Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 94
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 62
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
Hvað er uppi stúlkur?
Eitthvað fjör í gangi?
Nei...
Madda...
Ekki
brosa!
Láttu bara
eins og þú hafir
aldri séð mig
hér, ókei?
Ferskar
kjötvörur
Þú ert alveg jafn góður
strákur og ég.
Það er sko alls
ekki rétt!
Ég hef þrisvar verið
rekinn úr tíma!
Meira að seg ja
þrisvar sama
mánuðinn!
Gaur, það var í
öðrum bekk.
Og þú varst rekinn
út í frímínútur.
Brott-
rekstur er
brott-
rekstur!
Guð minn góður!
Eru skriðdýr
ekki með
salmonellu?
Jú, en krakkarnir vita að
þau eiga að þvo sér um
hendurnar eftir að hafa
komið við skjaldbökuna
Já,
einmitt!
Engir góða nótt-
kossar fyrir mömmu á
næstunni. Láttu þetta
berast.
En ég var að gefa henni munn
við munn! Ég setti næstum
allan hausinn á henni upp í
munninn!
Hvað eigum við
að gera?
LÁRÉTT
2. planta, 6. æst, 8. matjurt, 9. þukl,
11. 950, 12. faðma, 14. mjaka, 16. í
röð, 17. heyskaparamboð, 18. siða, 20.
hljóm, 21. áætlun.
LÓÐRÉTT
1. knattleiksknött, 3. klafi, 4. hugarró,
5. angan, 7. illfygli, 10. rotnun, 13.
sjáðu, 15. útmá, 16. ósigur, 19. samtök.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mosi, 6. ör, 8. kál, 9. káf,
11. lm, 12. knúsa, 14. fikra, 16. tu, 17.
orf, 18. aga, 20. óm, 21. plan.
LÓÐRÉTT: 1. pökk, 3. ok, 4. sálarró,
5. ilm, 7. ránfugl, 10. fúi, 13. sko, 15.
afmá, 16. tap, 19. aa.
Og ekki degi of snemma. Satt að segja hef ég beðið eftir því í mörg ár að
þakkargjörðin næði fótfestu á Íslandi, að
við tækjum upp þann frábæra sið að þakka
fyrir að einhver hafi numið landið. Þetta
nemur sig ekki sjálft. Feðurnir frægu og
frjálsræðishetjurnar góðu frá Noregi (og
nokkrar írskar konur) eiga á hættu að falla
í gleymsku og dá á hverri stundu og bráð-
nauðsynlegt að minna sig á þau einu sinni á
ári með því að helga þeim dag.
ÞAKKARGJÖRÐARHÁTÍÐIN er
einmitt haldin í Bandaríkjunum til
að fagna landafundum og búflutn-
ingum frá austurheimi á sautjándu
öld. Þakkargjörðin varð þó ekki
opinber hátíðisdagur fyrr en
Abraham Lincoln Bandaríkjafor-
seta þótti það góð hugmynd að
gefa út tilskipun þess efnis og
það var ekki fyrr en starfsbróðir
hans nokkrum áratugum síðar,
Franklin D. Roosevelt, ákvað
að hátíðina skyldi halda fjórða
fimmtudag í nóvembermánuði
að einhver skriður og skipulag
komst á þakkarveitur Banda-
ríkjamanna. Þar er siður að
nota tækifærið téðan fimmtu-
dag til að þakka fyrir allt
sem hægt er að láta sér til
hugar koma að sé þakkarvert,
veðrið, afkomuna, afkomendurna, mat og
drykk og annað meira og minna nauðsyn-
legt til viðurværis.
Í ÞESSU sem ýmsu öðru eru Banda-
ríkjamenn ljósárum á undan Íslendingum,
sem aldrei dettur í hug að þakka fyrir sig
og óska þess í mismiklu laumi að skipið
hans Ingólfs Arnarsonar hefði sokkið, svo
vitnað sé í þjóðskáld. Við eigum auðvelt
með að kvarta og kveina, veðrið er vont á
Íslandi, allt er dýrt, kalt og dimmt og erfitt
að vera til. Öll eru þessi umkvörtunarefni
raunveru leg, ekkert þeirra ímyndað eða
uppdiktað og varla einu sinni ýkt. Sumir
ganga svo langt að lýsa frati á þessa tilraun
sem hefur staðið í ellefu hundruð og eitt-
hvað ár og snúa aftur til Noregs til að taka
upp þráðinn.
VIÐ hin sem eftir þraukum veltum
stundum fyrir okkur af hverju. Og þrátt
fyrir allt er af nógu að taka. Hér er almenn
velmegun miðað við nánast allan heiminn,
langlangflestir hafa í sig og á og sprengju-
regn er fátítt þó stundum komi eldgos. Við
höfum trúfrelsi, tjáningarfrelsi (sem við
notum til óbóta á stundum), við lifum lengi,
erum frekar hraust og svo er það náttúran,
fjölskyldutengslin, nándin og firrðin.
VIÐ höfum fulla ástæðu til að halda
þakkar gjörðarhátíð. Komið með kalkúninn!
Þakkargjörðarkalkúnninn
er kominn í IKEA
Hlæðu af þér
hausinn um
jólin
Skemmtilegustu skopmyndateiknarar
landsins leggja til teikningarnar – og þú
semur brandarann. Þannig er SKRÍPÓ,
hrikalega fyndið nýtt íslenskt spil sem
fjölskyldan mun liggja í hláturskasti yfir.
Í SKRÍPÓ eru jafnvel fáránlegustu
myndatextarnir sprenghlægilegir ...
SKRÍPÓ INNIHELDUR
150 FRÁBÆRAR
TEIKNINGAR EFTIR
HUGLEIK DAGSSON,
HALLDÓR BALDURSSON,
LÓU HLÍN HJÁLMTÝSDÓTTUR
OG SIGMÚND
Eftir höfunda
Fimbulfambs
F J Ö R U G T S P I L F Y R I R
A L L A F J Ö L S K Y L D U N A