Fréttablaðið - 22.12.2012, Side 73

Fréttablaðið - 22.12.2012, Side 73
| ATVINNA | Deiliskipulag hafnarsvæðis á Patreksfirði Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjar- stjórn Vesturbyggðar á fundi þann 16. maí 2012 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi af hafnarsvæðinu á Patreksfirði. Deiliskipulagið afmarkast af neðri húsum við Urðagötu og Mýrum að norðan, Aðalstrætis að austan og sjó að vestan og sunnan. Tillagan var til sýnis á bæjarskrifstofunni að Aðal- stræti 63 og á heimasíðu Vesturbyggðar, www.vesturbyggd. is frá og með þriðjudeginum 12. júní til og með 31. júlí 2012. Athugasemdir bárust og hafa umsagnir bæjastjórnar um þær verið sendar þeim sem þær gerðu. Eftirfarandi breyting- ar voru gerðar á tillögunni til samræmis við athugsemdir. Aðkoma er sýnd frá Þórsgötu að Aðalstræti 7. og gerð grein fyrir henni í greinargerð. Teknir voru út byggingarreitir fyrir bílskúra við Aðalstræti vegna garðveggs við Aðalstræti 5-9 sem eru settir undir hverfisvernd. Byggingarreitur Odda hf. var stækkaður. Byggingarreitur við Vatnskrók 1. og 2. er felldur út. Gerð var grein fyrir hverfisvernd á hafnarsvæðinu í samræmi við húsakönnun sem lauk á árinu 2012. Stækkun lóðar og byggingarreits á iðnaðarlóð við Oddagötu og við núverandi Vöru-afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkti deiliskipulagið á fundi sínum þann 21. nóvember sl. og hefur skipulagið verið sent Skipulagsstofnun til yfirferðar. Hverjum þeim sem telur rétti sínum hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 52.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B- deild Stjórnartíðinda. Bæjarstjórn samþykkt á fundi sínum þann 10. desember síðastliðinn að auglýsa eftirfarandi skipulagslýsingu, aðalskipulagsbreytingu og ný deiliskipulög. Vestur- byggð óskar hér með eftir athugasemdum við lýsinguna og skipulagstillögurnar sem eru: Lýsing á skipulagsverkefni Skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst lýsing á skipulagsverkefni fyrir deiliskipulag Látrabjargs. Fyrirhugað deiliskipulagssvæði nær yfir land þriggja jarða, Hvallátra, Breiðavíkur og Keflavíkur. Stærð svæðisins er í allt um 9.000 km2. Skipulagslýsingin mun liggja frammi á skrifstofu Vesturbyggð- ar Aðalstræti 75, Patreksfirði og á heimasíðu sveitarfélagsins www.vesturbyggd.is á meðan unnið er að skipulaginu. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 63. eða á netfangið armann@vesturbyggd.is merkt „skipulagsmál í Vesturbyggð“ fyrir 13. janúar 2013. Eftir kynningu á skipulagslýsingunni verður fjallað um deiliskipulagið og það kynnt samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010. Breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 Skv. 31. gr. laga nr. 123/2010 og 7 gr. laga nr.105/2006 er auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á aðal- skipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna laxeldis, urðunar, landnotkunar í fjallshlíðum þéttbýla, iðnaðarsvæðis á Bíldudal, Aðalstrætis 100 og nágrenni. Skipulagstillögunni fylgir umhverfisskýrsla. Skv. 41. gr. laga nr. 123/2010 er auglýst eftir athugasemd- um við eftirfarandi deiliskipulagstillögur: Sumarhúsabyggð í Dufansdal Efra land II. Uppdráttur með greinargerð. Kirkjuhvammur á Rauðasandi. Uppdráttur og greinargerð. Urðunarstaður í Vatneyrarhlíðum. Skv. 41. gr. laga nr. 123/2010 og 7. gr. laga nr. 105/2006 Uppdráttur með greinargerð og umhverfisskýrslu. Hlaðseyri og nágrenni. Fóðurstöð fyrir Laxeldi. Uppdráttur með greinargerð. Aðalstræti 100 og nágrenni. Hótel og ofanflóðavarnir. Uppdráttur með greinargerð. Einnig samþykkt bæjarstjórn Vesturbyggðar þann 19. september 2012. að auglýsa: Deiliskipulag vegna frístundabyggðar í Vesturbotni í Patreksfirði skv. 41 gr. laga nr. 123/2010. Skipulagsuppdrættir, umhverfisskýrslur og greinargerðir liggja frammi á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 75, Patreksfirði og/eða hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, Reykjavík frá 1. janúar 2013 til 26. febrúar 2013. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.vesturbyggd.