konunglega brunabóta-
félagið hét nú Hin konunglega trygginga-
stofnun Bæjaralands (Königliche
Bayerische Versicherungskammer)
enda hafði margvísleg starfsemi auk
brunatrygginga færst undir stofnunina.