Fréttablaðið - 24.11.2012, Side 112
24. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 80
Svo virðist sem
kertaskreytingar-
áhugi þjóðarinnar hafi
dregið dilk á eftir sér.
Að minnsta kosti eru öll
ódýru hvítu kubbakertin
af gerðinni Fenomen
uppseld í bili hjá IKEA,
þar sem Erna Hrund
keypti sín kerti í upphafi.
En hún bendir á aðrar
verslanir á netsíðunni
Trendnet.is. Kannski það
endi með að fólk þurfi
að fara að steypa kerti
heima. Það var fastur lið-
ur í undirbúningi jólanna
á mörgum heimilum fram
eftir síðustu öld.
VÍNRAUTT LAKK
Alexander Wang var
einn þeirra sem
stukku á vínrauðu
bylgjuna er hann
sýndi vetrartískuna
en hér er lakkkápa
og götóttur
rúllukraga bolur í
vínrauðu.
VÍNRAUÐAR
VARIR Rauðar
varir hafa gjarna
þótt hátíðlegar
og engin undan-
tekning á því í ár.
FYLGIHLUTIR á
sýningu DKNY
í New York var
að finna marga
fína fylgihluti í
vínrauðu til að
flikka upp á
klæðnaðinn.
DRAGT Ralph
Lauren sýndi
vínrauða dragt
og vesti með
hátíðlegu yfir-
bragði.
NORDICPHOTOS/GETTY
Vínrauður er einn af
tískulitum vetrarins.
Litinn mátti greina í öllu
frá skóbúnaði til varalita
á tískupöllunum í byrjun
árs. Liturinn passar vel
inn í skammdegið og um
að gera að vera óhræddur
við að blanda vínrauðum
saman við aðra liti vetrar-
ins á borð við kóngabláan,
appelsínugulan, húð-
litaðan og gráan.
VÍNRAUTT FRÁ TOPPI TIL TÁAR Í VETUR
Ég lýsti kertaskreytingunum á
Trendnet.is og hef fengið mikil
viðbrögð, þannig nú sit ég við
að svara tölvupóstum. Þetta er
greinilega orðið vinsælt,“ segir
Erna Hrund um tómstundaiðju
sína um þessar mundir, sem er
að skreyta kubbakerti. Spurð
hvort hún sé orðin sérfræðingur
í greininni svarar hún hlæjandi:
„Já, ætli megi ekki segja það?“
Erna Hrund er að bíða eftir
nýjum einstaklingi í heiminn og
kveðst hafa þurft að finna sér eitt-
hvað að gera á meðan. „Ég verð
eirðarlaus ef ég hef ekki eitthvað
fyrir stafni og finnst svona kerta-
skreytingar skemmtilegt jóla-
föndur. Ég keypti því kertakubba
í IKEA og fór í föndurbúð þar sem
ég fékk leiðbeiningar og keypti
límlakk og pappír. Svo fann ég
myndir á netinu og hófst handa,“
lýsir hún og segir límlakkið
mynda matta húð þannig að þegar
kertið brenni niður lýsist myndin
upp. Hún kveðst einkum velja
dýramyndir á kertin og þannig
tengja þau náttúrunni.
- gun
Nú sit ég við að
svara póstum
Erna Hrund Hermannsdóttir skreytir kerti með eigin
höndum og hefur smitað marga af áhuga sínum
enda deilir hún aðferðinni á síðunni Trendnet.is.
➜ Dregur dilk á eftir sér
Day one
Fyrir iPhone, iPad og Mac
Haltu dagbók og skráðu hugsanir
þína og hugmyndir. Þetta er frábært
app fyrir þá sem vilja halda dagbók
en eru of hræddir um að gamla
bókarformið sé of opinbert. Þú getur
læst appinu með einföldum fjögurra
stafa kóða. Dagbókin uppfærist svo
sjálfkrafa á milli símans, spjald-
tölvunnar, heimilistölvunnar og far-
tölvunnar.
APP VIKUNNAR
Skýringar:
App fyrir Apple-tæki
App fyrir Android-tæki
App fyrir Windows
*Hægt er að kaupa útgáfur af appinu til
að aflæsa ýmsum eiginleikum.
Matur og krydd geta haft góð
áhrif á líðan og heilsu fólks. Sumar
kryddtegundir hafa lengi verið not-
aðar gegn ýmsum kvillum og teljast
jafnvel til svokallaðrar ofurfæðu.
■ Stjörnuanís getur linnt magaverki
og róað hálsinn sé fólk með
hósta. Anísinn getur einnig örvað
mjólkurframleiðslu mæðra með
barn á brjósti.
■ Kóríander er ríkt af K-vítamínum,
styrkir bein og er góð vörn gegn
blóðtappa.
■ Margar rannsókn-
ir benda til þess
að kanill jafni
blóðsykurinn
hjá fólki með
sykursýki 2 og
lækki kólesteról.
■ Líkt og kanill getur broddkúmen
haldið blóðsykurmagni jöfnu. Það
er einnig góð sýklavörn og er góð
vörn gegn magasárum.
■ Fennikka er ekki ólíkt lakkrís eða
stjörnuanís á bragðið. Rótin er
góð gegn uppþembu, vindverkjum
og öðrum meltingartruflunum.
Hún virkar einnig vel gegn bak-
flæði.
■ Engifer er ekki aðeins bragðgóð
heldur einnig þekkt læknajurt.
Hún þykir til dæmis góð gegn
morgunógleði og sjóveiki og
sumir halda því fram að rótin hafi
líka verkjastillandi áhrif.
■ Mynta þykir góð
gegn meltingar-
truflunum og
niðurgangi.
Marokkó búar
telja myntute
allra meina
bót.
HEILSUBÆTANDI
KRYDDJURTIR
ERNA HRUND „Ég er búin að koma mér í skemmtilegt verkefni í óléttunni,“ segir
hún. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UNG
Á ÖLLUM
ALDRI
GUÐRÚN
BERGMANN
UNG Á ÖLLUM ALDRI er á tilboði á 3.999 kr.
í verslunum Eymundsson til 28. nóvember
Fullt verð er 4.999 kr.
Til hamingju
EYMUNDSSON BÓKABÚÐIR
með 140 ára afmælið!
Þið hafið sýnt og sannað að þið eruð
bóka verslun sem er UNG Á ÖLLUM ALDRI.
Samfagna ykkur í dag með því að árita bókina
mína í Eymundsson, Kringlunni (norðurhluta)
frá kl. 15 –16 og í Eymundsson, Skóla vörðu stíg
frá kl. 17–18
Kærleikskveðja
Guðrún Bergmann