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 26 febrúar 2013. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 63 eða á netfangið armann@vesturbyggd.is merkt „skipulagsmál í Vesturbyggð “. Þeir sem ekki gera athugasemd- ir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni. Ármann Halldórsson byggingarfulltrúi. Skipulagsmál í Vesturbyggð Auglýsing um skipulags- mál í Grindavík 1. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur bæjar 2010-2030 vegna fráveitu frá Svartsengi í Grindavík, ásamt umhverfisskýrslu. Leggja þarf affallslögn og þjónustuveg frá niðurdælingarsvæði vestan við Þorbjörn og til sjávar, vestan Grindavíkur. Lögnin mun flytja affallsvökva frá niðurdælingarveitu Svartsengis- virkjunar til útrásar í Arfadalsvík. 2. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur bæjar 2010-2030 vegna miðbæjar, ásamt umhverfis skýrslu. Tilgangur breytingarinnar er að skapa betri umgjörð um lifandi miðbæ í Grindavík með blandaðri starfsemi; verslun, þjónustu og íbúðum. Lögð er áhersla á að uppbygging falli vel að því byggðamynstri sem fyrir er. Breytingin gerir ráð fyrir breyttu umferðarskipulagi. 3. Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar- kjarna í Grindavík, ásamt umhverfisskýrslu. Megininntak deiliskipulagstillögunnar er að skapa umgjörð um lifandi miðbæ í Grindavík með blandaðri starfsemi; verslun, þjónusta og íbúðir. Lögð er áhersla að uppbygging falli vel að því byggðamynstri sem fyrir er. Einnig er lögð áhersla á að auka umferðaröryggi í miðbænum, draga úr umferðarhraða og gera gangandi og hjólandi vegfarendum hærra undir höfði. Gerðar eru breytingar á gatnamótum Víkurbrautar og Ránargötu þannig að umferðinni sé beint niður að höfn. 4. Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið í Grindavík. Deiliskipulagið nær til íþróttasvæðis Grindavíkurbæjar og er unnið með það að leiðarljósi að bæta aðstöðu til íþróttaiðku- nar í bænum. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir nýjum mann- virkjum á svæðinu s.s. íþróttamiðstöð, aðkomutorgi og fjölgun bílastæða. Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62 í Grindavík, virka daga kl. 9:30 - 15:00, frá 22. desember 2012 til og með 2. febrúar 2013. Einnig má nálgast skipulagstillögurnar ásamt umhverfisskýrslum á heimasíðu Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillögurnar ásamt umhverfisskýrslum. Ábendin- gum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til forstöðumanns Tæknideildar Grindavíkurbæjar eigi síðar en 2. febrúar 2013. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Grindavík, 22. desember 2012. Ingvar Þ. Gunnlaugsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs. Háholt 14, Mosfellsbær Sími: 588 5530 • berg@berg.is www.berg.is Fax: 588 5540 Pétur Pétursson lögg. fasteignasali Petur@berg.is Húsafell fjárfestingartækifæri Til sölu fimm sumarhúsalóðir í þyrpingu. Verð kr. 2.500.000.- Upplýsingar hjá Berg fasteignasölu S: 588-5530 eða berg@berg.is Auglýsing um skipulag - Hörgársveit Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga auglýsist hér með tillaga að deiliskipulagi jarðarinnar Skúta ásamt spildu úr jörðinni Moldhaugum, ásamt umhverfisskýrslu. Í tillögunni er gert ráð fyrir efnistökusvæði, iðnaðarsvæði o.fl. Gert er ráð fyrir aðkomu að svæðinu frá Hringvegi. Gerð er grein fyrir tillögunni á skipulagsuppdrætti í mælikvarðanum 1:10.000. Tillagan, ásamt umhverfisskýrslu, verður til sýnis á skrifstofu Hörgársveitar, Þelamerkurskóla, frá 28. nóvember 2012 til 25. janúar 2013. Einnig má sjá tillöguna, ásamt umhverfisskýrslu, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.horgarsveit.is. Athugasemdir skulu hafa borist skriflega til skrifstofu Hörgársveitar eigi síðar en kl. 15:00 föstudaginn 25. janúar 2013. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. 26. nóvember 2012 Sveitarstjórinn í Hörgársveit Tilkynningar Fasteignir Nú er Létt Bylgjan jólastöðin þín Ljúf og þægileg jólatónlist alla daga til jóla LAUGARDAGUR 22. desember 2012 13
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.