Fréttablaðið - 28.11.2012, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 28.11.2012, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 28. nóvember 2012 | MENNING | 17 BÆKUR ★★★ ★★ Fyrir Lísu Steinunn Sigurðardóttir BJARTUR Að segja frá leyndar- máli sem hefur þjak- að þig í áratugi getur haft ófyrirsjáanleg- ar afleiðingar og ekki endilega allar jákvæð- ar. Það fær vinur okkar, krabbameinslæknir- inn Martin Montag, að reyna á eigin skinni í bókinni Fyrir Lísu eftir Steinunni Sigurðardótt- ur. Martin þekkjum við úr snilld- arverkinu Jójó sem kom út í fyrra sem lauk einmitt með því að hann trúði vini sínum Martin Martinetti fyrir leyndarmálinu, fékk aðra sögu á móti og þeir nafnar tengdust á enn dýpri og víðtækari hátt en áður. Fyrir Lísu er kynnt sem sjálfstætt framhald Jójós, en það hlýtur að vera þrautin þyngri fyrir lesendur sem ekki hafa lesið fyrri bókina að ná áttum í þessari. Frásögnin held- ur áfram í beinu framhaldi, klukku- tímum eftir að frásögninni í Jójó lauk, og lítið púður er lagt í að rifja upp það sem á undan er gengið. Sem er mikill kostur fyrir þá sem lásu Jójó en hlýtur að vera frústrerandi fyrir þá sem ekki lásu hana. Rétt er því að ráðleggja lesendum að byrja á Jójó áður en lagt er í Fyrir Lísu enda verður enginn svikinn af þeim lestri. Með því að segja vini sínum frá leyndarmálinu hefur Martin hrint af stað snjóbolta sem stöðugt hleður utan á sig og hann fær ekki stöðvað þótt hann hálft í hvoru vildi. Hann verður að segja frá ofbeldinu, ekki bara gegn sér heldur ekki síður gegn Lísu, dóttur ofbeldismanns- ins sem hann kynntist sem kandídat á geðdeild. Það er hugsunin um Lísu sem knýr hann áfram og hann segir sögu sína og hennar aftur og aftur; lögreglu, sálgreinanda, konu sinni og fleirum. Eftir því sem oftar er sagt frá færist áherslan og fleiri svik skjóta upp kolli. Lausn er þó ekki endilega í sjónmáli, því eins og sálgreinandinn stórskrýtni í kjallara kapellunnar bendir á: Það er engin lækning til við þessu meini. Engin. Stíll Steinunnar er sem fyrr fág- aður og agaður og setningarnar bráðna í munni, kæta og græta. Húmor hennar fær hér einnig meira svigrúm en í Jójói og heimsóknin til sálgreinandans fer hiklaust á blað með kómískustu atriðum á hennar ferli. Lýsingar á samskiptum þeirra hjóna, Martins og Petru, eru líka magnþrungnar og ægifagrar, en í það heila vantar slagkraftinn sem Jójó bjó yfir. Ógnin sem yfir vofði er komin fram úr fylgsninu og um leið færist þungi frásagnarinnar yfir í útskýringar og greiningar á barna- níði með æði misjöfnum árangri. Kannski ráðleggingin sem Steinunn segist hafa fengið fyrir löngu: Ekki skrifa um þetta efni, það er ekki hægt, eigi þrátt fyrir allt við einhver rök að styðjast. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Fallega stílað fram- hald meistaraverksins Jójós. Brilljant á köflum en líður fyrir samanburðinn og nær ekki fram sömu ógnaráhrifum. Við erum, sem sagt, manneskjur fæst á www.kronan.is GJAFAKORT 149kr.pk. Allra hveiti, 2 kg 2 kg ALLT FYRIR BAKSTURINN ! Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012 Upplestur 20.00 Höfundar lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum á Bóka- konfekti Forlagsins á Café Rosenberg. Aðgangur er ókeypis. Bókmenntir 20.00 Menningar- miðstöðin Gerðubergi heldur bókakaffi í umsjón Jóns Björns- sonar. Gluggað verður í Heimskringlu, Gerplu og Geisla. Dans 14.00 Síðdegisdans verður hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4. Stjórnendur eru Matthildur og Jón Freyr. 20.30 Gömlu dansarnir verða dans- aðir í sal Þjóðdansafélags Reykjavíkur, Álfabakka 14A. Lifandi tónlist og allir velkomnir. Fyrirlestrar 12.00 Margrét Hallgrímsdóttir þjóð- minjavörður heldur erindið Safnastarf í norrænu samhengi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Aðgangur er ókeypis. Upplýsingar um við- burði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.