Fréttablaðið - 24.11.2012, Qupperneq 55
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Green Energy Group
Nánari upplýsingar um starfið veita Helga Rún Runólfsdóttir (helga@intellecta.is) og Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) í
síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 3. desember nk. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar
umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.
Green Energy Group AS
(GEG) is a Norwegian
company headquartered
in Oslo. Our focus is to
provide modular geothermal
plants which reduces capital
expenses and project risk and
allows for quicker payback on
investment.
Green Energy Group has an
engineering department in
Reykjavik, Iceland, where our
core technical and R&D team
is located. Our people have
extensive experience within
the geothermal field including
design, engineering, project
management and operation
of geothermal plants.
www.geg.no
Ábyrgðarsvið
Menntunar- og hæfniskröfur
Green Energy Group óskar eftir að ráða tvo sérfræðinga til starfa
Menntunar- og hæfniskröfur
Helstu verkefni
Vörustjóri gufuþéttikerfis
(Product manager - Condensation Circuit)
Rafmagnsverk- eða tæknifræðingur
Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225
REKTORS
Listaháskóli Íslands er miðstöð æðri listmenntunar
á Íslandi og hefur viðurkenningu stjórnvalda á fræða-
sviði lista. Einkunnarorð skólans og leiðarljós eru:
forvitni - skilningur - áræði.
Rektor allra listgreina
Eldmóður og skýr framtíðarsýn fyrir listir og hönnun þarf að
einkenna rektor Listaháskóla Íslands. Mikilvægt er að rektor hafi
listræna yfirsýn, þekkingu og innsæi. Rektor þarf að vera áræðinn
og frjór og njóta virðingar og trausts innan hins akademíska sam-
félags og meðal listamanna. Sem opinber málsvari og talsmaður
skólans þarf hann að vera ritfær og geta komið vel fyrir sig orði
á opinberum vettvangi.
Rektor er æðsti stjórnandi Listaháskólans og annast rekstur
og stjórnun í umboði stjórnar og ber ábyrgð gagnvart henni.
Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun með viðurkenningu
á fræðasviðinu listir og starfar samkvæmt lögum um háskóla
63/2006. Skólinn starfar í fimm deildum: myndlistardeild,
hönnunar-og arkitektúrdeild, tónlistardeild, leiklistar- og dans-
deild, og listkennsludeild. Nemendur eru um 480, þar af einn
fimmti á meistarastigi. Skólinn starfar á þremur stöðum
í Reykjavík: Þverholti, Sölvhólsgötu, og Laugarnesvegi.
www.lhi.is
Menntun og hæfniskröfur:
– Meistara- eða doktorspróf í listum og/eða listtengdum greinum
– Yfirgripsmikil reynsla af listsköpun og/eða akademísku starfi
getur verið metin jafngild ofangreindum menntunarkröfum
– Umtalsverð reynsla af starfi í listsköpun og/eða af akademísku
starfi ásamt stjórnunarreynslu
– Leiðtogahæfni, innsæi og lipurð í samskiptum
Hæfisnefnd verður skipuð af stjórn þegar umsóknir liggja fyrir.
Nefndin hefur það hlutverk að meta menntun, reynslu og hæfi
umsækjenda. Farið er með nöfn umsækjenda sem trúnaðarmál.
Umsækjendur þurfa þó að vera reiðubúnir að standa frammi fyrir
lokuðum hópi stjórnenda innan skólans og gera grein fyrir sinni
framtíðarsýn fyrir Listaháskóla Íslands. Stjórn tekur endanlega
ákvörðun um ráðningu og er rektor ráðinn til fimm ára í senn frá
og með 1. ágúst 2013.
Umsóknum skal skila á aðalskrifstofu skólans að Þverholti 11,
Reykjavík, eigi síðar en fimmtudaginn 3. janúar næstkomandi.
Skólinn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Upplýsingar um starfið veita:
Gunnhildur Arnardóttir gunnhildurarnar@ceohuxun.is
og Trausti Harðarson traustihardar@ceohuxun.is
LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS AUGLÝSIR
EFTIR UMSÓKNUM UM STARF