Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 24

Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 24
Hrein skyrta Fæstir vilja lenda í því að þurfa að strauja skyrtu í miðri máltíð á aðfangadags- kvöld ef svo illa vill til að sullast yfir spariskyrtuna. Til að koma í veg fyrir slíka stöðu borgar sig að hafa allan vara á og eiga hreina strauj- aða skyrtu inni í skáp. HELGIN 22. desember 2012 LAUGARDAGUR Það eru reglur í þinginu um snyrtilegan klæðaburð og auðvitað getur verið mikið matsatriði á hverjum tíma hvað telst snyrtilegt,“ segir Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra eftir að hafa verið rekin úr lopapeysunni sinni af forseta þings- ins. Hún heldur ekki uppi andófi gegn þeirri valdbeitingu, heldur tekur henni með ró og spekt. „Ég lít á þetta sem mikið aukaatriði. Þetta er samt voða fín peysa, ég tek það fram, með vestfirsku vettlingamynstri og fallegum blúndukraga og ég hef verið í henni áður í þinginu. En þegar tveir þingmenn, sem sagt við Árni Johnsen, voru komnir í lopapeysur í þingsal þá held ég forseta hafi fundist fulllangt gengið.“ Peysuna umræddu kveðst Katrín hafa fengið að gjöf frá frænku sinni á Vest- fjörðum og vera afskaplega ánægð með hana, enda hafi hún notað hana mikið. Hún segir þetta atvik í þinginu hafa rifjað það upp að Vigdís Finnboga dóttir hafi verið í lopadragt þegar hún veifaði til mannfjöldans af Ara götunni, eftir að þjóðin hafði kosið hana sem forseta Íslands 1980. Það hafi verið dragt sem Vigdísi hefði verið gefin í kosninga- baráttunni. „En þetta er spurning um klæðaburð alþingismanna. Það er voða auðvelt að gera kröfu um að karlarnir séu í jakka fötum en klæðnaður okkar kvennanna er meira smekksatriði, þannig að ég held að þegar lopapeysu- tískan fór að breiðast út hafi verið ákveðið að gera athugasemdir.“ Katrín er oft í peysum eins og alþjóð hefur eflaust tekið eftir. „Ég er mikil peysukona. Kannski af því að mér finnst dragtarjakkar ekki fara mér vel. Ég á einn svoleiðis en þegar ég er komin í hann þá líður mér alltaf eins og litlum pappakassa. Reyndar finnst mér dragtir í anda sjöunda áratugar- ins rosalega flottar en ég hef bara ekki fundið svoleiðis sem passa á mig. Ein- hverja appelsínugula. Það gæti verið svolítið töff. En teinótt eða beis, það er ekki ég.“ Þú hefur sem sagt aldrei verið flug- freyja? „Nei, ég væri alveg glötuð í það með þessa jakkafælni. Ég gæti samt kannski verið í innanlandsflugi, því ég held að freyjurnar þar fái að vera í peysum.“ En hvað um íslenska búninginn. Skyldi hún eiga hann? „Nei, ég á hann ekki og hef aldrei klæðst honum. En ég verð kannski einhvern tíma beðin að vera fjallkona á 17. júní – hugsanlega – þá yrði ég dubbuð upp í þjóðbúning. Ég er eiginlega að bíða eftir því. Bara svo því sé komið á framfæri!“ Þá snúum við okkur að jólunum. Hvernig skyldi ganga að undirbúa þau á heimili menntamálaráðherra? „Það gengur fínt,“ svarar Katrín svo ákveðin að næsta spurning er hvort hún sé með vinnukonu. „Nei. Jól geta verið á ýmsan hátt og þetta verða óformlegu jólin. En það er að minnsta kosti búið að senda jólakortin. Synirnir, annar sjö ára og hinn að verða fimm, sjá um að skreyta húsið sem þýðir að það er skraut alls staðar. Annað mun verða leyst á lokametrunum. Jólin snúast um kærleikann og þau koma hvernig sem til tekst með undir- búninginn.“ Bíður eftir að verða fjallkona Lopapeysubann var sett á alþingi Íslendinga í vikunni. Þann dag skartaði Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra lopapeysu með vestfirsku vettlingamynstri eins og stundum áður. Hún er mikill peysuvinur en finnst hún vera eins og pappakassi ef hún fer í dragt. KATRÍN JAKOBS „Ég gæti kannski verið í innanlandsflugi því ég held að freyjurnar þar fái að vera í peysum,“ segir hún. Haraldur Ari Stefánsson, tónlistarmaður Fer norður „Ég er að fara til Akureyrar að spila og kynna Síðasta sjens sem verður 30. desember í Vodafonehöllinni. Það verður alger stuðveisla. Svo ætla ég líka í sund.“ Hrefna Rósa Sætran, mat- reiðslumaður Litlu jólin „Í dag ætla ég að hitta hann frænda minn sem er að koma frá útlöndum og svo ætla ég að skreyta jólatréð. Á morgun eru litlu jólin á bæði Fisk- og Grillmarkaðnum.“ Hallgrímur Ólafsson, leikari Í skötuveislu „Um helgina ætla ég að klára jólin, ég á meðal annars eftir að kaupa gjöf handa konunni. Á sunnudaginn ætla ég að borða skötu hjá Þresti Leó. Ég fer alltaf í skötu til hans.“ Sigmar Vilhjálmsson, athafnamaður Útsending og fi tumæling „Eftir að útsendingu lýkur á útvarpsþættinum mínum liggur leiðin beint í fitumælingu. Ef útkoman verður allt í lagi þá mun ég leyfa mér að fara í vaðandi skötuveislu á Kringlukránni á sunnudaginn. Þar ætlar öll fjölskyldan að koma saman og belgja sig út af skötu. Svo er meiningin að rölta um miðbæinn um kvöldið.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Aukapakkar Allir geta lent í því á að- fangadag að vinur krakkanna birtist með pakka án þess að það hafi verið skipulagt fyrirfram og að gamall vinur kíki inn með gjöf í hendi. Til að bregðast við slíkum aðstæðum borgar sig að eiga innpakkaðar gjafir sem henta börnum og fullorðnum. ÓMISSANDI Á AÐFANGADAG Flestar búðir skella í lás klukkan tólf á hádegi á aðfanga- dag og þá er eins gott að hafa un- dirbúið hátíðina vel og skynsam- lega. Fréttablaðið tók saman lista yfi r nokkur atriði sem vissara er að hafa á hreinu áður en hátíð gengur í garð. Sokkabuxur Það er óskemmtilegt að rífa einu heilu sokkabuxurnar í húsinu á aðfangadag. Til að lenda ekki í slíku neyðar- ástandi borgar sig að eiga einar, jafnvel tvennar, aukasokkabuxur sem fara við jóladressið. Gaskútur Hátíðarsteikin er komin í ofninn og kartöflurnar malla á hellunni – og gasið klárast. Jólastemmingin ryki nú sennilega út í veður og vind ef þetta myndi gerast og eina ráðið er: Að eiga auka gaskút. Kerti Kerti eru klassísk jólagjöf og margir sem stinga þeim með í pakkann. En það er líka nauðsynlegt að eiga kerti á heimilinu til að kveikja á á aðfangadagskvöld.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.