Fréttablaðið - 24.11.2012, Page 128
Mest lesið
FIMM
SPURNINGAR
Hugleikur Dagsson
Höfundur bókarinnar Opinberun.
35 ára gamall listamaður. 35 er hið
nýja 34.
Maki: Hrafnhildur Halldórsdóttir.
Börn: Hvergi.
Eruð þið heiðingjarnir komnir í
jólaskap?
Já, enda eru jólin rammheiðin
hátíð. Þau voru það allavega
þangað til Kristur ákvað að eiga
afmæli á sama tíma.
Ferðu til himna?
Stundum. Oftast gerist það þegar
ég er að borða. Og alltaf þegar
ég horfi á Doctor Who. Ég hlakka
mikið til að sjá Doctor Who
Christmas Special.
Þú segist ekki óttast reiði
kirkjunnar manna, en óttastu
reiði guðs?
Já, en guð verður samt aldrei
reiður mjög lengi. Hann er nefni-
lega með athyglisbrest.
Tekurðu Kóraninn fyrir í næstu
bók?
Nei, ég nenni ekki að lesa neitt
sem er ekki með myndskreyt-
ingum. Næst mun ég líklega
taka fyrir bókina Palli var einn í
heiminum.
Er ekki full mikið að senda frá sér
átján bækur um Óla prik?
Það er full mikið að senda frá sér
eina blaðsíðu um Óla prik. En ég
held því áfram svo lengi sem ég
kemst upp með þetta rugl. Reynd-
ar heita þeir ekki allir Óli. Sumir
heita Björn og einn heitir meira
að segja Lárus.
1 Annþór ávarpaði dóminn: Varla
ofb eldi að hrækja á skikkju dómara
2 Drap tvo menn, sagaði þá í búta og
gróf þá í kjallaranum í ísbúð
3 Sverrir Þór dæmdur í 22 ára fangelsi
í Brasilíu
4 Telja sig hafa keypt vannýtta gull-
námu.
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
995,-
STRÅLA piparkökuhús m/ljósi
Rafhlöðuknúið. B15×L23, H20cm. Brúnt.
Einnig til hvítt
i r lj i
f l i . , c . r t.
i i til ítt