Fréttablaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 56
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 56
Heima hjá Guðrúnu Sverrisdóttur hjúkr-unarfræðingi er einstakt jólaskraut á borði. Iðnó í jólaskrúða unnið í gips með leikhússtjóra og leikstjóra uppi á þaki en leikara í ýmsum hlutverkum á stéttinni umhverfis. Allt fólkið er úr
vöfðum pípuhreinsurum og í sérsaumuðum fötum
og merkt nafni. Litlir stólar eru búnir til úr öskjum
undan plástrum og öðrum afgöngum. Tjörnin, gerð
úr spegli, gerir myndina enn raunverulegri en ella.
Hvernig skyldi hún hafa fengið þessa hugmynd? „Ég
þekkti lítillega til Magnúsar Geirs í gegnum dóttur
mína Sólveigu, sem er leikkona. Við vorum stödd í
Iðnó og þá kom andinn yfir mig í fallega húsinu með
sálina. Ég ákvað að búa til Iðnó, skera það út með
skurðstofuhnífi og gipsa það með hvítum gipsaf-
göngum. Í fyrstu ætlaði ég eingöngu að búa til húsið
sjálft ásamt leikstjórum liðinna ára. Þá var mér
hugsað til æskuáranna heima hjá mömmu minni. Ég
og Einar bróðir vorum sett í bað, háttuð ofan í drif-
hvít sængurföt með útilykt og hækkað í útvarpinu.
Leikrit laugardagskvöldsins voru að hefjast. Ég
þekkti allar raddir leikaranna í útvarpinu frá barns-
aldri, þessar raddir urðu vinir mínir.“
Sumir í gipsi, aðrir í fatla
Reyndar kveðst Guðrún hafa byrjað á jólahúsi fyrir
slysa- og endurkomudeild Borgarspítalans, fyrir
svona 15 til 20 árum, úr gipsafgöngum og afklipp-
um. Síðan hafi hún búið til hjúkkur, lækna, ritara
og starfsstúlkur úr pípuhreinsurum og saumað föt
og kappa. „Allir voru merktir með nafni,“ lýsir hún.
„Sjúklingarnir sem prýddu sjúkrahúsið voru jóla-
sveinar, sumir í gipsi, aðrir í fatla.“
Styttra er síðan Guðrún réðist í leikhúsverkefnið
stóra sem hér birtast myndir af. Það kostaði hana
nokkurra mánaða vinnu enda eru persónurnar milli
sextíu og sjötíu talsins og eru sumar sóttar allt aftur
til aldamótanna 1900. „Mig langaði bara að minnast
leikaranna og þakka fyrir mig,“ segir hún.
Þessar
raddir urðu
vinir mínir
Þegar Guðrún Sverrisdóttir hjúkrunar-
fræðingur var lítil hlýddi hún á laugar-
dagsleikritin í útvarpinu og þekkti
raddir allra helstu leikara þjóðarinnar. Í
þakklætisskyni fyrir þessar stundir og líka af
virðingu fyrir hinu aldna leikhúsi Iðnó bjó
hún til eft irlíkingu af húsinu úr gipsi og setti
leikhúsfólkið upp á þak og allt um kring.
SKÖPUNARVERKIÐ OG HÖFUNDURINN „Ég ákvað að búa til Iðnó, skera það út með skurðstofuhnífi og gipsa það með hvítum
gipsafgöngum,“ segir Guðrún sem ekki lét staðar numið þar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ROMMÝ Erlingur Gíslason og Guðrún Ásmundsdóttir
sitja saman og spila rommý.
Í RÚMINU Alfreð Andrésson og Inga Laxness eru saman í gipsrúmi í
„Góðir eiginmenn sofa heima“. Rúminu fylgir koppur og þvagflaska.
LEIKARAFJÖLSKYLDAN Steindór Hjörleifsson og Margrét Ólafs-
dóttir með dótturina Ragnheiði á milli sín.
LEIKHÚSIÐ VIÐ TJÖRNINA Iðnó horfir upp og niður í speglinum sem túlkar
Tjörnina.
OFVITANS MINNST Jón Hjartarson situr með ofvitann
í fanginu.
FRÆNKA CHARLEYS Árni Tryggvason situr með frænku
Charleys í fanginu.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
THE DAISY
COLLECTION