Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 121
LAUGARDAGUR 24. nóvember 2012 | SPORT | 89
HANDBOLTI Einn leikur fer fram í N1-deild karla í dag
þegar Haukar taka á móti ÍR að Ásvöllum. Leikurinn
hefst klukkan 15.00.
Haukar hafa byrjað mótið
best allra liða og eru eina
ósigraða lið deildarinnar og
eru með fjögurra stiga forskot á
toppnum. Nýliðar ÍR hafa staðið sig
vel og eru í þriðja sæti deildarinnar
sem stendur.
Breiðhyltingum gengur aftur á móti
ekki vel er þeir spila utan Austurbergsins og það þarf
því eitthvað mikið að breytast ef Haukarnir eiga að
tapa sínum fyrsta leik í dag.
ÍR-ingar eru aftur á móti með sterka og reynda menn
eins og Ingimund Ingimundarson og Sturlu Ásgeirs-
son og reynsla þeirra gæti vegið þungt á metunum í
þessum leik.
Leiknum verður lýst beint á Boltavakt Vísis og
Fréttablaðsins. - hbg
Sterkt vígi Haukanna
ÍR reynir að leggja Hauka fyrst allra liða í vetur.
Sigrar 7
Stórir (+10 mörk) 1
Öruggir (4-9 mörk) 5
Naumir (1-3 mörk) 1
Jafntefli 0
Töp 0
Á heimavelli
2. sæti með 6 stig (75 prósent)
Á útivelli
8. sæti - 3 stig (38 prósent)
Samtals
3. sæti - 9 stig (56 prósent)
➜ Aron í deild sem
landsliðsþjálfari
➜ Tvær hliðar
ÍR-liðsins
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Upplýsingar veitir:
Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 2. desember nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
Söluráðgjafi
Starfssvið:
• Sala og ráðgjöf er varðar fóður, sáðvörur og rekstrarvörur bænda
• Öflun nýrra viðskiptavina og viðhald á viðskiptasamböndum
• Heimsóknir til bænda og annarra viðskiptavina
Hæfniskröfur:
• Góðir söluhæfileikar
• Menntun sem nýtist í starfi s.s. BS í búvísindum, dýralækningar, líffræði
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Starfsreynsla tengd landbúnaði æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð enskukunnátta
Starfið krefst ferðalaga innanlands.
Lífland óskar eftir að ráða dugmikinn og þjónustulundaðan
söluráðgjafa með þekkingu eða reynslu af landbúnaði.
LÍFLAND er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki og lýtur starfsemi
fyrirtækisins annars vegar að framleiðslu á fóðri og þjónustu
tengdri landbúnaði, hestaíþróttum, dýrahaldi og útivist og hins
vegar matvælaframleiðslu og þjónustu við matvælageirann.