Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 6

Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 6
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 Páfinn fer í hart 1PÁFAGARÐUR „Þeir afneita náttúru sinni og ákveða að hún sé ekki eitthvað sem þeim er fyrir fram gefin, heldur að þeir skapi hana sjálfir,“ sagði Benedikt XVI. páfi um sam- kynhneigða í árlegu jólaávarpi sínu. Hann hefur aldrei tekið jafn hart til orða gagnvart samkynhneigðum og fordæmir réttindabaráttu þeirra, segir hana árás á hefðbundin fjöl- skyldugildi. Tímamótum fagnað 2MEXÍKÓ „Við lítum á upphaf nýs baktún-tímabils sem upphaf nýrra tíma, og við tökum því af mik- illi bjartsýni,“ sagði Rolando Zapata, ríkisstjóri í Júkatan í Mexíkó, heima- landi Maya- þjóðflokksins. Mayar sjálfir gáfu ekkert fyrir þá heims- endatrú sem fólk víða um heim hafði tengt við þessi tímamót í hinu forna dagatal Mayanna. Hvert baktún-tíma- bil er rúmlega fimm þúsund ár. Handtekinn í N-Kóreu 3NORÐUR-KÓREA Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðu í gær að bandarískur ríkisborgari, Pae Jun Ho, hefði verið handtekinn og sögðu hann hafa játað að hafa framið glæpi gegn norður-kóreska ríkinu, en upp- lýstu ekki í hverju þessir glæpir hafi verið fólgnir. Pae býr í Washington- ríki, þar sem hann nefnist Kenneth Bae og vinnur sem fararstjóri. NEYTENDUR Auglýsingar bygginga- vöruverslunarinnar Bauhaus um „bestu verðin í landinu“ og „besta verðið í Reykjavík“ brjóta í bága við lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Þá eru ólög- legar kvaðir sem Bauhaus leggur á neytendur sem vilja nýta sér „verð- vernd“ fyrirtækisins. Þetta kemur fram í nýrri, en óbirtri, ákvörðun Neytendastofu. Ákvörðunin, dagsett 12. desember, er sögð taka gildi við birtingu og verður Bauhaus þá bannað að full- yrða um besta verð. Jafnframt verð- ur fyrirtækinu „bannað að leggja þá skilyrðislausu og íþyngjandi kröfu“ á fólk sem vilja nýta sér verðvernd verslunarinnar að það leggi fram skriflega staðfestingu á pappír fyrir lægra verði keppinautar. Neytendastofa segir að seljandi sem bjóði viðskiptavinum sínum verðvernd eigi sjálfur að gæta þess að verð hans sé það lægsta. „Neyt- endastofa telur þá kvöð Bauhaus að neytandinn þurfi í öllum tilfellum að leggja fram skriflega staðfestingu, á pappír, fyrir verði keppinautar, vera afar íþyngjandi og í andstöðu við ákvæði 10. greinar reglu númer 366/2008 [um útsölur og aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði]. Auk þess telur Neytendastofa skil- yrðið fela í sér óréttmæta viðskipta- hætti sem líklegir eru til að raska verulega fjárhagslegri hegðun neyt- enda […] enda líkur á að neytendur ákveði að eiga viðskipti við Bauhaus í ljósi verðverndar en nýti sér ekki verðvernd vegna þeirra íþyngjandi kvaða sem gerðar eru til sönnunar á verði keppinauta.“ Ákvörðunin kemur í kjölfar kvartana til Neytendastofu, annars vegar frá Húsasmiðjunni og hins vegar frá Ólafi Haukssyni. Neytendastofa féllst hins vegar ekki á að banna ætti Bauhaus að takmarka verðverndina þannig að hún gilti ekki um vörur sem aðrir bjóða í takmörkuðu magni og í tak- markaðan tíma, opnunartilboð, sér- pantanir eða vörur sem seldar eru í póst- eða í vefverslunum. Bauhaus, Byko, Húsasmiðjan og Múrbúðin keppa hart á mark- aði byggingarvöru. Í sumar bann- aði Neytendastofa Byko að birta fullyrðingar um „lægsta verðið“ í sínum verslunum. olikr@frettabladid.is Mega ekki krefjast sannana á pappír Neytendastofa slær á fingur Bauhaus fyrir viðskiptahætti sem séu neytendum „íþyngjandi“ og „óréttmætir“ og fallnir til að „raska verulega fjárhagslegri hegðun“ þeirra. Fyrirtækinu, eins og Byko, er bannað að auglýsa besta/lægsta verð. BAUHAUS Í ákvörðun Neytendastofu er Bauhaus sagt brjóta lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, sem og reglur um útsölur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ➜ Auk þess telur Neyt- endastofa skilyrðið fela í sér óréttmæta viðskiptahætti. Ákvörðun nr. 53/2012 Neytendastofa Save the Children á Íslandi HEIMURINN 1 2 3 BANDARÍKIN, AP Vonir hafa á ný dvínað um að lausn finnist á deilum repúblikana og demó- krata um fjárlagaþverhnípið svonefnda í tæka tíð fyrir áramót. John Boehner, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og leiðtogi repúblikana í deildinni, dró á miðvikudag málamiðlunar- tillögu sína til baka, þar sem hann hafði ekki nægan hljómgrunn fyrir henni í röðum eigin flokksmanna. Um áramótin renna út lagaheimildir til nokkurra stórra útgjaldaliða á fjárlögum Bandaríkjanna. Um leið renna út lög um ýmsa skattafrádrætti, sem George W. Bush forseti setti á sínum tíma. Nái flokkarnir ekki samkomulagi fyrir ára- mótin taka því sjálfkrafa gildi bæði skatta- hækkanir og niður skurður á útgjöldum ríkis- ins. Þetta myndi að vísu bæta stöðu ríkissjóðs, en á hinn bóginn þykir fullvíst að þessar breytingar dragi jafnframt úr um svifum í efnahagslífi Bandaríkjanna. Þar með myndi kreppan frá 2008 dragast enn á langinn, með afleið- ingum langt út fyrir landamæri Bandaríkjanna. - gb Repúblíkanar drógu málamiðlunartillögu sína til baka: Fjárlagaþverhnípið blasir við JOHN BOEHNER
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.